Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.09.1940, Page 5

Dýraverndarinn - 01.09.1940, Page 5
Rekstrar og rétta- störf. 1 skemtilegri smásögu eftir Jakob Thorarensen, sem HneyksliS heitir, er sagt frá ræSu góSs bónda fluttri í skilnaöarsamsæti, þegar presturinn þeirra flutti úr sveitinni búferlum. RæSuna má skilja sem háíS upp á þá veraldar- hyggju, sem lítt kann a'S meta andlega hluti. Bóndinn gaf þaö í skyn, aö presturinn hafi ekki veri'ö mikill kennima'Sur, en hann hafi kunnaö aö l)úa, allar skepnur hafi veriö feitar og vel meö fárnar hjá honurn, og bætti því viö, aö frá sínum bæjardyrum séð, væri það besta guösþjónustan, aö láta öllum skepnum líöa vel, og aö sagan hafi sýnt þaö, aö þegar skepnunum leiö vel, þá hafi mann- fólkinu einnig vegnaö vel. Þaö má líta öðrum augum á þessa sögu og þá veröa bóndinn og presturinn fulltrúar þeirrar lífs- stefnu, sem vill draga úr þjáningum og lætur öll- um líöa eins vel og föng eru á. Þaö dregur ekki úr gildi þessara manna, þó þeir noti þekkingu sína og reynslu i þágu þessarar hugsunar — séu bú- menn, — og það kannske svo áberandi búmenn, aö hin ytri guöræknistákn sitji á hakanum. Og um þaö verður aldrei deilt, aö þaö er göfugmannlegri breytni, þó andlaus kunni aö þykja, en aö lesa hús- lestra og syngja sálma á meðan ærnar eru aö vesl- ast upp úr hor, og stóöhrossin hrekjast úti hirðu- laus fyrir öllum veörum, eins og var mikill siöur hér á landi fyrrum, Ef menn vilja ganga inn á þaö sjónannið, aö viröa ræöu bóndans á betri veg, þó mætti einnig sættast á þá skoðun, að það sé aukaatriði frá sjón- armiði dýranna, hvort þeim er sýnd nærgætni vegna hagnaðarvonar eigandans, eða al' æöri mannkost- um. Dilkurinn gerir sér enga rellu út aí því, hvort honum er hlíft við fruntalegu ullartaki til þess eins að spilla ekki kjötinu með marblettum, eða vegna þess hugarfars, sem engri skepnu vill mein vinna. Dýravinir mega ekki ganga framhjá þeirri alvar- legu staðreynd, að „svo langt nær mannúöin manna, sem matarástin nær“, eins og örn Arnar sagöi. 1 þessari grein veröur gerö tilraun til að draga fram rök fyrir því, að þaö er hagfræðilega rétt aö umgangast dýr samkvæmt hugsjónum dýravina. Þar sem tilfinninguna vantar fyrir þessum hlutum á skynsemin aö koma í staöinn. — Þeir sem berir veröa að dýraníðslu, eiga hiklaust að missa rétt- inn til þess að eiga eöa umgangast dýr. í riti einu þýsku, sem gefið var út í tilefni af 1000 ára afmæli Alþingis 1930, gaf aö lita fágæt- an uppdrátt af Islandi, þar sem öræfum öllum er skift niöur í leitarsvæöi og upprekstrarlönd. Það leyndi sér ekki, að réttafyrirkomulagið hefir þótt all-merkilegt, að heill kafli skyldi vera helgaður því. Og óneitanlega er fyrirkomulagið merkilegt og þrauthugsað; þar hefir aðeins eitt gleymst, og þaö er, að féð eru lifandi verur, sem þarfnast nær- ingar og hvíldar. Fyrir mörgum árum ritaði eg um þetta efni í félagsblaö U. M. F. Aftureldingar. Því var lítill gaumur gefinn. Síöan hefi eg hugsað margt um þessi mál og safnað nokkurri reynslu. Ráðstafanir, sem gerðar hafa verið vegna mæðiveikinnar, hafa

x

Dýraverndarinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.