Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.05.1940, Síða 10

Dýraverndarinn - 01.05.1940, Síða 10
34 D Ý RAV'E RNDARINN Um meðferð og aflífun loðdýra. ÞaS er sameiginlegt öllum mönnum, a’ö taka meiri þátt í kjörum þeirra málleysingja, sem þeir hafa umgengist, en hinna, sem þeir ef til vill hafa ekki séð. Eítir því sem viðkynningin er lengri verður sambandið nánara. Jafnvel flækingsrakki, sem allir í rauninni vilja vera laitsir við, vinnur sér á fáum dögum nokkra samúð, þó að ekkert komi þar til greina, annað en umgengnin ein. Öll þau húsdýr, sem maðurinn á yfir að ráða, verða því næstum óafvitandi meiri og minni vinir okkar, sem við tökum meira tillit til en villidýrsins, strax og eitthvað ber út af, þó gamlar venjur og ihugunar- leysi geri okkur oft of sljó fyrir ýmsu, sem aflaga fer í aðbúðinni. Hvað þessi viðkynning verður náin, fer nokkuð eftir lifnaðarháttum tegundanna, sem um ræðir og svo upplagi eigandans eða þess, sem dýrin umgengst. Refurinn er sú tegund „húsdýra", sem nýjust er hjá okkur og hefir haft næsta lítið af hjálpsemi mannanna að segja í hinum erfiðu lífskjörum, sem honum eru búin á fjöllunum; hann hefir ekki enn nema að mjög litlu leyti, samið sig að þeim breyttu lifnaðarháttum og þröngu hibýlum, sem honum eru ætluð. Þar af leiðandi þarf alveg á sérstakri vin- áttu og nærgætni að taka, ef gera á honum lifiö viðunandi, sem liúsdýri. En með nógu mikilli alúð og ástundun er hægt að vinna traust og vináttu dýranna og er þá um leið yfirstíginn einn alörðug- asti hjallinn, að gjöra elcli þeirra sæmilega staðfast- an atvinnuveg. Það er því bæði mannúðar- og hags- munamál, að búa svo vel að þessum dýrum og öðr- um, sem auðið er. Sá hugsunarháttur má ekki eiga sér stað, að lágfóta, livort sem hún er í girðingum eða á víðavangi, hafi ekki til neinnar slikrar sam- úðar unnið í nábýli við manninn á undangengnum öldum. Það má þó öllum vera ljóst, að hún hefir að eins breytt í samræmi við það náttúrulögmál, sem henni var liúið og hefir því ekki til neinnar refsingar unnið. Og kynni ekki að finnast eitthvað áþekt í pokahorninu hjá okkur sjálfum, ef vel væri leitað. Enginn skyldi þó skilja mig svo, að eg ætlist til, að refurinn sé látinn afskiftalaus í heimkynn- um sínum, þó að hann máske ætti á því einhvern rétt. Hitt meina eg fremur, að þar eigi engin gömul andúð að koma til greina, þó að hann sé veiddur af hagsmunalegri nauðsyn, sem verðmætt loðdýr, en skaðlegt búpeningi. . Þess verður þó að gæta, að ekki sé gengið svo á stofninn, að honum aí þeim sökum sé hætta búin, því það væri tæplega vansa- laust. Veiðiaðferðir, meðferð fanginna dýra (yrð- linga) og aflífun ber auðvitað að haga i fullu sam- ræmi við það, sem öðrum dýrum er sýnt, eftir því sem við verður komið, en á því er nokkur mis- brestur, eins og nú hagar til. Það er t. d. ekki óal- gengt, að stálpaðir yrðlingar, sem búnir eru að fá mjög mikið vit, séu — eftir að hafa verið svo sólar- hringum skiftir sveltir i greninu — settir, þegar heim kemur, margir saman í örlitla kassa, sykur- kassa eða því um likt, og látnir hírast þar í svarta- myrkri svo vikum skiftir, án þess að undan þeim sé hreinsað, eða annað um þá hugsað, nema hvað íleygt er í þá einhverju matarkyns á málum. Hefi eg sjálfur séð hvita yrðlinga tekna upp úr einum slíkuni kassa, þannig útlítandi, að ómögulegt var að greina hinn náttúrlega lit þeirra, nerna litillega á höfðinu, einkum kringum munninn. Slík meðferð er, auk þess að mega teljast mjög ómannúðleg, best til þess fallin, að gjöra dýrin al- gjörlega óhæf sem verðmæt loðdýr, því að yrð- lingar, sem orðið hafa fyrir slíku, ná sér venjulega aldrei, og kemur þetta því fyr eða síðar eigandanum sjálfum í koll, hvort sem hann á dýrin áfrarn eða selur þau öðrum. Það er ekkert heimili svo illa statt, að ekki sé kostur á, að liafa nægilega rúmt um yrð- lingana í kösstim, ef ekki er um annað en káss"1. að ræða, t. d. hafa tvo eða þrjá saman, eftir stærð (ekki einn og einn). Hafa svo heyrusl eða því um líkt undir í kössunum og skifta um það daglega. E. t. v. væri gott að bora nokkur göt á kassabotninn. svo að Jjvagið sígi þar niður jafnharðan. Þessi umbúnaður kostar ekki mikið, en hægt að láta fara sæmilega um dýrin eftir ástæðum, eina til tvær vikur, ef þrifnaðar er gætt. Enginn er þó að halda því fram, að illa. sé farið með alla yrðlinga, sem veiðast; sumir fara mjög vel með þá, sumir sæmilega og aðrir illa, alt eftir kunnáttu og upplagi. Elitt mun vera enn algeng- ara, að um yrðlinga, sem með skipum eru fluttir, ‘stunclum langar leiðir, sé ekki þannig búið, að hægt

x

Dýraverndarinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.