Alþýðumaðurinn


Alþýðumaðurinn - 03.07.1951, Page 3

Alþýðumaðurinn - 03.07.1951, Page 3
Þriðjudagur 3. júlí 1951 ALÞÝÐUMAÐURINN 3 [khi hjd K.E.A. Miir li félags- sv«eði þess Út af grein í Alþýðumanninum 12. júní s.l.j þar sem ieidd voru rök að því, að Kaupfélag Eyfirð- inga ætti að leysa vandræði bænda með geymslu kartaflna á félagssvæðinu, hefir borizt eftir- farandi athugasemd frá kjötbúð- arstjóra KEA: Hr. ritstjóri! í Alþýðumanninum 12. júní sl. er sagt eftirfarandi: „Hjá Kaup- félagi Eyfirðinga hefir að sögn ónýtzt í vetur á 3. þús. tn. af kart- öflum vegna slæmrar geymslu, U S.l. haust er séð varð að kart- öfluuppskera mundi verða mun meiri en undanfarin ár hér á fé- lagssvæði KEA, var hafizt handa um útvegun húsnæðis til geymslu á kartöflum. — Fjárhagsleyfi var ekkert fyrir hendi til byggingar eða breytinga á húsum félagsins til þess að hægt væri að geyma í þeim kartöflur. Fyrir sérstaka lipurð og góð- vild hr. Gunnars Jónssonar fram- kvæmdastjóra nýju sjúkrahúss- byggingarinnar fékk KEA lánað húsnæði í nýju sj úkrahússbygg- ingunni til að geyma í nokkurt magn af kartöflum, eða um 1500 poka. Vitað var, að þetta var þó aðeins bráðabirgðaráðstöfun, því að bæði mundi hiti verða of mik- ill á kartöflunmn og einnig var búizt við að vinna mundi hefjast í nefndu húsnæði seinna í vetur. Það þóttu einnig líkur til að sala á kartöflum mundi glæðast, er kæmi fram á veturinn og því ákveðið að selja það fyrst, er þarna var geymt. Hiti reyndist þó meiri þarna en góðu hófi gegndi og voru kart- öflurnar farnar að spíra um ára- mót. Var þá sent burtu og brotn- ar spírur af þeim hluta, er þess þurfti með og varð rýrnun af þeim sökum inn 6% eða 45—50 tn. eins og meðfylgjandi vottorð sýnir: Við endurskoðun á kartöflum þeim, sem KEA fékk geymdar í nýja sjúkrahúsinu á Akureyri í vetur, gerði ég nokkrar athuganir á rýrnun þeirra, eftir að búið var að brjóta spírur af þeim og vega þær að nýju til afgreiðslu. At- huganir þessar sýndu um 6% rýrnun að meðaltali. Akureyri 22. júní 1951. A. Dalmannsson. í öðrum húsum, er kartöflur hafa verið geymdar í hjá KEA í vetur, hafa ekki komið fram nokkrar skemmdir á kartöflum. Akureyri 25. júní 1951 Sigm. Björnsson. Eins og grein sú, sem ofan- greind athugasemd á við, ber með sér, þegar hún er lesin í heild, var höfuðefni hennar það, að KEA ætti að leysa geymsluvandræði bænda með því að reisa hér í bænum — á markaðsstað og við höfn — stóra og myndarlega geymslu. Skiptir í því sambandi engu, hvort á 3. þús. tn. af kart- öflum hafi eyðilagzt í vetur í vörzlum KEA sjálfs eða á félags- svæðinu. Hitt er skiljanlegt, að kjötbúðarstjórann skipti það verulegu máli, hvort vara skemm- ist í hans umsjá eða ekki, og þyk- ir blaðinu sjálfsagt og skylt að biðja hann afsökunar á þessu ranghermi. Astæðan til ummæla þeirra, sem kjötbúðarstjórinn gerir athuga- semd við, var sú, að tveir fulltrú- ar á aðalfundi KEA skýrðu rit- stjóra Alþýðumannsins frá því, að nokkurt þjark hefði orðið á aðalfundinum út af verulegu tjóni, sem bændur hefðu orðið fyrir á kartöfluframleiðslu sinni sökum geymsluvandræða og geymsluskorts. Töldu þeir að um 2—3 þús. tn. mundu hafa orðið óhæf markaðsvara af þessum sökum, og skildist ritstjóranum að þetta hefði orðið í vörzlu Kaupfélagsins, en af athugasemd kjötbúðarstjórans, svo og viðtali við ýmsa bændur á félagssvæðinu virðist hitt nær sanni, að höfuð- tjónið hafi orðið á þann hátt, að sumt beinlínis ónýttist hjá bænd- um sjállum vegna lélegra geymsluskilyrða, en með sumt „brunnu þeir inni“, komu því ekki á markaðinn vegna snjóa og ótíðar, meðan markaður var fyr- ir kartöflurnar og þær í söluhæfu ástandi. Eins og fyrr er tekið fram, var höfuðefni umdeildrar greinar það, að KEA ætti að reisa stóra og mikla nýtízku kartöflugeymslu hér á Akureyri fyrir bændur í nærliggjandi sveitum, það yrði ódýrar en ef hver byggði smá- geymslu fyrir sig og þá yrði kart- öflurnar tiltækar á hafnarstað. Var í þessu sambandi bent á, hvað Kaupfélag Svalbarðseyrar hefði gert fyrir félagsmenn sína í þessum málum. Einn af félagsstjórnarmönnum KEA hefir haldið því fram við ritstjóra þessa blaðs, að hann teldi slíka stórgeymslu ekki réttu úrlausnina. Með því væru bænd- ur sviptir möguleikanum til þess að hirða um og flokka kartöflur sínar sjálfir yfir veturinn og hlæðist þá á kartöflurnar óeðli- lega mikill geymslukostnaður. •— Þetta eru að vísu nokkur rök, þar sem bændur hafa vinnuafl til þessa, en það er alls ekki alltaf, og svo er ekki losnað við þá miklu áhættu að „brenna inni“ með vöruna í ófærð og ótíð, auk þess sem ýmsar líkur benda til þess, að gera megi eina stóra geymslu betur ur garði en marg- ar smáar og kannske af vanefn- um gerðar. NÝKOMIÐ: Þvingur 6 stœrðir Hamrar 3 stœrðir Bakkasagir 2 stœrðir Stingsagir Þykktarmái Glerskerar Járnsagarblöð Slökkvitæki innanhúss og hleðslur í þau og fleira. KAU PFÉLAG VERKAMANNA Nýlenduvörudeild. Nýkomið: Alum. kaffikönnur — katlar — fiskspaðar — súpuausur — pottar — sigti Steikarpönnur Mjólkurbrúsar Kolaausur Trésleifar Trektar Teskeiðar Vatnsglös Barnadiskar með könnu Sítrónupressur og fleira KAUPFÉLAG VERKAMANNA Nýlenduvörudeild. Ahureyringar - Mývetningar! Daglegar áætlunarferðir frá Akureyri í Mývatnssveit eru byrjaðar. Farið frá Akureyri kl. 9 f.h. og frá Reykjahlíð kl. 2 e.h. ATH.: Þetta eru mjög hent- ugar ferðir í sambandi við Vaglaskóg. B. S. A. h.f. Símar 1909 (tvœr línur). Auglýsið ■ Alþýðumanninum. AUGLÝSING nr. 9, 1951. Samkvæmt heimild í 3. gr. reglugerðar frá 23. sept. 1947, um vöruskömmtun, takmörkun á sölu, dreifingu og afhend- ingu vara, hefir verið ákveðið að úthluta skuli nýjum skömmt- unarseðli, er gildir frá 1. júlí 1951. Nefnist hann „þriðji skömmtunarseðill 1951“, prentaður á hvítan pappír með svörtum og ljósbrúnum lit. Gildir hann samkvæmt því, sem hér segir: Reitirnir: Smjörlíki 11—15 1951 (báðir meðtaldir) gildi fyrir 500 grömmum af smjörlíki, hver reitur. Reit- ir þessir gilda til og með 30. september 1951. Reitirnir: SKAMMTUR 10,1951 gildi fyrir 500 grömmum af smjöri. Skammtareitur þessi gildi til og með 31. ágúst 1951. „Þriðji skömmtunarseðill 1951“ afhendist aðeins gegn því, að úthlutunarstj órnum sé samtímis skilað stofni af „Öðrum skömmtunarseðli 1951“, með árituðu nafni og heimilisfangi, svo og fæðingardegi og ári, eins og form hans segir til um. Allir aðrir skömmtunarreitir fyrir smjöri og smjörlíki en þeir, sem hér hafa verið nefndir, falla úr gildi frá og með deginum í dag. Geymið vandlega SKAMMTA 11—13 af þess- um „Þriðja skömmtunarseðli 1951“, ef til kæmi, að þeinv yrði gefið gildi síðar. Reykjavík, 30. júní 1951. Skömmtunarst'jóri. Ertu búinn ui synda?

x

Alþýðumaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.