Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.09.1959, Blaðsíða 10

Dýraverndarinn - 01.09.1959, Blaðsíða 10
minni en 120 cm, nema fyrir ungviði, enda séu hliðar þá jafnan svo háar, að skepnan geti staðið eðlilega án þess að ná upp fyrir þær. Meðan á flutningi stendur skal skýla gripunum með segl- um og ábreiðum. Þegar margir gripir eru fluttir í einu, má flytja þá í stíum, og skal velja saman í stíu gripi af svipaðri stærð og aldri. Að vetrarlagi skal ávallt flytja gripi í yfirbyggð- um eða yfirtjölduðum bifreiðum. Hrossum skal eigi ætla skemmri hvíld en einn sólarhring að loknum flutningi með bifreið eða skipi. Hryssur og kýr, sem komnar eru að burði, má ekki flytja með skipum eða bifreiðum. 5. gr. Sýna skal sauðfé fyllstu nærgætni við smölun og rekstur, og forðast ber að hundbeita það um nauðsyn fram. Þegar sauðfé eða svín eru flutt með bifreiðum, skal ávallt hafa gæzlumann hjá gripunum, jafn- vel þó að um skamman flutning sé að ræða. Bifreiðar þær, sem ætlaðar eru til sauðfjár- flutninga, skal útbúa sérstaklega til þeirra nota. Pallgrindur skulu þéttar og sléttar og eigi lægri en 90 cm. Flutningspall skal hólfa sundur með traustum grindum í stíur, er rúmi eigi yfir 12 kindur, Dyraumbúnaður skal vera traustur og öruggur. Þegar um langan flutning er að ræða (yfir 50 km), skal flutningspallur hólfaður sund- ur í miðju að endilöngu, svo að engin stía nái yf- ir þveran flutningspall. Flutningspall eða stíur skal strá hæfilega miklum sandi eða heyi til þess að draga úr hálku. Leitazt skal við að flytja fé á meðan dagsbirtu nýtur. Verði því ekki við komið, skal hafa ljós á bifreiðarpalli, svo að vel sjáist um allan pallinn meðan á flutningi stendur. Til þess að forðast hnjask, mar og meiðsli skal búa svo um, að unnt sé að reka búfé á flutnings- pall og af honum aftur. 6. gr. Hunda, ketti, grísi og fugla skal flytja í köss- um svo rúmum, að dýrin geti staðið og legið í þeim. Ein hlið kassans eða lok skal gert úr neti eða rimlum til þess að tryggja næga loftrás. Ef flutningur tekur lengri tíma en 12 klukku- stundir, skal sjá dýrunum fyrir nægu fóðri og vatni til drykkjar. Fugla má ekki flytja bundna, hefta eða í pokum. 7. gr. Með flugvélum má einungis flytja dýr, sem eru fullkomalega heilbrigð. Dýr, sem komin eru að burði, má ekki flytja með flugvélum. Vanda skal umbúnað sem bezt, svo að engin hætta sé á því, að dýrin losni meðan á flugferð stendur. Svo skal um búa, að hægt sé 'að fóðra dýrin án þess að taka þau úr stíum eða búrum, þar sem þau eru geymd. Búr og stíur skulu vera svo rúm- góðar, að dýrin geti staðið og lagzt í þeim eftir vild. Ef fóðra þarf dýr meðan á flutningi stendur, skal eigandi sjá um, að þeim fylgi hentugt og gott fóður, ásamt leiðbeiningum um, hvernig fóðrun skuli háttar. Sé flogið í mikilli hæð, skal geyma dýr í þeim hluta flugvélarinnar, þar sem er hæfilegur hiti og loftþrýstingur. 8. gr. Um mál, er varða brot á reglugerð þessari og refsingar fyrir þau, fer samkvæmt 21. gr. laga um dýravemd nr. 21 13. apríl 1957. 9. gr. Reglugerð þessi er sett samkvæmt lögum nr. 21 13. apríl 1957 og öðlast þegar gildi. I menntamálaráðuneytinu 6. sept. 1958. F.h.r. Birgir Thorlacius Ásgeir Pétursson. GJAFIR OG ÁHEIT Sigríður Höskuldsd., Vatnshorni, Skorradal.. gjöf 70 kr. Ása Tryggvadóttir, Arnarbæli, Fellsströnd .. — 70 k.r Kristjana Jónsdóttir, sk.stj., Kirkjubæjarsk.hv. — 100 kr. N. N........................................ — 50 kr. N. N........................................ áheit 5 kr. 58 DÝRAVERNDARINN

x

Dýraverndarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.