Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 15.05.1916, Qupperneq 6

Dýraverndarinn - 15.05.1916, Qupperneq 6
38 DÝRAVERNDARINN Segjum aö fortSagæslumennirnir kæmu bændum í skilning um þetta á næstu árum. Dýraverndunarnefndir hafa samt'sem á'ður nóg að gera. Því dýraverndunin er íólgin í fleiru en því að forða búpeningi frá hungurdauða, og er of langt upp aö telja, enda óþarft. Dýraverndunarfélögum kann að reynast erfitt að halda uppi. Einhverjir dýravinir eru til i hverri sveit. Ef þeim lánast ekki að stofna dýraverndunarfélag og halda lífinu i því, ættu þeir að reyna að koma því til leiðar, að dýra- verndunarnefnd yrði kosin fyrir sveitina. Ef í henni eru góðir og samtaka menn, lætur hún margt gott af sér leiða, meðal annars það, að blása lífsanda framkvæmdar í þau góðu dýra- verndunarlög, sem vér eigum. HROSSARÉTTIRNAR Á SAUÐÁRKRÓKI í fyrra haust, 1914, dvaldi eg nokkra daga á Sauðárkróki um og yfir miðjan októbermánuð; var veður fremur slæmt þá dagana, oft bleituhrið og ofsi. Eins og eðlilegt er, um þann tíma árs, voru fjölda margir sveitamenn staddir á Sauðárkróki með fé til slátrunar, og hross sín til að flytja heim á þarfir sínar eins og vanalega er. Var mér einn dag gengið fram hjá hrossarétt sameinuðu versl- ananna; var hún alveg full af hrossum, sem stóðu þar skjálf- andi í norðankrepjuhríðarveðri, búin óefað að standa þar mest- an hluta dagsins, en það sem út yfir tók og vakti fljótt athygli mína, var, aö forin var svo mikil i réttinni, að flest þeirra stóðu í hnédýpt og þar yfir. Stóð eg þar litla stund og horfði á þessa sorgarsjón. Blessaðar skepnurnar þoldu ekki við fyrir kulda og voru að tvístiga alt af stöðugt, og reyna að lyfta einum fæti í senn upp úr þessu dýki. Eg sagði við mann einn, er þar gekk hjá, að mikið voðalega ættu hrossin bágt. ,,Já,“ segir hann, „veðrið er svo slæmt.“ „En sjáið þér ekki hvernig réttin er,“ sagði eg. „Ja, hún er nú eins og hún er vön og svipuð hinum réttunum hér, sýnist mér,“ kvað hann, og fór með það.

x

Dýraverndarinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.