Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1956, Blaðsíða 135
133
Sú meginbreyting varð á atvinnuháttum íslendinga á s. 1. vori, að
hætt var að ráða menn til starfa á Keflavíkurflugvelli í þágu varn-
arliðsins. Mun það nú vera í fyrsta sinn, sem vinnumiðlunin ræður
engan stúdent til slíkra starfa. Þetta hafði þó ekki meiri áhrif en svo,
að vinnumiðlunin hefði getað útvegað fjölda mörgum stúdentum
vinnu til viðbótar þeim, er sóttu. Engum stúdent, sem sendi umsókn
á auglýstum tíma, þurfti vinnumiðlunin að vísa frá. Verður það von-
andi svo um alla framtíð.
Vinnumiðlunin úthlutaði samtals 44 stúdentum vinnu á starfsárinu
og skiptist það þannig eftir starfsgreinum:
Póstburður ..................... 15
Verkamannavinna................... 9
Afgreiðslustörf .................. 6
Mælingar o. þ. h.................. 5
Skrifstofustörf................... 3
Kennsla........................... 2
Tollgæzla ........................ 1
Innheimta......................... 1
Sölumaður ........................ 1
Á heilsuhæli...................... 1
Samtals 44
Þess má geta, að 4 stúdentanna voru erlendir.
Auk þess, sem að ofan er greint, munu nokkuð fleiri stúdentar hafa
fengið vinnu óbeint fyrir tilstuðlan vinnumiðlunarinnar, en störf,
sem til féllu, voru ætíð auglýst í skólanum og lysthafendum bent á
að snúa sér beint til atvinnurekanda.
Að lokum vill vinnumiðlunin þakka öllum þeim, sem hún hefur
haft samstarf við á starfsárinu.
Siguröur Pétursson. Halldór Þ. Jónsson. Loftur Magnússon.
Ferðaþjónusta stúdenta.
Stúdentaráð samþykkti á fundi sínum í marz svohljóðandi tillögu
frá formanni: „Stúdentaráð Háskóla íslands samþykkir að kjósa 3ja
manna ferðanefnd. Skal nefnd þessi leitast við að koma á hagkvæm-
um ferðum stúdenta til útlanda og m. a. hafa samvinnu við Scandi-
navian Student Travel Service í þessu skyni“. í nefndina voru kjörnir:
Haukur Helgason, stud. oecon., form., Hallfreður Örn Eiríksson, stud.
mag- og Einar Oddsson, stud. jur.
Nefndin leitaði þegar eftir samvinnu við norrænu ferðamálastofn-
unina — Scandinavian Student Travel Service (SSTS) og kannaði