Alþýðumaðurinn - 13.02.1951, Qupperneq 1
ttmaöuruMx
XXI. árg. Þriðjudagur 13. febrúar 1951 6. tbl.
Aí ávöxtunum skuluð þér
þekkja þá.
Síefna ríkisstjómarinnar er
stefna írramsóknar í
efnahagsmóium.
£ins og öllum er kunnugt, hefir
Framsóknarflokkurinn stj órnarf or-
ustu á hendi nú um sinn. Þessa for-
ustu hlaut hann í krafti kosningaslg-
urs slns, en hann öðlaðist flokkur-
inn með því að boða til ýmissa end-
urbóta á efnahagsstjórn landsins, að
því er þeir kjósendur töldu, sem
veiftu Framsókn aukið brautargengi.
Flestum mun að vísu finnast, að
stefna núverandi ríkisstjórnar sé
meir sniðin eftir formúlum harð-
svíraðs kapitalisma en ' samrýmzt
geti með góðu móti stefnuskrá
Framsóknarflokksins, en hins vegar
sést það í engu, að Framsókn uni
þessari stefnu illa, því að blöð lienn-
hennar. Tíminn og Dagur, verja
hana og lofa af miklu kappi.
Nú er öllum í fersku minni, að
Framsókn var ekki feimin við að
gagnrýna stefnu fyrrverandi ríkis-
stjórnar, enda þótt hún ætti tvo ráð-
herra í þeirri stjórn. Þá brigzlaði
Framsóknarflokkurinn Alþýðufl. f
sífellu um íhaldsþjónkun. Það ætti
því ekki að þurfa að gera því skóna,
að Framsókn brenndi sig á íhalds-
þjónkun, og þegar hún auk þess lof-
ar og ver núverandi stj órnarstefnu,
er rökrétt að draga þá ályktun, að
þrátt fyrir fögur lojorð um allt ann-
að, þrátt fyrir stefnuslcrá, sem gefur
fyrirheit um annað. þá sé stefna nú-
verandi stjórnar liin raunsanna
stefna Framsóknarforustunnar í
ejnahagsmáhun landsins. Þetta er
höfuðnauðsyn, að þeir kjósendur
geri sér ljóst, sem kusu Framsóknar-
flokkinn við síðustu kosningar í
trausti þess, að hann kæmi. RÉTT-
LÁTARI skipan á efnahagsmál
þjóðarinnar, því að það er í alla
staði mjög óeðlilegt, að frjálslyndir
kjósendur styðji áfram þann flokk
til valda, sem rekur hákapitaliska
stefnu heildsala- og útgerðarstór-
laxavalds og vinnur þann'g að
ÓRÉTTLÁTARI skipan í eínahags-
málum þjóðarinnar.
Bja?gi‘æSi
gengislækkunannrtar.
í kosningahríðinni fyrir síðustu
þingkosningar, hélt Framsóknar-
flokkurinn því mjög á lofti, að
styrkja- og uppbótarleiðin yrði ekki
lengur farin. Hún leiddi til síhækk-
andi skatta og álaga, auk þess sem
hún væri engin frambúðarlausn. Úr-
lausnin væri rétt skráning íslenzku
krónunnar, hún væri skrátf á röngu
gengi, það yrði að lækka. Þá mundu
úiflutnings-alvinnuvegirnir bera sig,
svo að uppbæturnar mættu falla nið-
ur, þá mætti rýmka á verzlunarhöfi-
unum, afnema skömmtun o. s. frv.
Þessi málflutningúr fann mikinn
hljómgrunn. Ollum skilst, að það er
óeðlilegt, að greiða þurfi svo og svo
mikið með gangverði mjólkur,
kjöls, fisks o. fl. til þess að fram-
leiðandinn geti hlotið sæmilegan
afrakstur vinnu sinnar. Öllum skilst
1 ka, að slíkt er enginn frambúðar
lausn. Hitt dylst mörgum, að stað-
reynd er, að efnahagskerfi vort, eins
og fjölmargra annarra þjóða, var og
er svo úr skorðum gengið eftir
heimsstyrjqldina, að bráðabirgðar-
lausnir, sniðnar eftir aðstæðum, eru
stórum giftudrýgri, heldur en svo-
kölluð ..afgerandi bjargráð“. sem
ekki taka tillit til hins raunverulega
heilbrigðisástands þj óðarlíkamans.
Um langi skeið höfðu menn verið
óánægðir með verzlunina og
skömmtunina. Þar var því létt verk
að slá á óánægjustrengina. Og
fjórða strenginn í sigurfiðlu sína
sneri Framsókn sér úr óánægju al-
mennings með fyrrverandi stjórn.
Þar hafði flokkurinh I%kió stjórnar-’
andstöðu í sijórna.rsamstarfi og með
þeim vinnubrögðum orðið því mjög
valdandi, að ráðstafanir stjórnarinn-
ar til varnar gegn vaxandi dýrtíð
revndust eigi svo haldkvæmar sem
Framh. á 4. síðu.
Á bæjarstjórnarfundi s.l.
þriðjudag var kosið í trúnaðar-
stöður og nefndir bæjarins. Var
það að mestu óbreytt frá fyrra
ári, og skal hér getið þess helzta:
Forscti hæ'ftrstfórnar var kjör-
inn Þorsteinn M. Jónsson, 1. vara
forseti Sverrir Ragnars og 2.
varaforseti Steindór Steindórs-
son.
Ritarar bæfarstjórnar:
Bragi Sigurjónsson
Jón Sólnes
Bæjarráð.
Steindór Steindórssbn
Jakob Frímannsson
Helgi Pálsson
Sverrir Ragnars
Tryggvi Helgason
Varamenn:
Bragi Sigurjónsson
Kristinn Guðmundsson
Jón Sólnes
Guðm. Jörundsson
Elísabet Eiríksdóttir
Bygginganefnd:
(innan bæjarstjórnar)
Þorsteinn M. Jónsson
Bragi Sigurjónsson
(utan bæjarstjórnar)
Karl Friðriksson
óskar Gíslason
AEþýðuflokksféEögin
á Ákureyri
halda
§ p i S ® kvö I d
að Hótel Norðurlandi föstud. 16.
febrúar 1951, kl. 8.30 e.h.
KVIKMYND
Spiluð verður félagsvist. -—- Verð-.
laun veitt. Dansað til kl. 1.
Félagsmenn eru beðnir að hafa
með sér spil og blýant.
Alþýðuflokksfélag Akureyrar.
Kvenfélag A Iþýðufloltksins.
Félag ungra jafnaðarmanna.
Hafnarnefnd:
(innan bæjarstjórnar)
Kristinn Guðmundsson
Guðm. Jörundsson
(utan bæjarstjórnar)
Albert Sölvason
Magnús Bjarnason
Bæjarstjóri er sjálfkjörinn for-
maður beggja þessara nefnda.
Rafveitiinefnd:
Steindór Steindórsson
Jónas Þór
Sverrir Ragnars
Indriði Helgason
Guðm. Snorrason
Framfærslunefnd:
Kristbjörg Dúadóttir
Helga Jónsdóttir
Elinborg Jónsdóttir
Kristján Árnason
Elísabet Eiríksdóttir
Endurskoðendur bæjarreikn.:
Brynjólfur Sveinsson
Pálj Einarsson
Stjórn Sparisjóðs Akureyrar:
Haukur Snorrason
Kristján Jónsson, fulltr.
■ Endurskoðendur Spari-
sjóðsins:
Heiðrekur Guðmundsson
Sigurður Jónssbn
Frestað var að kjósa í bóka-
safnsnefnd.
Kosið í nefndir I bæjarstjúrn
i