Alþýðumaðurinn


Alþýðumaðurinn - 01.05.1951, Side 1

Alþýðumaðurinn - 01.05.1951, Side 1
XXI. árg. Þriðjudagur 1. inaí 1951 16. tbl. Sameinaðir stöndum vér, en snndraflir tðllom vér. Verkalýðnum er nú liöfuðnauðsyn að sækja í órofa heild fram að markinu: Full dýrtíðar- uppbót á laun. Aðrar skipa sér fast að baki brýtur ísinn fyrir Ef til vill hefir íslenzkuin verka- lýð aldrei riðið það á meiru en ein- mitt í dag, að vera minnugur þess, að órofa samstaða er hans aðalvopn í sókn til bættra kjara. Undanfarin ár hefir eigi reynt svo mjög á samtakamáttinn og eggjar baráttuviljans kunna að hafa slævzl. En í dag stendur verkalýðurinn gegn illfúsu atvinnurekendavaldi, sem mun allt reyna til að sundra röðum verkalýðsins í kjarabarátt- unni, og að baki þessu valdi stendur ein sú afturhaldssamasta ríkisstjórn, sem hér hefir setzt í ráðherrastóla, um leið og hún er ein sú ráðalaus- asta, þ. e. a. s. á þjóðholl ráð. Verkalýðurinn verður að minnast þess, að allt mun verða reynt til að eyðileggja árangur samtaka þeirra nú til að fá að nokkru bætta hina stórkostlegu kjaraskerðingu undan- farinna mánaða: Framsóknarflokk- urinn mun æ ofan í æ ala á því við kjósendur sína og flokksmenn í verkalýðsfélögunum, að þeir skuli sitja hjá. Sama leik mun Ihaldið reyna. Reynt mun verða að egna Kommúnista gegn Alþýðuflokks- mönnum og Alþýðuflokksmenn gegn konnnúnistum, af því að djúp- stæður skoðanamunur er þar á milli í ýmsum málum. En í þessu tilfelli verður verkalýð- urinn aðeins að horfa á það, að hér er barizt að marki, sem enginn flokkslegur ágreiningur á að geta launastéttir verða að honum, því að bann þær til kjarabóta komið nærri: Það að réttur efna- minnstu stéttanna verði ekki borinn fyrir borð. Minnist þess góðir verkamenn og góðar verkakonur, hvar í flokki sem þið standið, að talpípum íhalds- og Framsóknarinálgagna skuluð þið ekki trúa í þessum málum, því að stjórnendur þessara flokka hugsa vissulega eins og Mörður Valgarðs- son, ef þeim tekst að rægja verka- lýðinn saman til innbyrðis deilna í þessu máli: „Þeir einir munu vera, er ek hirði aldri þó at drepist.“ En ef verkalýðurinn ber gæfu til að standa fast og heilhuga saman, getur hann unnið glæsilegan sigur nú á þessu vori, sigur, sem ekki ein- ungis bætir kjörin, heldur sýnir aft- urhaldsöflunum það svart á hvítu, að íslenzkur verkalýður verður ekki kúgaður til auðmjúkrar þjónustu við gróðasjúkar auðstéttir, þótt látið sé smella í hugarsvipum yfir höfði hon- um, eða ógnað með atvinnuleysi, gerðardómslögum og afnárni verk- fallsréttar. Islenzk alþýða er ekki uppreisn- argjörn, en hún krefst réttlætis. Og al því að hún veit og finnur, að í dag bersl hún fyrir réttlæti, þá svell- ur henni móður. Afturhaldsöfl ríkisstjórnarinnar vona, að þau geti brotið þetta skap til hlýðni, en ef við verðum samstillt og saintaka, mun hún komast að raun um, að henni skjátlist stórlega. 9 Avarp frá 1. maí-nefnd verklýðsfélaganna á Akureyri. 1. maí-nefnd verklýðsfélaganna á Akureyri skorar mjög eindreg- ið á alla meðlimi félaganna og alla alþýðu á Akureyri að fylkja sér undir merki alþýðusamtakanna á hátíðis- og baráttudegi verkalýðs- ins jiann 1. maí nœstkomandi, með því að taka beinan þátt í hátíða- höldum dagsins og fjölmenna á þœr samkomur, sem verklýðsfélögin standa fyrir. Undanfarna mánuði hafa kjör verkalýðsins verið skert stórkost- legar en dœmi eru til áður. I'erðlag í landinu hefir, samfara slór- kostlegum samdrœtti í atvinnulífi landsins og þar með tilfinnanlegu atvinnuleysi, hœkkað svo, að lífsafkoma allrar alþýðu er að komast á það stig, sem var á kreppuárunum eftir 1930. Nú er svo komið, að fjölmörg verklýðsjélög hafa sagt upp samn- ingum sínum í því augnamiði að fá a. m. k. greidda fulla dýrtíðar- uppból á kaup meðlima sinna. Almenn þátttaka alþýðu bæjarins í 1. maí-hátíðahöldunum að þessu sinni, getur orkað mjög verulega í j)á átt að auðvelda verk- lýðssamtökunum sigur í vœntanlegri launabaráttu. Með tilliti til j)essa má það Ijóst vera, að almenn þátttaka í 1. maí-hátíðahöldun- um er nú nauðsynlegri en nokkru sinni fyrr. Sýnum í verki einingu og afl verklýðssamtokanna með meiri þótttöku í hótíðahöldunum en nokkru sinni fyrr. í 1. maí-nefnd verklýðsfélaganna á Akureyri. BernhartS Helgason. Björgvin Einarsson. Rósberg G. Snædal. Einar Björnsson. Björn Jónsson. Arni Magniisson. Jón Ingimarsson. Guðrún Guðvarðardóttir. Svavur Jóhannesson. Óskar Stejánsson. Kristján Larsen. Jakob N. Halldórsson. Jóhann Indriðason. Olajur Aðalsteinsson. Jónas Bjarnason. Marinó Viborg. Guðmundur Armannsson. Lorenz Halldórsson. Jón Gunnarsson. Krislín ísjeld. Tómas Kristjánsson. Steján Eiríksson. María Guðmundsdóttir. Jón Arnason. Hrafnhildur Ingóljsdóltir. Bragi Sigurgeirsson. Snorri Pétursson. Og með þeirri einlægu von og ósk, að sú verði raunin á, óskar AI- þýðumaðurinn allri alþýðu þessa bæjar og hvar sem er á landinu heilla og hamingju á komandi sumri, sigurs og vaxtar í baráttumál- um sínum fyrir eigin viðgangi og fyrir nýju og betra þjóðskipulagi hér á landi. Gleðilegt sumar! Gæfuríkur 1. maí!

x

Alþýðumaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.