Dýraverndarinn - 15.05.1916, Side 1
r
1916. Reykjavík, 15. maí. 3. blað.
SUNDVÖTN
Flestum verður aí> líkindum sú stund minnisstæS, er þeir
sáu i fyrsta sinn hestahóp rekinn út í sundvatn. Meöan hest-
arnir eru þeim feröum óvanir, fyllast þeir beig og kvíöa, þegar
]>eir sjá aö þeim er ætlaö aö fara yfir straumharöar og breiöar
ár. Óttann og kvíöann má lesa úr augum þeirra, og þeir nötra
oft af hræöslu, og foröa sér í lengstu lög. En loks láta þeir
undan svipuhöggunum og leggja út í.
Ef ekki er mjög aðdjúft, nema þeir brátt staðar, og vilja
snúa aftur til sama lands, en þá hefst grjótkastið á móti
þeim, svo að nauðugir viljugir verða þeir að leggja út i straum-
inn, út í það sem þeir v i t a aö er hin mesta svaðilför, og sem
þeim óar viö eins og lífshættu.