Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1956, Blaðsíða 129
127
XVI. ÝMISLEGT
Störf stúdentaráðs.
Úr skýrslu formanns.
í stúdentaráði áttu sæti Björgvin Guðmundsson, stud. oecon, for-
maður, Sigurður Líndal, stud. jur., ritari, Stefán Y. Finnbogason,
stud. odont., gjadkeri, Guðmundur Pétursson, stud. med., Jón Tómas-
son, stud. jur., Rafn Hjaltalín, stud. theol., Skarphéðinn Pétursson,
stud. theol., og Sveinn Skorri Höskuldsson, stud. mag.
Formaður stúdentaráðs gefur á hverju hausti skýrslu um störf
ráðsins næsta skólaár á undan, og er hún prentuð í Vettvangi stú-
dentaráös. Hefur sú skýrsla hingað til verið endurprentuð í Árbók-
inni, þó með úrfellingum síðari árin. Skýrslan er að þessu sinni 27
bls. í 4to, og verður ekki hægt að prenta hér nema nokkra kafla úr
henni.
Fundir.
Fundir í Stúdentaráði voru reglulega í viku hverri yfir veturinn
og oftar, ef með þurfti, en yfir sumartímann voru fundir færri og
ekki haldnir reglulega. Voru alls haldnir 33 fundir. Eru það nokkru
færri fundir en árið áður og stafar það vafalaust af því, að störf
ráðsins á starfsárinu gengu mjög greiðlega, enda samkomulag ekki
mörg undanfarin ár verið eins gott.
Fyrsta viðfangsefni Stúdentaráðs var að sjálfsögðu undirbúningur
hátíðahaldanna 1. desember. Urðu óvenju litlar deilur í sambandi við
það mál í Stúdentaráði. Olli þar miklu, að stúdentaráðsmenn voru
algerlega einhuga um það að fara þess á leit við Halldór Kiljan
Laxness, að hann flytti aðalræðuna 1. desember, en sænska akademian
hafði þá nýlega samþykkt að úthluta honum bókmenntaverðlaunum
Nóbels 1955. Var tillaga um þetta efni samþykkt samhljóða í Stú-
dentaráði með 9 atkvæðum. Má þetta teljast óvenjuleg afgreiðsla í
Stúdentaráði, þar eð á undanfömum árum hefur ætíð verið deilt
einna harðast um val aðalræðumanns 1. desember. Leystist að þessu
sinni með hinu góða samkomulagi á farsælan hátt drjúgur þáttur í
undirbúningi hátíðahaldanna 1. desember.
Halldór Kiljan Laxness varð að fara af landi brott fyrir 1. desem-
'oer vegna móttöku á Nóbelsverðlaunum sínum, en afhending þeirra
skyldi fara fram snemma í desember. Ekki vildi Stúdentaráð þó þrátt
fyrir það falla frá því að fá skáldið til þess að flytja aðalræðuna 1.