Dýraverndarinn - 01.08.1962, Blaðsíða 13
Slys
Svarta-Péturs
SETT í LJÓÐ
UNDIR SAMA LAGI
OG DALAKOFINN
Þá heyrðist voða emjan, því hurðin lenti á Pésa
og rófuna á honum braut.
Svarti-Pési oftlega var fóturn okkar fyrir;
hann fleygði sér á gangveginn og lá þar alveg kyr.
Við stuncLum rákum tærnar heldur þjösnalega í þúfu,
og þúfan rak upy ógnarvein og hentist fram í dyr.
Kvöld eitt elti Svarti-Pési Palla litla í fjósið,
og Palli bar þar hey fyrir bæði kýr og naut,
fór út og slcellti hurðu, — þá heyrðist voða emjan,
því hurðin lenti á Pésa og rófuna á honum braut.
Þeir komu báðir inn — og þá bleikur var hann Palli,
en bar sig vel hann Pési og fór að heimta mat, —
hann reyndi að setja upp stýrið, og strax var farið að brosa,
því að stýrið var svo kátlegt — hann ekki reist það gat.
Það brotið var í miðju, — sem öfugt v-aff það virtist,
— æ, það verður ekki mögulegt að bæta honum þennan skell.
En hugsið ykkur muninn, þegar Pési stóð hér státinn
og stýrið hans varð myndarlegt og alveg þráðbeint e-ll!
Það brotið var i miðju, — sem öfugt v-aff það virtist.
ÖÝRAVERNDARINN
45