Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.09.1962, Page 13

Dýraverndarinn - 01.09.1962, Page 13
ara sinna, alltaf hýr og glaður og fullur af trausti a Guð gróðrar og mildi. Er öllum, sem komust í kynni við hann, að honum mikil eftirsjá — og þakk- lr og blessun hundraða manna fylgja honum yfir í þann heim, sem hann var viss urn að mundi veita honum aðstöðu til nýrra starfa í þágu þroska og göfgi, líknar og ljóss. Hann átti oft hin síðari ár tal við mig, kom stund- urn vikulega á heimili okkar hjóna, og sannarlega var hann velkominn gestur. Hann sagði mér í stór- um dráttum sögu sína og þroska síns. Segi ég hér tvær smásögur, sem sýna vel gerð hans, hve óhlífinn hann var við sjálfan sig og sannur í viðleitni sinni til að þroskast og göfgast. Vel ég þessurn stuttu minn- ingarorðum og sögunum þann stað í blaðinu, þar sem því efni er ávallt skipað, sem sérstaklega er ætl- að „yngstu lesendunum", þó að minningarorðin og sögurnar hæfi engu síður sem lestrarefni öðrum les- endum. En Jjví vel ég Jressu efni þennan stað, að mér Jjykir æskilegt, að einkum þeir, sem eru á bernsku- og æskuskeiði, festi sér í minni einlægni Sigmundar Sveinssonar, hið falslausa og hreina í fari hans, en Jrað lagði hann við síaukna rækt, — kærleikinn til náungans — og Jrá einkum til allra manna og dýra, sem bágt áttu — og trúin á algóðan Guð og föður og græðara allra meina — voru orðin honum allt. Fyrir þjónustuna við Jætta lifði hann og hrærðist mörg seinustu ár ævinnar. MÚSIN Á MOSFELLSHEIÐI. „Það var einu sinni sem oftar,“ sagði Sigmund- ur, „Jægar ég var á Brúsastöðum, að ég þurfti að skreppa til Reykjavíkur að vetrarlagi. Það var gadd- ur á heiðinni, rifahjarn, og því bezta reiðfæri. Ég söðlaði Jrví hest rninn og lagði af stað. Þetta var snemma morguns, og ég borðaði ekkert, áður en ég fór, hafði alls ekki lyst á mat, en ég hafði mat með mér í hnakktösku minni. Ég hafði alltaf nesti á ferðalögum. Ég held Jrað hafi verið J)ví að Jiakka, að mér ofbauð ungum sú fásinna Suðurnesjamanna að fara ævinlega matarlausir á sjóinn, Jjví ég var ynnilega sannfærður um, að það hefði fyrst og íremst orðið mörgurn sjómanninum að bana — að margur báturinn, sem fórst, mannaður úrvalssjó- mönnum, hefði komið að landi, ef þessi eindæma óvani heíði ekki ríkt á Nesjunum. Ég lór ekki hart, vildi ekki sveita hestinn, og Jjeg- ai' ég kom að stórum steini vestarlega á heiðinni, Sigmundur Sveinsson. var ég orðinn matlystugur. Ég fór svo af baki, náði mér í smurt brauð úr töskunni. Ég átti brauð handa hestinum, og svo snæddum við ])á báðir, félagarnir. Þegar ég hafði etið við hæfi, spennti ég ólarnar á hnakktöskuna og fór á bak. Svo hélt ég af stað. En hesturinn var ekki kominn nema nokkur spor, Jreg- ar ég leit um öxl, var vani minn að hyggja að því, hvort mér hefði ekki orðið á að skilja eitthvað eftir í áningarstað. Og viti menn: Ég sá, að hagamúsar- kríli var komið Jjangað, sem ég hafði setið, og var að tína upp rnolana. Æ, Jjað var verst, hvað lítið var Jjarna að fá. Nei, Jjetta dugði ekki! Ég tók í tauminn á hestinum og stöðvaði liann. Svo fór ég af baki eins hljóðlega og mér var unnt, og síðan losaði ég tösk- una, opnaði hana og tók upp úr henni stóra brauð- sneið með smjöri og kæfu. Svo leit ég Jrangað, sem músin halði verið, bjóst við, að hún væri horfin í holu undir steininum, Jró að ég helði farið varlega. En þarna stóð Jrá vesalingurinn og horfði á mig, og ég gat ekki betur séð en hún væri alls óhrædd. Ég brosti við henni, og svo færði ég mig hægt og hik- laust nær henni og braut brauðið í rnola, sem ég taldi, að yrðu henni nokkurn veginn viðráðanlegir. Það var hörkufrost, og mér var orðið verulega kalt á höndunum, en ég hélt sarnt áfram að mola niður brauðið. Og hvað heldurðu? Músin bara kom, fór sér rólega, lét upp í sig eins mikið og hún kom ])ar fyrir og trítlaði síðan að steininum, hvarf þar niður, D ÚUVERNDARINN 61

x

Dýraverndarinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.