Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1956, Blaðsíða 137
135
Lán úr sjóðnum hafa jafnan verið flokkuð í þrennt, og reyndist
á síðasta ári kleift að hækka hvern flokk um kr. 500,00, þannig að
nú eru lán úr flokkunum að upphæð kr. 2000,00, kr. 3000,00 og kr.
4000,00, enda fékkst á árinu framlag ríkissjóðs hækkað úr kr. 500.-
000,00 í kr. 650.000,00, eða um helming þess, sem farið var fram á
við f járveitingarnefnd.
Um lánsfjárþörf stúdenta og aðrar upplýsingar um Lánasjóðinn
vísast til skýrslu formanns hans frá fyrra ári.
Bygging hjónagarðs.
Stúdentaráð samþykkti tillögu um að hefja frumundirbúning að
byggingu hjónagarðs. Kaus ráðið 8. desember 1955 fimm manna nefnd
til þess að vinna að málinu. Voru þessir stúdentar kjömir í nefndina:
Þór Vilhjálmsson, stud. jur., Matthías Matthiesen, stud. jur., Eberg
Ellefsen, stud. jur., Vilhjálmur Þórhallsson, stud. jur., og Gunnar
Jónsson, stud. med.
Nefndin starfaði lítið á árinu. Þó ræddi formaður hennar við ýmsa
aðila um byggingu hjónagarðs. M. a. ræddi hann málið við rektor og
Þorsteinn Scheving Thorsteinsson, formann garðsstjórnar. Tóku þeir
heldur þunglega í málið, og formaður garðstjórnar taldi nær að
reyna fyrst að losa þá garða, er fyrir væru, við skuldir sínar, áður en
ráðizt yrði í byggingu nýrra garða.
Lán og styrkir til stúdenta.
A fundi í Stúdentaráði 31. janúar 1956 lagði formaður fram eftir-
farandi tillögu: „Stúdentaráð Háskóla íslands samþykkir að fela
stjórninni að fá upp tekna á ný beina náms- og húsaleigustyrki til
handa háskólastúdentum. Telur ráðið, að stúdentar við nám í Háskóla
Islands njóti ekki eins góðra kjara, hvað aðstoð frá hinu opinbera
snertir, eins og þeir stúdentar, er sækja utan til náms, þar eð stú-
dentar hér eigi aðeins kost á lánum úr Lánasjóði stúdenta, en þeir,
er stunda nám erlendis, geti bæði fengið lán og styrki. Stúdentaráð
felur stjórninni að hraða undirbúningi að framkvæmd þessarar til-
lögu sem mest, og skal stjórnin senda rökstutt erindi til hlutaðeigandi
yfirvalda svo fljótt, að unnt yrði að taka upp í fjárlagafrumvarp
fyrir árið 1957 f járveitingu til styrkja þessara, yrði á erindið fallizt".
Miklar umræður urðu um tillögu þessa í Stúdentaráði. Kom það
fram hjá sumum ráðsmönnum, að samþykkt tillögu þessarar gæti
orðið Lánasjóði stúdenta til tjóns, og var samþykkt að vísa tillög-