Dýraverndarinn - 15.05.1916, Qupperneq 13
DÝRAVERNDARINN
45
Hrossaeignin ekki meiri en þaö, aö því má viö koma. Hér eru
flórlærin jafnvel skoöuö sem prýöi á reiöhestum. Þau sýna þaö,
að hesturinn hefur veriö hafður á gjöf!
Muniö þaö, góöir menn, aö hvorki tryppum né fullorðnum
hrossum getur liðið vel, nema vel sé hirt; og til góðrar hirö-
ingar heyrir þaö, aö kemlia vel og og passa aö ekki komi
óþrif í háriö.
ÚTBREIÐSLAN
Fjöldi manna á þessu landi álítur dýraverndunarmáliö svo
mikils vert að þeir vilja sem mest fyrir þaö gera, og telja
það jafnvel skyldu sína aö kaupa málgagn félagsins, ef þeir
geta ekki styrkt félagsskapinn á annan liátt, en þrátt fyrir
þetta, eru þó ekki svo fáir, sem heyra má þaö jafnvel á, aö
þeir vilja gera gys aö þeim, sem berjast fyrir því máli; það
viröist svo, aö nokkrir þykist upp úr því vaxnir eöa þyki þaö
litilfjörlegt fyrir sig að vera i þessum félagsskap, og i þeim
hóp manna má finna menn, sem hafa verið kallaðir dýravinir.
Það kann að vera, aö þeim þyki gallar á félgi okkar, aö þaö
starfi ekki eins og þaö eigi aö starfa. Má vera að sumir af
þessum mönnum hafi talsvert til sins máls, en þó þetta kunni
svo aö vera, þá er það samt sem áður engin afsökun fyrir þá;
þeir eiga þá aö gerast meölimir félags okkar og leggja fram
krafta sína til aö koma betra skipulagi á starfsemina; það er
þeim nær og er sómasamlegra fyrir þá, heldur en aö vinna aö
þvi að gera málefni þetta hlægilegt í augum fjöldans. Viö
þessu eöa þvíumlíku getur maður búist af mönnum, sem hafa
þá skoðun, að dýrin séu lögð fyrir fætur okkar mannanna til
þess að eins aö hafa gott af þeim, en að þau séu tilfinningar-
snauöar skepnur og þvi sé alt mannúðartal í sambandi viö þau
ekki annað en óvitahjal. En engar háðglósur skepnuníöinganna
látum viö dýraverndarar neitt á okkur bíta; ljáum ekki slíku
eyrun, heldur göngum beint og óhikaö áfram þar til viö höfum
fengið einhverju framgengt af kröfum okkar. En viö veröum
enn þá of fáir, viö þurfum að ná sem mestum meðlimafjölda.
Meðlimafjöldi félagsins þarf fyrst og fremst að vera til þess