Alþýðumaðurinn - 13.11.1956, Page 1
XXVI. árg.
Þriöjudagur 13. nóvember 1956
35. tbl.
Sundmót M.A. og Akureyringa
s.l. sunnudag
Sunnudaginn 11. nóv. fór fram
bér á Akureyri fjölmennasta sund
mót, sem haldið hefir verið hér í
hæ. Keppendur voru frá íþrótta-
félagi Menntaskólans og frá Ak-
uteyrarfélögunum. Keppt var í
einstaklingasundum og tveim boð
sundum, 10 x 40 m. boðsundi
kvenna og 50 x 40 m. boðsundi |
karla, en sökum forfalla á síðustu
stundu urðu keppendur ekki nema
45 frá hvorum aðila. Mótstjóri og
kynnir var Hermann Stefánsson,
íþróttakennari, yfirtímavörður |
Haraldur Sigurðsson, sýsluskrif-
ari, og ræsir mótsins Ólafur
Magnússon, sundkenriari. Mótið
gekk mjög greiðlega og fór hið
bezta fram. Áhorfendur voru
margir og virðist áhugi fyrir
sundi vera mjög mikill nú í bæn-
um. Ágóði af sundmótinu rennur
til að reisa stökkbretti við Sund-
laug Akureyrar.
Helztu úrslit:
50 m. skriðsund kvenna:
Sjöfn Sigurbjömsdóttir MA 36,6 sek.
Guðný Þórisdóttir MA 40,6 —
Sólveig S. Guðbjörnsdóttir Ak. 41,6 —
50 m. skriðsund telpna:
Rósa Pálsdóttir Ak. 40,1 sek.
Þórey Káradóttir Ak. 40,3 —
Helga Haraldsdóttir Ak. 40,6 —
50 m. skriðsund drengja:
Gissur Helgason MA 34,9 sek.
Hákon Eiríksson Ak. 35,4 —
Eivar Valdimarsson Ak. 37,0 —
100 m. skriðsund karla:
Vernharður Jónsson Ak. 1,12,1 mín.
Guðm. Gústavsson MA 1,17,0 —
Þorsteinn Áskelsson Ak. 1,20,0 —
100 m. bringusund karla:
Áskell Egilsson Ak. 1,26,8 mín.
Þorsteinn Áskelsson Ak. 1,29,2 —
Kristinn Arnþórsson MA 1,30,4 —
50 m. bringusund kvenna:
Kristín Halldórsdóttir MA 46,1 sek.
Ástliildur Kjartansdóttir MA 47,2 —
Sólveig Guðbjörnsdóttir. Ak. 48,0 —
50 m. bringusund telpna:
Jónína Pálsdóttir Ak. 46,4 sek.
Súsanna Möller Ak. 49,8 —
Margrét Guðmundsdóttir MA 50,0 —
50 m. bringusund drengja:
Þorvaldur G. Einarsson MA 41,3 sek.
Elvar Valdimarsson Ak. 42,5 —
Ilreinn Pálsson Ak. 43,0 —
10 x 40 m. boðsund kvenna:
Sveit Ak. 5,58,6 mín.
Sveit MA 6,08,7 —
45 x 40 boðsund karla:
Sveit MA 22,25,5 mín.
Sveit Ak. 23,04,5 —
lítill drengur hrapar í bíl niíur i
Shjdlfundafljitsgljðfur
^að slys varð við Fosshól sl.
Iaugardagskvöld, að sex ára
drengur höfuðkúpubrotnaði, er
jeppabifreið hrapaði með hann
í Skjálfandafljótsgljúfur rétt
sunnan við fljótsbrúna. Steyptist
bíllinn með drenginn um 10 m.
fall, en skorðaðist síðan á hjól-
unum í urð rétt niður við fljótið
sjálft. Er talið undravert, að
litli drengurinn skyldi sleppa
lífs úr því heljarstökki.
Nánari atvik voru þau, að
verið var að koma með litla
drenginn, Pál Þorlák Pálsson,
son Páls H. Jónssonar, kennara
á Laugum, og Rannveigar Krist-
jánsdóttur, konu hans, úr
Fremstafelli í Kinn í veg fyrir
áætlunarbifreið frá Akureyri.
Voru foreldrar drengsins að
koma með áætlunarbílnum og
ætluðu að taka hann með sér
heim frá Fosshóli, en afi drengs
ins og móðurbróðir komu með
hann í jeppabifreiðinni. Oku-
maðurinn skildi við jeppann
norðan undir húsinu á Fosshóli,
en þar er hlað nær lárétt, en
mun þó aðeins halla til fljótsins.
Gekk ökumaður inn á Fosshóli,
en afi drengsins og drengurinn
biðu í bílnum og snéri hann frá
fljótinu. Skipti það engum tog-
um, að jeppinn tók að renna
afturábak niður að árgljúfrun-
um, sem eru þarna örskammt
undan. Gat afi litla drengsins
kastað sér út úr bílnum rétt áð-
ur en hann steyptist í gljúfrið,
en hafði ekkert svigrúm til að
grípa drenginn. Féll drengurinn
þ«ví með bílnum í gljúfrið með
þeim afleiðingum, sem fyrr get-
ur.
Hægt er að komast , þarna
niður í Gljúfrið rétt til hliðar
við slysstaðinn og náðist litli
drengurinn strax. Reyndist hann
rr.ikið meiddur á höfði, en þó
með meðvitund. Var hann flutt-
ui þegar á laugardagskvöldið
hingað á sjúkrahúsið og gert að
meiðslum hans, sem reyndist
alvarlegt höfuðkúpubrot.
Gerist áskrifendur
að Alþýðumanninum.
<ooaoftoooooooaooo»ooooo»,
Eisenhower endarhosinn
forseti Bandaríhjonnfl
Demókratar auka meiri-
hluta sinn í báðum
deildum.
Þau urðu úrslit forsetakosning-
ar.na í Bandaríkjunum 6. nóvem-
ber síðastliðinn, að Eisenhower
forseti var endurkosinn og sigr-
aði nú andstæðing sinn, Stewen-
son, með meiri atkvæðamun en
1952. Hlaut hann rúmlega 31
milljón atkvæða, en Stewenson
tæpar 23 milljónir.
Hins vegar unnu Demókratar
nokkuð á við kosningar til sam-
bandsþingsins, er fram fóru einn-
ig sama daginn, þannig að þeir
hafa nú 4 atkvæða meirihluta í
öldungadeildinni fram yfir Repu-
blikana, en 31 atkvæða meirihluta
í fulltrúadeild í stað 29 áður.
Það virðist samróma álit í
Bandaríkjunum og utan þeirra,
að Eisenhower hafi sigrað í for-
setakjörinu fyrst og fremst á per-
sónulegum vinsældum sínum.
___*____
ELDUR LAUS í
FJALLFOSSI
Aðfaranótt síðastliðins laugar-
dags varð eldur laus í vélarrúmi
Fjallfoss, er þá lá hér við bryggju.
Urðu nokkrar skemmdir af reyk
og hita, en annars gekk slökkvi-
starf fljótt með slökkvitækjum
skipsins. Slökkvilið Akureyrar
aðstoðaði einnig, einkum með því
að dæla vatni á þilfar, er hitnaði
mjög frá eldinum.
Samkvæmt upplýsingum vél-
stjóra skipsins í sjódómi á laug-
ardaginn virðist hafa kviknað út
frá raflögn að olíuhitara.
Sjódómurinn tilnefndi þá Al-
bert Sölvason, j árnsmíðameistara
og Benedikt Ólafsson, málara-
meistara, til að meta skemmdirn-
ai vegna tryggingabóta.
___
Gagnfræðaskóli Húsavík-
ur minnist 50 ára starfs-
afmælis.
Síðastliðinn sunnudag minntist
Gagnfræðaskóli Húsavíkur þess
roeð virðulegu samsæti, að nú eru
50 ár liðin síðan unglingaskóli
Benedikts Björnssonar, kennara á
Húsavík hóf starfsemi sína þar,
en Gagnfræðaskóli Húsavíkur
hefir þróazt af þeim skóla.
____
Góður afli á Húsavík
Samkvæmt viðtali við Húsavík
sl sunnudag er þar góður afli,
þegar gefur á sjó. Afla bátarnir
um 2—5 tonn í róðri, og upp í
5 tonn stærri bátar.
Henry Cabot Lodge, fastafulltrúi U.S.A. hjá S. Þ. er oft
nejndur í fréttum þessa dagana í sambandi við Egyptalands-
og Ungverjalandsmálin. Hér sést hann (til hœgri) rœða við
Ilarold E. Stassen, einn af foryystumönnum Republikana.
Framferði Rússa í Ungverja-
landi fordæmt á fjölmennum
borgarafundi í Nýja Bíó
Að forgöngu stjórnar Stúd-
endafélags Akureyrar var haldinn
almennur borgarafundur síðast-
liðið fimmtudagskvöld í Nýja Bíó
hér í bæ. Húsfyllir var. Ræðu-
menn voru Jóhann Frímann,
skólastjóri, séra Sigurður Einars-
son og Þórarinn Björnsson,
skólameistari. Fundarstjóri var
Gísli Jónsson, menntaskólakenn-
ari, en Kristján Jónsson, bæjar-
fógetafulltrúi, formaður Stúd-
entafélagsins, setti fundinn og
lýsti tilgangi hans.
Eftirfarandi ályktun var sam-
þvkkt á fundinum, borin fram af
Jóhanni Frímann, Kristjáni Jóns-
svni og Þórarni Björnssyni:
aEe etaoin shrdluu etaoiim
„Almennur fundur í Nýja Bíói,
Akureyri, haldinn 8. nóv. 1956 a3
fiumkvæði Stúdentafélagsins ó Ak-
urcyri, lýsir yfir samúð og stuðningi
við allar þjóðir, er sæta ofbeldi og
kúgun og berjast fyrir frelsi sinu og
sjólfstæði.
Fundurinn vottar ungversku þjóð-
inni sérstaklega djúpa samúð sína,
oodóun og virðingu í hetjulegri bar-
óttu hennar gegn hinu rússneska
storvcldi, sem með dæmafórri grimmd
hefir fótum troðið mannréttindi henn-
cr og leitast nú við með vopnavaldi
að þröngvo henni til fylgis við stjórn-
skipulag, sem andstætt cr vilja henn-
Bardagar úti á Súeseiði —
Uogierjar yfirbug'aðir
Eins og flestum er kunnugt af
úlvarpsfréttum, féllust Bretar,
Frakkar og ísraelsmenn á það að
tilmælum og fyrirskipan S. Þ. að
hætta bardögum við Egypta á
I Súeseiði og flytja heri sína þar á
Ibrott, gegn því að lögreglulið frá
SÞ tæki við gæzlu Súesskurðar
og sæi um að öllum þjóðum
væru siglingar frjálsar um hann.
Enda þótt bardögum væri hætt,
eftir að árásaraðilarnir gáfu
þessa yfirlýsingu, hefir verið
nokkuð á huldu um afstöðu
Egypta til lögregluliðsins. í gær
hermdu þó fregnir frá bækistöðv-
um SÞ að samþykki Egypta lægi
nú fyrir, en hins vegar segðust
þeir taka við sjálfboðaliðum frá
Rússum og Kínverjum — en þeir
virðast í boði — ef árásaraðilar
livrfu ekki á brott með heri sína,
undir eins og lögregluliðið kæmi.
í Ungverjalandi er allt daprara
umhorfs. Rússar sinna þar í engu
tilmælum SÞ að fara brott úr
landinu með her sinn, heldur
liafa nú brotið frelsisuppreisn
landsmanna að mestu niður, enda
þótt dreifðir flokkar og skærulið-
ar berjist enn. Allt er þó næsta
óvíst um viðhorf mála í Ungverja
landi enn, því að síðustu fréttir
herma, að Kadarstj órnin ráði þar
ekki neitt við neitt, þrátt fyrir
bakstuðning Rússa. Var að heyra
á fréttum í gær, að nú væri tekið
á nýjan leik að leita eftir stjórn-
arforystu Nagys, sem hrakinn var
frá völdum fyrir röskri viku að
undirlagi Rússa.