Alþýðumaðurinn


Alþýðumaðurinn - 03.07.1951, Síða 4

Alþýðumaðurinn - 03.07.1951, Síða 4
4 ALÞÝÐUMAÐURINN ÞriSjudagur 3. júlí 1951 Samnorrænu §undkeppn' iimi §enn lokið Nú eru aðeins eftir nokkrir dagar þar til hinni Samnorrænu sundkeppni lýkur hér á landi. Til þessa er eigi hægt að segja annað en að keppnin hafi gengið að óskum. Þjóðin hefir í heild tekið henni vel. Allir sundstaðir eru notaðir. Meira að segja hafa þrír gamlir sundstaðir verið tekn- ir aftur í notkun og ein torflaug byggð. Aðsókn til sundstaðanna hefur verið meiri og almennari en dæmi eru til hér á landi. — Sérstaklega hefir kvenfólkið auk- ið sókn sína til sundstaðanna. Margir sundstaðir hafa komið á eða aukið sérstaka kvennatíma og hafa þeir alls staðar yfirfyllzt. ísfirðingar höfðu sett sér að ná 700 þátttakendum. Af þeirri tölu átti kvenfólkið að ná 300. Þær hafa nú náð 260. Að sundhöll Reykjavíkur hefir aðsókn kvenna þrefaldast. — Einn daginn sóttu 2400 manns sundlaugar Reykjavíkur, 900 sundhöllina og 500 komu í Naut- hólsvíkina. Frá sundlaugarlausum byggð- arlögum hefir fólk farið í stórum hópum langan veg til sundlauga. T. d. hafa Eyrbekkingar farið margar hópferðir til Hveragerðis og 70 íbúar þegar lokið keppn- inni. í Höfn í Hornafirði, þar sem synt er í kaldri tjörn, hafa 25 tekið þátt í keppninni. Mörg samhljóða dæmi mætti nefna frá öðrum byggðalögum og sundstöðum. — Af einstökum hreppum er þátttaka almennust, eða um 30%, í Biskupstungum, Skeiðum, Hrunamannahreppi og Mosfellssveit. — Árnessýsla mun vera hæst af sýslum, en Ólafs- fjörður af kaupstöðum. Hvað sem sigri í keppninni líð- ur, þá hefir þegar verið unninn stór sigur af þjóðinni með þess- ari auknu sundsókn. Þing hins norræna sundsam- bands setti íslandi hæstu jöfnun- artöluna, þ.e. 10.000, eða rúm 7% íbúatölu þjóðarinnar. Hinar Norðurlandaþjóðirnar hlutu jöfn- unartölur sem hér segir: Svíþjóð 150.000 eða 2.14% íbúafjöldans. Finnland 105.000 eða 2.63% íbúafjöldans. Noregur 35.000 eða 1.93% íbúafjöldans. Danmörk 40.000 eða 0.95% íbúafjöldans. Landssundnefndin hefir áætlað þjóðinni aðra tölu. Eftir fyrstu 20 dagana náðust 36.6% þeirrar tölu, en að loknum 37 dögum 70%. Tekst þjóðinni á þeim fáu dögum, sem eftir eru, að fylla mælinn? — Landsnefndin efar ekki að það takist. Hún veit að margir eru við sundiðkanir og þeim tekst flestum að synda 200 metrana. Hún treystir því að þeir mörgu, sem enn hafa dokað við með þátttöku, komi til keppninn- ar. Nefndin hefir reynslu fyrir því, að margir hafa efast um sundfærni sína og hafa beðið með að gera tilraun þar til þeir sjá hversu jafningjum tekst til. Hún treystir því að hinir yngri, sem eru of margir eftir með þátt- töku, komi, er þeir sjá hve vel hinir eldri hafa lagt sig fram, já, meira að segja blindir, lamaðir og fatlaðir. Æskunni er enn treyst, — til þessa hefir hún látið híða um of eftir sér. Vér vitum, að þessa síðustu daga muni aðsókn að sund- stöðum enn aukast, og því heit- um við á alla starfsmenn keppn- innar að búa sem bezt í haginn fyrir þá aðsókn, sem í vændum er. Það eina, sem skyggt hefir á framkvæmd keppninnar er, að ekki hefir verið unnt að afgreiða þau sundmerki, sem þátttakendur hafa óskað eftir að kaupa. Sumir telja, að fólk fari ekki til þátt- töku vegna þess, að það fái eigi keypt merki. Treystum vér því, að fáir hugsi þannig, en lands- nefndin mun leitast við að út- vega merkin og dreifa þeim þá daga, sem eftir eru af keppnis- tímanum. Þér, sem eigið eftir að taka þátt í sundkeppninni, en getið það, komið sem fyrst til þátttöku, évo að sundstaðirnir yfirfyllist ekki síðustu dagana. Ekki er að vita, nema fyrstu tilraunirnar mistakist. Frændþjóðirnar gerðu oss stór- an hlut að keppa að, vér höfum sjálf sett oss enn stærri hlut. — Stöndum einhuga, svo að hlutur íslands megi verða enn meiri en hann var oss gerður. Landssundnefnd samnorrœnu sundkeppninnar. Nýjo Bíó í kvöld kl. 9: Hæftur stórborgarinnar. („The Naked City“) Aðalhlutverk: Barry Fitzgerald Howard Duff Dorothy Hart Don Taylor. Bönnuð börnum innan 16 ára. AF LEIKVANGINUM Nokkrar athugasemdir og hugleiðingar um íþrótta- mól ó Akureyri að aflokinni vígslu nýju hlaupabrautarinnar. Niðurlag. Þær keppnir, sem ég hefi nefnt, eru Drengj ameistaramót íslands 3.—5. ágúst, ein fjölmennasta íþróttakeppni landsins, bæja- keppni við Vestmanneyinga 18.— 19. ágúst (samkvæmt mótaskrá Í.B.A.) og loks hefir komið til tals að reyna að koma hér upp Meistaramóti Norðurlands í frjálsum íþróttum (sbr. Knatt- spyrnumót og Handknattleiksmót Norðurlands). — Oll þessi mót krefjast vandvirkni, nákvæmni og mikillár vinnu. Enda þótt ég hafi sums staðar verið nokkuð harðorður og ef til vill smásmyglislegur í gagnrýni minni hér að framan, efast ég ekki um, að sumir, sem stóðu að Í7. júní-mótinu, hafi unnið þar vel eftir því, sem tími og aðstæð- ur leyfðu, en þeir hafa greinilega verið alltof fáir. Það þekkja ef- laust flestir að félagsþroski manna er á svo hörmulega lágu stigi að undirbúningsstörf sem þessi, ólaunuð og óþökkuð, mæða oftast á hinum örfáu ósérhlífnu, þeim, sem ábyrgðartilfinningu hafa. Það, sem mér þótti vel gert, var frágangur sjálfrar hlaupa- brautarinnar. Hún var vel merkt og ágætlega þjöppuð. Fánaskreyt- ingin var til sóma. Að þessu sinni skipti það meira máli en nokkru sinni ella, að mót þetta færi greiðlega fram og tæk- ist vel. Ástæðan er sú, að fyrirséð var, að óvenjumargir áhorfendur kæmu á völlinn, þar sem um sér- stök hátíðabrigði var að ræða, og þess vegna mátti það ekki koma fyrir, að áhorfendur færu leiðir og óánægðir þeim. Einmitt hið gagnstæða. Hér gafst alveg sér- stakt tækifæri til áróðurs fyrir frjálsar íþróttir, sem almenning- ur hér þekkir alltof lítið og met- ur því einnig lítils. Annars átti ég fyrir skömmu tal við mann, sem hefir mjög gaman af þessum íþróttum, en segist vera alveg að uppgefast á því að horfa á íþrótta- mót, vegna þess að ekkert sé gert fyrir áhorfendur, mótin gangi seint og upplýsingar vanti, og þetta er áreiðanlega ekkert eins- dæmi. — Þessar athugasemdir Nkrá yfir tekju- og eignaskatt, tekjuskattsviðauka og stríðsgróða- skatt, svo og skrá yfir gjöld til Almannatrygginga liggur frammi í skattstofu Akureyrar frá laugardeginum 30. júní til föstudagsins 13. júlí að báðum dögum meðtöldum. Kærum út af skránni skal skilað til skattstofunnar innan sama tímá. Akureyri, 30. júní 1951. Skattstjórinn á Akureyri Kristinn Guðmundsson. mannsins eru laukréttar. Hér vantar fræðandi og fjörugan kallara á íþróttamót og gott starfslið, sem skilur, að íþrótta- mótin eru haldin fyrir áhorfend- ur, auglýsing til að fá fjöldann með og auk þess skemmtun. En nú vildi svo vel til 17. júní að hlaupkeppnirnar voru reglu lega skemmtilegar, þó að ann markar væru á undirbúningnum Þeir mæddu aðallega á keppend unum. Hins vegar urðu áhorfend ur sérstaklega hart úti daginn áð ur á Þórsvellinum, og vonandi kemur slíkt aldrei fyrir aftur. Síri. Léreftstuskur kaupum við hæsta verði. Prentsmiðja Björns Jónssonar hf. ÍSLENDINGASAGNA- ÚTGÁFAN EFNIR TIL GETRAUNAR Svo sem auglýst var í síðasta tbl. Alþm., efnir íslendingaútgáf- an h.f. til nýstárlegrar og merki- legrar getraunar, sem búast má við að marga fýsi að þreyta. Svo sem alkunnugt er, hefir út- gáfa þessi verið mjög stórvirk á útgáfu fornrita vorra, og hefir þegar komið út á vegum hennar íslendingasögurnar i 13 bindum, Biskupasögur, Sturlunga og Ann- álar, 7 bindi, Riddarasögur, 3 bindi, Eddukvæði, Snorra-Edda og Eddulyklar, 4 bindi, Karla- Magnúsarsaga, 3 bindi og Forn- aldarsögur Norðurlanda, 4 bindi. Enn má svo geta þess, að nú er útgáfan með nýjan flokk riddara- sagna í undirbúningi. Eins og ljóst er af auglýsingu útgáfunnar, er getraunin miðuð við það, að úrlausnir hennar sé að finna í bókaflokkum þeim, sem útgáfan hefir gefið út, og eru verðlaun svo rausnarleg, að mikl- ar líkur eru til, að bækur þessar verði kapplesnar á næstunni, og það er fyrst og fremst tilgangur útgáfunnar að auka þekkingu manna á þessum sígildu þók- menntum vorum, áreiðanlega ekki sízt meðal unga fólksins. A |»rikosiii> Appelisiimr Sít roiiiii' nýkomnar. Kaugfélag verkamanna Nýlenduvörudeild. jSíMarstúlfuir vantar Óskar Halldórsson h.f. til Raufarhafnar, Fríar ferðir og kauptrygging, nýtt íbúðarhús, — 4 stúlkur í herbergi. — Á Raufarhöfn mega stúlkur vænta góðrar atvinnu. Upplýsingar hjá Helga Pólssyni, síma 1038 og 1538. TILKYNNING til sölumanna Laxórvirkjunarbréfa. Vegna brottfarar Tómasar Árnasonar hdl. úr landinu, hef- ir Baldri Guðlaugssyni, endurskoðanda, Akureyri, verið fal- ið söluumboð bréfanna á Norðurlandi í hans stað. Akureyri, 29. júní 1951. Sfjórn Laxórvirkjunarinnar. Gólfrenningur 70, 80, 90, 100 cm. breiður, sex gerðir, nýkominn. Kaupfélag verkamanna Vefnaðarvörudeild.

x

Alþýðumaðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.