Dýraverndarinn - 15.05.1916, Qupperneq 14
46
DÝRAVERNDARINN
aö auöga félagiö aö góðum starfsmönnum, og þess að
bæta fjárhaginn, svo eitthvaö sé hægt frekara aö vinna af
því, sem kann að hafa peningaleg útgjöld. Félagsmönnum þarf
aö fjölga til þess að okkur veiti hægra að gæta þeirra góðu
laga, sem við höfum fengið aö því er dýraverndun snertir.
Okkur veitir hægara aö hjálpa lagavöröunum með því móti,
og okkur á að liggja það næst, að kæra öll slík lagabrot. Að
mörg lagaákvæði á þessu landi eru brotin og aö lítið verður
vart viö að fyrir slíkt sé hegnt, kemur sjálfsagt mikið til af
þvi, að kærur berast ekki lögreglustjórunum, almenningurinn
hylur hver meö öðrum, eöa var ekki svo meö horfellislögin
sælu? Svo er sýslumönnum kent um alt, sem er sölc fjöldans
að miklu leyti, þvi að ekki getur maður vænst þess að lög-
mennirnir taki það upp hjá sjálfum sér, að sekta fyrir lögbrot,
ef enginn veröur til þess að kæra fyrir þeim, en það er lög-
reglunnar sök, ef hún tekur ekki til greina réttmætar kærur,
á löglegan hátt fram komnar, hummar þær fram af sér eða
stingur undir stól.
Loks þarf félagsmönnum að fjölga til þess aö útbreiða blaðið
okkar, „Dýraverndarann“, þvi eg vænti þess að hann hafi ýms
góð áhrif til að opna augu almennings fyrir þessu máli, sér-
staklega ungu kynslóðarinnar, og vel hefur honum veriö tekið
af landsmönnum.
Þeirri meinlegu villi þarf að útrýma úr hugum manna, aö
þaö sé eingöngu stjórn þessa félags, sem eigi aö gæta hags-
muna þess, bæði utan félags og innan, við f é 1 a g s m e n n
a 11 i r eigum að reyna hver eftir sínum mætti að vinna að
viðgangi þess og vexti, við megum ekki vænta þess, aö stjórnin
vinni alt, og okkur má ekki henda það að kasta öllum okkar
áhyggjum upp á hana. JöH. ÖGM. ODDSSON.
FYRIRSPURN.
Hvers vegna hefur annar ökudrengurinn hjá Hansen bakara
hund með sér, þegar hann fer meö brauöin út um bæinn, hund,
sem er alt af sígeltandi á hælunum á hestinum ?
Er það gert til þess að klárinn veröi tryltari? Satt að segja
virðist manni að unglingur ]>essi fari nógu hart um göturnar,
]^ó hesturinn sé ekki hundrekinn. Yfirleitt er keyrsla bakaríis-