Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.11.1946, Blaðsíða 8

Dýraverndarinn - 01.11.1946, Blaðsíða 8
54 DtRAVERNDARINN sc bæði synd og skömm að fara illa með nokkra lifandi skepnu, vegna þcss, að þær finna lil meina sinna eins og mennirnir, og þó ofl verði að deyða dýr, cr ómcnnska að kvelja þau. kað er mikil vcnja nú á dögum, þcgar ræli er um að bæta bugarfar barna og unglinga, að vclta allri ábyrgð á vissar slctlir manna, segja, að ]>clta eigi mæðurnar, kennararnir og prestarnir að innræta þeim. Vist er um það, að allir ])essir aðilar liafa mikilsvert starf með höndum, en það dregur ekki úr ábyrgð annarra, sem umgangast börn, þvi að Iiver, sem er barni samtíða, er því að ein- livcrju leyti seni móðir, kennari eða prestur, kennir þvi eittlivað, gott eða illt, með orðum eða eftirdæmi. Þegar þess er gælt, að börn taka sér miklu meira til eftirbreytni ])að, sem þau sjá gert en það, sem þeim er sagt, að gera skuli, má öllum vera Ijóst, hve miklu máli ])að skiptir, hvernig börnin sjá hreytt við dýr, Iivort heldur ])að eru yfirmenn eða undirgefn- ir, Iiúsbændur eða þjónar, sem þar ciga hlut að máli. Fýrsta og frumstæðasta þörf dýra og manna cr þörfin á fæðu. Því mætti ætla, að menn kostuðu fvrst og fremst kapps um það, að sjá dýrunum fyrir nægu fóðri. Þar hefir þó oft- ast hvað mest verið áfátt, og liggja til þess ýmsar orsakir, cins og áður Iiefir verið drep- ið á. Því ælti nú að hefja sókn á þeim vetl- vangi,i og er það ])ví auðveldara, þar sem ís- lendingar eiga yfirleitt góða daga og þeir munu teljandi, sem betur fcr, er ekki hafa nóg til viðurværis sér og sínuin. Það ætli að mýkja hugi manna og verða dýrunum til blessunar um ókomin ár. Flest börn kynnast hundum og köttum fyrst allra dýra, og oft eru hvutti og kisa beztu Icikfélagarnir, þar sem eitl harn er á bæ. Hús- freyjan, scm telur jafn sjálfsagt að gcfa hund- inum og kettinum á vissum timum eins og að bera mat á borð fyrir fólk sitt, gefur börn- unum belra eftirdæmi en hin, sem talar far- urt um, hvc Ijótt sé að fara illa með dýr, en gleymir þó að uppfylla hrýnustu þarfir þeirra. Börn eiga ekki að alast upp við þá hugsun, að það sé eitthvert sérstakt góðverk, en eng- in skylda, að gefa dýrum. Hver sá, sem tek- ið liefir dýr i þjónustu sina, er um leið bæði lagalega og siðferðilega skyldur til að sjá þvi fyrir fóðri, ekki sizl fyrir þá sök, að dýrinu er varnað máls og getur því ekki sjálft „kveð- ið sinnar þurftar“ cða gerl nokkra kröfu lil eiganda síns. .Tafnframt þessu skal á það minnzt, að þótt húsdýrin séu ofl leikfélagar barnanna, mega þau ekki vera leikföng þeirra, sem börnum finnst vandalaust að fara með, enda virðist vera furðu auðvelt að innræta þeim það. Stundum má sjá á sveitabæjum lióp hávaða- samra og fvrirferðarmikilla barna, sem alltaf sýna dýrunum vægð og velvild í viðskiptum, af ])ví að þau sáu aldrei annað fyrir sér. Þcss má einnig geta með virðingu, að sumar ung- ar mæður nú á dögum, sem gefa börnum sin- um gerfidýr (bangsa og þess konar) að leik- fangi, ganga ríkt eftir því, frá byrjun, að ekki sé farið óþyrmilega með dýr þessi, og leggja þannig trygga undirslöðu undir fagra og sjálf- sagða venju. Þegar börnin stækka, fylgja þau þeim full- orðnu í fjós og hlöðu. Það er staðreynd, að kýrnar hafa yfirleitt átt hczta ævi íslenzkra húsdýra, a. m. k. hafa þær oflast nær feng- ið nægilegt fóður, ])óll stundum hafi viljað út af bera með nærgætni i öðrum efnum. Nú hefir líðan þeirra þó slórum batnað á síð- ari árum, fjósin viðast björt og loftgóð, víða sjálfbrvnnir, svo að kýrnar geta drukkið eft- ir þörfum o. s. frv. Þá er gaman að vekja at- hygli barna á, hve miklu betur dýrunum b'ð- ur á þennan liátt, hve ánægjulegt og sjálfsagl ])að cr, að hafa vilja og mátt til þess að búa vel að þeim, þar sem þau lifa öllu sínu lífi i þarfir mannsins og eru að lokum deydd honum til viðurværis. Mörg eru líka tækifær- in, þar scm annars staðar, að vckja athvgli barna á nærgætni þeirri, sem sýna þarf dýr- um, og að ckki á sama við þau öll. Kýr má I. d. ckki reka hart vcgna þess, hve þung- lamalegar þær eru á fæli, cn hrossum þykir aftur á móti gaman að hlaupa þar sem lands- Iag lcyfir. Snemrna komast börnin einnig í kynni við sauðféð. Þau reka það frá túnuin á vorin, þar

x

Dýraverndarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.