Alþýðumaðurinn - 19.06.1951, Side 1
XXI. árg.
17. júní hátíða-
höldin hér ó-
venju fjölmenn
17. júní hátíðahöldin fóru
fram hér í bæ samkvæmt til-
greindri dagskrá í hæjarblöðun-
um og á götuauglýsingum.
Veður var bjart, en fremur
kalt. Samt munu hátíSahöldin
þau fjölmennustu, sem hér hafa
orSiS, skrúSgangan óvenjufjöl-
menn, og á útiskemmtuninni viS
sundlaugina voru nær 3000
manns, aS því er teljurum taldist
til. ViS hiS nýja íþróttasvæSi,
sem nú var tekiS til notkunar i
fyrsta sinn (hlaupabrautin) var
Jíka mikill mannfjöldi saman-
kominn og dansinn um kvöldiS á
RáShústorgi var hinn fjörugasti
og mikil þátttaka, þegar á kvöld-
iS leiS.
------X-----
Fertugur er í dag Jón M. Arnason,
vélstjóri, Eyrarveg 1, Akureyri.
Véladeild S.Í.S. og
félag hér í Eyjafirði
Sjálfvirku steypumótin.
Véladeild Sambands íslenzkra
samvinnufélaga hefir fengiS til
landsins fullkomin tæki til afnota
viS þessar byggingar. Eru þaS
stálmót meS vökvaþrýstingslyftu
og sjálfvirk, svo aS þau eru
flutt upp turninn smátt og smátt
jafnóSum og byggingunni miS-
ar.
Hefir véladeildin tvö mót af
þessari gerS, annaS fyrir fjög-
urra metra víSa turna, sem meS
12 metra hæS taka 12—15 kýr-
fóður, og hitt fyrir 5 metra víða
turna, sem tekur yfir 20 kýrfóður
og eru 15 metra háir.
Hingað til hafa flestir viljað
4 metra turnana, en þó verða
nokkrir fimm metra turnar byggð
ir í sumar, aðallega norðanlands.
t
Vinna að hefjast.
Um þessar mundir er að hefj-
ast störf hjá byggingaflokki véla-
deildarinnar, sem byggir hey-
turna víðsvegar um landið. Er
TáSgert að um 15 turnar verði
reistir í sumar af þessum bygg-
ingaflokki, sem í eru fjórir menn.
Listdanssýningu
ætla þær Sigríður Ármanns,
Sif Þórz og Elly Þorláksson frá
Reykjavík að hafa hér í Sam-
komuhúsinu n. k. fimmtudags-
kvöld 21. þ. m.
Listakonur þessar eru taldar
beztar í sinni grein á íslandi, og
hafa tvær þær fyrsttöldu haft
danssýningar hér í bænum áður
við mikið lof og góða aðsókn og
eru því bæjarbúum að góðu
kunnar.
Ennfremur hafa listakonurnar
í hyggju að hafa sýningar á Húsa-
vík og ef til vill á Dalvík.
-----X------
Vatn, en ekki sjór á
göturnar
Bæjarráð hefir lagt fyrir bæj-
arverkfræðinginn, að hann láti
vökva göturnar með vatni, en
ekki sjó eins og gert hefir verið
undanfarið. Hafa bílstjórar og
garðeigendur kvartað mjög und-
an skemmdum af völdum saltsins.
samvinnubygginga-
munu annast verkið
í þann veginn er að koma til
landsins viðbótartæki til að
steypa um leiS rennur utan á
turninn fyrir opin, þar sem kast-
að er út úr turninum. Nær hún
frá jörð og upp að efstu brún
turnsins o ghefir til þessa verið
gerð úr tré. Hafa Svíar gert þá
endurbót, að kleift er að steypa
rennu þessa með turninum, og
er hún ódýrari og endingarbetri
en áður.
Turnarnir fljótsteyptir.
Ekki tekur nema um 90 klukku
stundir að steypa sjálfan turninn
við ákjóanleg skilyrði og er þá
unnið í vöktum dag og nótt, tveir
og tveir menn í einu. Mestur hluti
vinnunnar er unninn með sjálf-
virkum vélum, en það gerir það
mögulegt, að ljúka byggingunni
á svo skömmum tíma.
Hér í Eyjafirði er það sérstakt
samvinnufélag, sem sér um bygg-
ingu turnanna, og byggir það
félag þá 4 metra turna, sem
byggðir eru hér nyrðra en vinnu-
flokkur véladeildar S. í. S. stærri
turnana.
Þriðjudagur 19. júní 1951
Kantötukór Akur-
eyrar annar bezti á
norræna söng-
mótinu
Frétlir hafa nú borizt af því,
að Kantötukór Akureyrar hafi
hlotið viðurkenningu sem annar
bezti kórinn af þeim, sem þátt
lóku í norrænu söngkeppninni í
Stokkhólmi. Dæmt var eftir þjóð-
lögunum, en þeim söngþætti
kantötukórsins stjórnaði Áskell
Jónsson.
Á sunnudaginn var svo ráð
fyrir gert, að kórinn tæki þátt í
hátíðahöldum Islendinga og Is-
landsvinafélagsins í Stokkhóhni,
en norræna söngmótinu lauk á
laugardaginn.
___*____
Vitabygging
í Hrólfsskeri
í Eyjafirði
Um þessar mundir er verið að
undirbúa byggingu vita á Hrólfs-
skeri í miðju mynni Eyjafjarðar,
milli Ólafsfjarðarmúla að vestan
og Einbúa að austan.
VitaskipiS Hermóður hefir
flutt efni í vitabygginguna, og
flokkur verkamanna er kominn út
í skerið, sem er sex metra yfir
sjávarmál. Eiga þeir að hafazt
þar við, ef unnt verður vegna sjó-
gangs, unz vitabyggingunni er
lokið. En við því er búizt, að það
taki um tvo mánuði.
Viti þessi mun verða allmikil
bygging, og verða sjófarendum
við mynni Eyjafjarðar góður
leiðarv;sir.
Ferðafélagi Akureyrar
Kvöldferð verður farin annað
kvöld (miðvikudag 20. þ.m.) kl.
8 e. h. frá Ráðhústorgi. EkiS
verður hringferð um EyjafjörS.
Farmiðar seldir hjá Þorsteini
Þorsteinssyni, Sjúkrasamlagi Ak-
ureyrar.
Reykjavík—Þingvellir 23.—25.
júní. EkiS til Reykjavíkur á laug-
ardag og um kvöldið farið í ÞjóS-
leikhúsið eða aðra skemmtistaði.
Á sunnudag ekið til HafnarfjarS-
ar, og Hellisgerði skoðað. Svo
farið um Krýsuvík til HveragerS-
is og upp austan Sogsins á Þing-
völl.
Mánudag dvalið í Reykjavík.
HaldiS svo heimleiðis síðla þann
dag eða á þriðjudagsmorgun.
Væntanlegir þátttakendur verða
að panta farmiða eigi siðar en á
miðvikudag hjá Þorsteini Þor-
steinssyni. — Farmiðar 6eldir á
fimmtudag, ef næg þátttaka fæst.
Votlteysturiiar byggiir viia
I somar
22. tbl.
49 stúdentar brautshrdiir frd
Henntashóionum 0 lnreyri
Skólaslit VS, jfioní
S. 1. sunnudag var Menntaskól-
anum á Akureyri sagt upp í há-
tíðasal skólans að viðstöddu fjöl-
menni.
Skólameistari Þórarinn Björns-
son ávarpaði samkomuna og bauð
sérstaklega velkomna 10 ára
stúdenta, sem fjölmennt höfðu til
athafnarinnar í tilefni stúdentsaf-
mælis þeirra. Skólameistari skýrði
frá skólastarfinu. er verið hafði
með svipuSu móti og undanfarið.
99 nemendur voru í miðskóla-
deild, en alls í skólanum 318
nemendur. 65 nemendur gengu
undir landspróf, þar af 5 utan-
skóla og hlutu 33 framhaldseink-
unn. Stúdentsprófi luku 49, 30 úr
máladeild, en 19 úr stærðfræði-
deild. Af stúdentunum voru 16
konur. Hæsta einkunn við lands-
próf hlaut Gísli Sigfreðsson, Lög-
mannshlíð við Akureyri, 8,91,
gefið eftir einkunnarstiganum 0-
10, en hæstu einkunn við stúd-
entspróf hlaut Guðm. Eggertsson,
máladeild, 7.30, gefið eftir Ör-
stedseinkunnastiga.
AS lokinni skýrslu skólameist-
ara afhenti hann stúdentum próf-
skírteini, en síSan kvaddi sér
hljóðs Jóhannes El asson, lög-
fræðingur, og afhenti skólanum
að gjöf frá 10 ára stúdentum
málverk af frú Haldóru Ólafsdótt-
ur, gerðu af syni hennar Örlygi
Sigurðssyni, listmálara.
Loks ávarpaði skólameistari
hina nýju stúdenta sérstaklega
með stuttri ræðu.
Skólameistarafrú Margrét
Eiríksdóttir annaðist söngstjórn
við skólaslitin.
Hér fara á eftir einkunnir
hinna brautskráðu stúdenta:
MÁLADEILD:
Aldís Friðriksson, S.-I'ing.
Anna María Þórisdóttir, S.-Þing. I.
Ágúst Þorleifsson, Ef.
Árni Einarsson, N.-Þing.
Árni Sigurðsson, N.-Þing.
Björn Jónsson, Skag.
Bryndís Jakobsdótdr, Ak.
Guðmundur Eggertsson, Mýr.
Guðrún Björnsdóttir, Ak.
Gunnl. Tr. Skaftason, Sigluf.
Gyða Stefánsdóttir, Rvík
Haraldur Bessason, Skag.
Helgi Hjálmsson, Rvík
Hinrik Aðalsteinsson, Sigluf.
Hólmfríður Sigurðard., N.-Þing. I.
Ingi Helgason, Skag.
Ingólfur Guðmundsson, Árn.
Jóhanna Jónasdóttir, Ak.
Jón S. Arnþórsson, Ak. II. 5.59
Jón Ben. Ásmundsson, Mýr. II. 4.86
Jón Frlðriksson, Skag. I. 6.01
Magnús Slefánsson, Mýr. I. 7.04
Margrét Eggertsdóttir, Skag. II. 5.95
Málfríður Guðmundsd., N.-Þing. I. 6.16
Ólöf Pálsdóttir, Árn. 1. 6.41
Soffía eorgsdóttir, Sigluf. I. 6.44
Solveig Kolbeinsdóttir, Skag. I. 6.41
Stefán Jónsson, Hún. I. 6.92
Þórunn Sigurbjörnsdóttir, Ef. I. 6.62
Þórunn Þórarinsdóttir, Rvík I. 6.76
STÆRÐFRÆÐIDEILD:
Björn Þórhallsson, N.-Þing. I. 7.07
Bragi Jónsson, Sigluf. I. 7.09
Guðmundur Örn Árnason, Ak. II. 5.23
Guðni Ágústsson, Rang.. I. 6.98
Gunnlaugur Björmson, Rvík II. 5.13
Hermann Pálsson, S.-Múl. II. 5.30
Hjalti Jónasson, S.-Þing. II. 5.80
lngi Kristinsson, S.-Þing. I. 6.29
Jóhanna Þorgeirsdóttir, Akran. II. 5.26
Knútur Björnsson, Ilafnarf. II. 5.91
Kristinn Sigurðsson, Keflavík I. 6.44
Lárus Ilelgason, Gullbr. I. 7.00
Ólafttr Björgólfsson, Rvík II. 4.54
Sigurður V. Ilallsson, Ak. I. 6.33
Sigurður Ilelgason, Gullbr. I. 7.19
Solveig Arnórsdóttir, S.-Þing. 1. 6.37
Stefán Már Ingólfsson, Seyðisf. I. 6.03
Sverrir Hermannsson, Isaf. 1. 6.32
Valgarð Björnsson, Skag. I. 6.00
-----X------
Samnorræna
sundkeppnin
Ákveðið hefir verið, að sund-
laug bæjarins verði opin þessa
viku (auk hins venjulega tíma),
frá kl. 20.00—21.30 fyrir þá, sem
æfa vilja undir 200 metra sundið
eða ljúka keppni, og eru tíma-
bundnir á öðruni tíma dags.
Ættu sem flestir að notfæra
sér þetta, því að nú styttist óðum
að sundinu verði lokið.
Þeir, sem enn eiga eftir að
Ijúka 200 m. sundinu, og þurfa
ekki að æfa sérstaklega undir
það, ættu að synda sem fyrst, til
þess að flýta fyrir og forðast
þrengsli síðustu daga keppninnar.
-------------X------
Bergur Sigurbjörnsson
rekinn úr Framsóknar-
flokknum
STJÓRNIR Framsóknarfélags
Reykjavíkur og Félags ungra
Framsóknarmanna í Reykjavík,
hafa vikið Bergi Sigurbjörnssyni,
úr samtökum
er framboð
l. í.tu
7.23
I. 6.05
II. 5.36
I. 6.70
I. 7.06
1. 6.22
I. 7.30
I. 6.11
I. 6.05
I. 6.17
I. 7.02
I. 6.16
I. 6.41
6.20
1. 6.35
I. 6.43
viðskiptafræðing
sínum. Ástæða
I. 6.79Bergs í Mýrasýsh