Alþýðumaðurinn - 04.09.1951, Page 1
XXI. árg.
Þriðjudagur 4. september 1951
31. tbl.
Á Rafveita Akureyrar é vera eitt-
hvert fésugutski ií almenningi!
Meirihluti rafveitunefndar leggur til að
hitunartaxtar Rafveitunnar hækki um 50
prósent og elti þannig kolaverðið, enda
þótt tekjur hennar séu þegar okurtekjur,
sem aðeins hafa þótt réttlætanlegar vegna
fyrirhugaðra endurbóta á rafveitukerfi
bæjarins, endurbóta sem ganga mjög hægt
Ofan á meiningarlaust okur í mælaleigum
á nú að bæta meiningarlausu okri á upp-
hitun
Síldveiði eyflrzkra
og’ þingeyskra
ikipa
Svo sem alla Akureyrarbúa
mun reka minni til, voru taxtar
Rafveitu Akureyrar hækkaðir
stórlega á sl. vetri. Varð að vísu
ekki hjá því komizt að hækka þá
nokkuð, a.m.k. suma, en þó var
þar farið drjúgum freklegar í
sakir en nokkur sanngirni var í.
og var það allt rakið á sínum
tima hér í blaðinu. Eitt mesta
svivirðingarbragðið var að
hækka verulega hina rangiátu
mælaleigu, en hún er nú í þokka-
bót innheimt með vísitöluálagi,
svo að drýgsta gjaldið, er Raf-
veitan hefir nú af fátækum, spar-
sömum einbýlingum, sem haja
lélega rajurmagnsupphitun og
elda sér sjáljir, er að verða mœla-
leigan. Hana er ekki hægt að
spara, meðan mœlir er í íbúð-
inni, þó að allt annað verði og sé
sparað til hins ítrasta.
En meirihluti rafveitunefndar
virðist ekki að fullu ánægð með
hið velheppnaða dýrtíðarupp-
hlaup sitt í vetur. Dýrtíðina þarf
að auka meira! í gjaldskrá Raf-
veitunnar er semsé heimild til að
hækka hitunartaxtana í samræmi
við kolaverð, og í vikunni sem
leið samþykkti meirihluti raf-
veitunefndar, að hinnar nýju
kolahækkunar skyldi gæta með
fullum þunga í verði rafurmagns-
hitunar.
Þetta þýðir um 50% hœkkun á
nœturhitun og hitun með fast-
tengdum ofnum. Verður þá hit-
un með fasttengdum ofnum
DÝRARI en hitun með laus-
tengdum ofnum á heimilistaxta.
Þeir, sem samþykktu hið nýja
okur í rafveitunefnd, voru Sverrir
Ragnars, kaupmaður, Indriði
Helgason, kaupmaður og bæjar-
stjóri. Móti var Steindór Stein-
dórsson, en blaðinu er ekki kunn-
ugt um afstöðu Guðmundar
Snorrasonar, eða hvort hún var
einhver.
Ef bæjarstjórn Akureyrar sam-
þykkir þessa hækkun á næsta
fundi sínum. þá er hún að gera
tvennt í einu: undirstrika, að
Rafveitan skuli vera fésugutæki
bæjarins á almenningi, og leggja
nýjan dýrtíðarskatt á þá. sem
annars eru svo hamingjusamir að
þurfa ekki að kaupa nema lítið
af kolum.
Segja mætti, að einhver hækk-
un á hitunarrafurmagni væri sök
sér, ef henni væri varið til að
minnka á hinn bóginn dýrtíðar-
þungann á þeim, sem kolin verða
að kaupa, en svo er alls ekki. —
Þeir sem kolin kaupa, hafa eng-
an hagnað af, að rafurmagnið sé
hœkkað. 011 hækkunin kæmi að-
eins Rafveitunni til góða, drýgði
að vísu sjóði hennar, en staðfesti
hins vegar þann grun, að hún
beri annað ofar fyrir brjóstinu
en ódýra, hagkvæma og góða
þjónustu við bæjarbúa.
En fyrst við erum á annað
borð að tala um auknar tekjur
Rafveitunnar, er ekki úr vegi að
kasta fram tveimur spurningum:
Hvernig er með efniskaup
Rafveitunnar, eru þau gerð
eins hagkvœm og frekast er
unnt?
Og hvernig er með rekstur
Rafveitunnar, er hann eins ein-
faldur og ódýr og frekast er
unnt?'
Báðir þessir liðir eru svo gíf-
urlega stórir, að full ástæða er
til að gefa þessum tveimur spurn-
ingum gaum. Annast t.d. Rafveit-
an sjálf innkaup sín írá útlönd-
um eða hefir heildsali eða heild-
salar í Reykjavik Rafveituna að
mjólkurkú?
Þetta á almenningur heimtingu
á að fá að vita, áður en nýjar
hækkanir eru samþykktar.
Öll viljum við hag og heiður
Rafveitu Akureyrar, en við
krefjumst þess hiklaust, að hún
sé rekin með hag almennings fyr-
ir augum, hans og'einskis annars.
ATHUGASEMD.
Leigubílstjóri sá, sem getið hef-
ir verið í sambandi við áfenga
ölið, sem smygla átti í land á
Húsavík í sumar úr Lagarfössi,
hefir beðið blaðið að láta þess
getið, að hann hafi verið staddur
á Húsavík vegna fólksflutninga
og verið heðinn fyrir ölkassana,
án þess hann vissi, hvað í þeim
væri. Það sé því ekki rélt, hvað
sig snerti, að hann hafi komið
með tóma pappakassa frá Akur-
eyri undir ölið.
___
VIÐURKENNINGAR
FEGRUNARFÉLAGSINS
Eins og getið var í síðasta
blaði Alþm. efndi Fegrunarfélag
Akureyrar til hátíðahalda nokk-
urra 29. ágúst sl. í tilefni af 89
ára afmæli bæjarins.
Á kvöldskemmtuninni í Sam-
komuhúsinu var tilkynnt, hverj-
um Fegrunarfélagið hefði veitt
viðurkenningu nú í ár fyrir bezt
hirta skrúðgarða.
I. verðlaun hlaut skrúðgarður
Kristjáns Stefánssonar, Hríseyj-
argötu 10, II. verðlaun skrúð-
garður Ilaralds Jónssonar, Eyr-
arveg 25A og III. verðlaun skrúð-
garður Helga Steinars, Ægisgötu
24. — Ennfremur hlutu eftirtald-
ir skrúðgarðar skriflega viður-
kenningu: Eyrarlandsveg 27,
Laxagötu 7, BrekkugÖtu1 4,
Bjarmastíg 1, Brekkugötu 9,
Þingvallastræti 2, Brekkugötu 34,
Gilsbakkaveg 13, Munkaþverár-
stræti 17 og Brekkugötu 6.
Flestir, ef ekki allir, munu nú
hafa gefið upp alla von um meiri
síldveiði fyrir Norðurlandi á
þessu sumri. Hefir engin síld bor-
izt á land s.l. viku alla, enda regn
og norðangarður í veðráttunni.
Samkv. síldveiðiskýrslu Fiski-
félags Islands um fvrri helgi var
bræðslusíldaraflinn norðanlands
þá orðinn 354.754 mál, en var á
sama tíma í fyrra 175.929 mál.
Saltsíldin var nú orðin 85.239 tn.,
en á sama tíma í fyrra 53.247 tn.
Meðalafli var um fyrri helgi orð-
inn 2.136 mál og tn. á skip, en
meðalafli 6 síðustu ára var yfir
síldveiðitímann 2336 mál og tn.
og hafa þó flest árin verið léleg
aflaár og sum mjög léleg.
Afli flestra eyfirzkra og þing-
eyskra skipa verður þó að teljast
orðinn sæmilegur og sumra
prýðilegur. Nokkurra er að vísu
líka mjög lítill.
Samkvæmt fyrrgreindri skýrslu
var aflinn þessi (mál og tunnur
samtals):
Herpinótaskip:
Alclen, Dalvík 1029, Akraborg,
Akureyri 4347, Auður, Akureyri
4370, Bjarki, Akureyri 1497, Eld-
ey, Hrísey 2446, Eyfirðingur, Ak-
Sá óvani ríkir hér í bænum, að
kol eru seld úr portum, sem ekki
hafa steypt gólf. Svo er t. d. um
kolasölu KEA niðri á Tanga. Þeg
ar kolunum er svo mokað þar
upp á bíla eða í poka, urgast
portbotninn smátt og smátt upp,
en í honum er möl, sandur og
leir, svo að mörgum smálestum
skiptir árlega, sem bæjarbúum er
selt þannig af slíku „eldsneyti“.
Þegar svo botninn er orðinn
ískyggilega grafinn, er nýjum bíl-
hlössum af möl, sandi og leir ekið
í gryfjuna, og síðan er á ný byrjað
á sömu „eldsneytissölunni“.
Láta mun nærri að einn bíl-
farmur af möl, sandi og leir kosti
kolasalann um 30 kr„ en farmur-
inn er um 2 tonn. Nú er kola-
tonnið komið upp í 708 kr. heim-
flutt, svo að hver bílfarmur af
möl, sandi og leir, sem kolasalinn
selur sem kol, skilar 1390 kr. til
ureyri 984, Haukur I., Ólafsfirði
6228, Ingvar Guðjónsson, Akur-
eyri 5794, Kristján, Akureyri
2314, Njörður, Akureyri 1601,
Pólstjarnan. Dalvík 6877, Smári,
Húsavík 2552, Snæfell, Akureyri
4043, Stígandi, Ólafsfirði 4827,
Stjarnan, Akureyri 3894, Súlan,
Akureyri 5508, Sædís, Akureyri
2415, Sæfinnur, Akureyri 2778.
Hringnótaskip:
Bjarmi, Dalvík 3383, Björgvin,
Dalvik 2998. Einar Þveræingur,
Ólafsfirði 2740, Garðar, Rauðu-
vík 3512, Græðir, Ólafsfirði 720,
Gylfi, Rauðuvík 2826, Hagbarð-
ur, Húsavík 2270, Hannes Haf-
stein, Dalvík 3077, Minnie, Akur-
eyri 639, Ottó, Hrisey 1019, Pét-
ur Jónsson, Húsavík 3158, Sæ-
valdur, Ólafsfirði 1533, Ver,
Hrísey 666, Von, Grenivík 4041,
Vörður, Grenivík 4722, Þor-
steinn, Dalvík 3091.
Áður hefir verið skýrt frá afla
togarans Jörundar.
Sérstök ástæða er til að benda
á afla Grenivíkurbátanna beggja,
sem er ágætur, en raunar má líkt
segja um Dalvíkurbátana. Þeir
virðast allir hafa verið heppnir í
sumar nema Alden.
hans. Sjá allir, hvílík vörusvik eru
hér á ferðinni.
Hér er síður en svo verið að
halda því fram, að kolasalinn geri
þetta í rauninni að yfirlögðu ráði.
Ugglaust er þetta fyrst og fremst
framkvæmdarleysi að hafa ekki
steypt gólf í portið eða portin. En
hitt er þó jafnaugljóst mál, að það
er framkvæmdarleysi, sem kola-
kaupendur geta ekki þagað við.
ÓÞURRKAR
miklir og rigningar hafa verið
undanfarið um Eyjafjarðar- og
Þingeyjarsýslur, en þó hefir úr-
felli verið mjög misjafnt eftir
sveitum. Eru nú víða á þessum
slóðum mikil hey úti.
Drjúgum þurrviðrasamara hef-
ir verið strax og kemur vestur í
Skagafjörð, og sunnanlands er
sögð úrvalsveðrátta.
Tímabært að hætta að selja
möl og sand sem kol, þegar
smál. kostar kr. 708 heimílutt