Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.09.1962, Síða 10

Dýraverndarinn - 01.09.1962, Síða 10
um. Þeir voru annars spakir, en graslendið var lítið þarna innan um urðirnar — og íegnir voru hest- arnir og heimlúsir, þegar við lögðum á stað. Ég var hrædd um fæturna á Jarpi í urðargrjótinu, en hann tiplaði léttilega innan um stórgrýtið, en Rauð- ur var augsjáanlega ekkert hrifinn af grasapokan- um, sem kominn var fyrir aftan hnakkinn, því að hann tók smá fjörkippi. Skjóni var þó alltaf jafn- rólegur, steig langt og skilaði vel áfram og var á undan hinum hestunum. Við fórum sömu leið til baka, en þegar lieimalandið var að hverfa, leit ég aftur með söknuði. Sannarlega hefði ég viljað dvelja þarna lengur. En nú íórum við niður með gilinu, og Bæjaríjallið reis brátt að baki okkar. Við vorum fljótlega komin ofan á tún eyðibýlisins og áðum og töluðum um kindur og göngurnar, sem yrðu rétt bráðum. Ég settist og starði án afláts á íjallið hinum megin í dalnum, beint á móti, því þar var nefnilega girðing alveg upp i kletta. Það gæti verið betra að aðgæta, hvort engin kind sæist þar föst í vír. Nei, ég sá ekkert athugavert, ekki einu sinni nokkra kind nálægt girðingunni, aðeins þrjú hross þarna skammt frá. En girðingin lá líka yfir ána — og þar á nesoddanum hérna megin sá ég liggja eitt- hvað hvítt. Ég horfði lengi á þetta, en sá það ekki hreyfast. Það virtist ekkert lít með þessu, og engin kind var nokkurs staðar nálægt. Ég vakti athygli piltanna á þessu, sem ég var að horfa á, og við ræddum um það góða stund, hvort þetta gæti verið kind eða stór ullarlagður. Samferðamennirnir fóru strax að tína saman hestana, því okkur kom saman um að aðgæta þetta betur. En ég gat ekki beðið. Ég hljóp niður túnið og labbaði með fram varnargirðingunni, því það var blautt um í flóan- um, og þegar ég kom ofan undir nesoddann, sem skarst fram í ána, spratt þarna upp hvít kind, því kind var þetta, sem ég hafði séð. Kindin ætlaði að hlaupa burtu, en hún komst ekki langt, því hún var föst í girðingunni. Ég stóð þarna hissa og ráða- laus, þangað til piltarnir komu og tóku kindina. Vasahnífurinn kom enn í góðar þaríir til að skera vírinn úr ullinni. Þetta var gemlingur, og var hann með mínu marki. Sveinn dró hann yfir ána, burt úr prísund- inni í vírnum, og gemlingurinn hljóp jarmandi upp hlíðina hinum megin — upp í lrelsið. Annar girðingarstrengurinn var slitinn, og það var annar lausi endinn, sem hafði flækzt í ullinni, eða kannski vírinn hafi slitnað á meðan gemling- urinn barðist við að losa sig. Samferðamenn mínir gerðu við girðinguna áður en við yfirgáfum staðinn. En í huganum blessaði ég þá stund, þegar við ákváðum að fara þennan dag til grasa og völdum þessa leið út í heiðina. Helzt hefði ég viljað snúa við og athuga girðinguna lijá næsta eyðibýli, sem var hér ofar i dalnum, en nú var kornið kvöld, og ég huggaði mig við það, að göngurnar yrðu næstu daga og þá yrði aftur riðið hér um. „Hér lýkur svo sögunni," sagði Anna írænka um leið og við stóðum báðar upp úr lautinni okkar. „Af þessu getur þú séð, hvað allar vírflækjur og lélegar girðingar geta verið kindum hættulegar. Þess vegna gróf ég vírflækjuna áðan.“ „En hvað væri })á liægt að gera?“ spurði ég Önnu. „Það þarf að taka upp og flytja burtu girðingar, sem eru kringum þessar afræktu jarðir. Það eru mörg býli, sem leggjast nú í eyði hér á landi, og það þarf stórt átak til að l'jarlægja allar þær girðingar, sem farnar eru að fyrnast og bila og eru orðnar skepnum stórhættulegar.” Sem betur fer, er nú þegar farið að hreyía þessu máli í blöðunum. Og meira að segja voru sendir vinnuflokkar um nágrenni Reykjavíkur í fyrrasumar til að safna saman vírflækjum eftir setuliðið og flytja burtu, svo þær ynnu ekki skepnum mein. Ég vildi óska þess, að sveitafélögin og Samband dýravernd- unarfélaga íslands tækju þetta mál að sér og réðu því farsældlega til lykta sem allra fyrst. 58 DÝRAVERNDARINN

x

Dýraverndarinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.