Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.09.1940, Side 10

Dýraverndarinn - 01.09.1940, Side 10
4 6 DÝRAVERNDARINN láta okkur skilja sig, tilfinningar sínar og þarfir. Hví tökum vi8 ekki eftir látbragði þeirra og vina- atlotum ? HvaS er hunduirnn a8 segja viS okkur, þegar hann fleygir sér flötum aS fótum okkar, dinglar rófunni og lítur hinum saklausu augum sín- um til okkar, biöjandi um hlttekningu, meiri skiln- ing og innilegri sarnúð? HvaS er kisi aS segja við okkur, þegar hann sveiflar skottinu, legst á bakiS og vill láta strjúka sér um kviðinn, eSa þegar hann sofnar malandi upp viS vangann á okkur og legg- ur lappirnar um hálsinn á okkur? Er hann ekki aS segja eitthvaS á þessa lei'S: Mér er kalt, eg er svang.ur og mig langar í lap! Þú átt mjólkursopa eSa fiskbita, sem eg veit aS þú vildir gefa mér, ef þú skildir þaS, hvaS bágt eg á; eg sé enga músina, rottuna e8a fuglinn og eg vildi heldur eigi drepa þau, ef eg hefSi eitthvaö annaS a® leggja mér til munns, því þau eru líka köld og svöng, umkomu- laus dýr eins og eg, og þau finna til, hræöast allan voSa, — og mig líka, — og langar til aS lifa; þau eiga líka börn og gó'Sa vini eins og eg og þú og geta eflaust glaSst og hrygst eins og viS. — Strjúktu mér! — HvaS segir hesturinn, er hann réttir aS okk- ur snoppuna og lítur hinum hyldjúpu, greindarlegu augum sínm til okkar? Er hann ekki aS segja eitt- hvaS á þessa leiS: Þú ert vinur minn! Eg skal hlaupa meS þig i hendings kasti yfir holt og hæ'Sir, grjót og urSir, — mér þykir bara gaman aS því, •— en girtu ekki gjarSirnar mjög fast, meiddu mig ekki á bakinu eSa á síSunum og gættu þess, aS eg verSi ekki sárfættur, og umfram alt: BerSu mig ekki! Kæru börn, sem þetta lesiS! VeriS vingjörn viS öll dýr, sýniS þeim blíSuatlot og gefiS þeim bita eSa sopa. HæniS þau aS ykkur, en hrekkiS þau hvorki né hræSiS. Þau eru aS leita aS hinu góða í ykkur og þau munu launa ykkur góSsemi ykkar viS sig síSar meir. Hver veit, nema þau verSi einhverntíma til þess aS bjarga ykkur úr háska og þannig verSa lifgjafar ykkar, eins og þeir SigurSur og Þórarinn urSu lífgjafar kisa litla meS öngulinn í munninum. •—■ ViS þurfum öll svo lítils viS til þess aS þurfa hjálpar meS. —■ Öll börn verSa því betri og meiri menn, sem þau eru góSsamari viS dýrin! Jón Pálsson. Aflífun sauðfjár. Dýraverndaranum hefir borist eftirfarandi bréf: „Eg las einhversstaSar fyrir nokkuru grein um þaS, aS „Sláturfélag SuSurlands“ hefSi nú tekiS upp þá aSferS, aS nota helgrímu viS aflífun sauSkinda. Greinarhöfundur var þeirrar skoSunar, aS réttara væri aS skjóta kindurnar. Eg skal ekki um þaS deila, en reynslu þykist eg hafa fyrir því, aS hel- griman sé gott og örugt aflífunartæki. En vitan- lega má ekki fá hana klaufum í hendur til notk- unar, og sama er aS segja um skotvoptrin. Mönn- um getur mistekist aS deySa kindur meS skoti, engu síSur en aS rota þær meS helgrímu. Hvortveggja aSferSin er í sjálfu sér ágæt og örugg, en báSar geta mistekist, ef klaufar eru annars vegar. Og einn kost hefir „grírnan" fram yfir byssuna: henni fylgir ekki eins mikill hávaSi. Hefi eg stundum veitt þvi at- hygli, aS kindur, sem bíSa dauSans í sláturhúsum eSa réttum, hrökkva viS, er þær heyra skothvellina. Þær verSa hræddar. Ein og ein kind er sótt og alt af heyrist skothvellur—nýr hvellur viS hvern ,,félaga“, sem tekinn er og leiddur út fyrir dyrnar. Helgrímu- liflátiS er hávaSa-minna og kindurnar, sem dauSans bíSa, heyra naumast þegar „félagi" þeirra er sleg- inn. Verstur er þó kannske blóS-þefurinn, sem legg- ur inn til fjárins, sem bíSur slátrunar, og svo hitt, aS láta kindina, sem leidd er í dauSann, sjá blóS- vaSal og alls konar óhugnan. Eg hefi ekki veriS viS slátrun í Reykjavík sí-Sustu árin (nokkuS mörg) og má vera, aS nú sé fariS aS bregSa blöSku eSa bandi fyrir augu kindanna, þegar þær eru leiddar á blóSvöllinn. . Ættu helgrímur aS vera meS því- likri augn-skýlu og eru þaS væntanlega. Eg hygg, aS ekki muni ástæSa til, aS amast viS helgrímum, en ávalt verSur aS gæta þess, aS vanir menn og samviskusamir sé látnir fara meS þær eSa nota. HiS sama gildir og aS sjálfsögSu um þá, sem meS byssum deySa. — Skal ég svo ekki fjölyrSa um þetta frekara en orSiS er, og snúa mér aS öSru efni. ---o—— Þrátt fyrir glögg lagafyrirmæli um þaS, aS eigi megi lífláta sauSfé meS hálsskurSi, er' eg — þvi miSur — hræddur um, aS þaS sé gert enn í dag á stöku staS. Hitt er annaS mál, aS skeS getur, aS

x

Dýraverndarinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.