Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1956, Blaðsíða 140
138
skal bóka. Formaður stýrir fundum. Hann undirritar ásamt ritara
fundargerðir og erindi, sem ráðið sendir frá sér.
16. gr. — Sé um mál að ræða, er sérstaklega snertir ákveðna deild
háskólans, skal þeirri deild heimilt að senda fulltrúa á stúdentaráðs-
fund, og hefur hann þar málfrelsi og tillögurétt. Skal Stúdentaráðið
þegar tilkynna það viðkomandi deild, ef hún á ekki fulltrúa í ráðinu.
17. gr. — Fundir Stúdentaráðsins skulu auglýstir með eins sólar-
hrings fyrirvara. Þó er heimilt að boða til funda með styttri fyrir-
vara, ef stjórn ráðsins telur það nauðsynlegt, enda sé þá fulltrúunum
boðaður fundurinn sérstaklega.
18. gr. — Fráfarandi Stúdentaráð skal, áður en kosning fer fram,
gera almennum stúdentafundi grein fyrir gerðum sínum og leggja
fram reikninga ráðsins, endurskoðaða af tveim mönnum, sem til þess
hafa verið kosnir á almennum stúdentafundi. Sömuleiðis skal það
senda Háskólaráði skýrslu um störf sín á liðnu ári og hag þeirra
fyrirtækja, er undir það heyra. Reglugerðir, er ráðið kann að setja
um slík fyrirtæki, skulu jafnan bornar undir almennan stúdenta-
fund.
19. gr. — Stúdentaráði er skylt að halda almennan stúdentafund,
er minnst fjórir ráðsmenn eða 20 stúdentar krefjast. Þó skulu þeir
ætíð geta um, hvaða mál þeir vilji, að borin séu upp á fundinum. Til
almennra stúdentafunda skal boða með auglýsingu, er festa skal upp
á auglýsingatöflu háskólans, eigi síðar en tveim sólarhringum fyrr
en fundinn skal halda. Á almennum stúdentafundi ræður afl atkvæða.
Stúdentaráði er skylt að fara eftir fyrirmælum almenns stúdenta-
fundar um málefni sem auglýst hafa verið í fundarboði, enda sé að
minnsta kosti 1/4 hluti allra háskólastúdenta mættur á fimdinum.
Ef almennur stúdentafundur lýsir vanþóknun á Stúdentaráði, skal
það fara frá. Þó er því heimilt að kveðja til almenns stúdentafundar,
er boða skal sem fyrr segir, innan fjögra daga, um vantraustið. Ef
vantraustið verður þá aftur samþykkt, skal ráðið fara frá og stofna
til nýrra kosninga með venjulegum hætti, að öðru leyti en því, að
framboðsfrestur skal vera ein vika.
20. gr. — Með lögum þessum eru úr gildi numin lög um Stúdenta-
ráð íslands frá 1933.
Lögum þessum verður ekki breytt né við þau aukið nema sam-
þykkt hafi verið á tveim almennum stúdentafundum í röð, enda sé
að minnsta kosti 1/4 háskólastúdenta mættur á hvorum fundinum.
Lagabreytingar ber að auglýsa í fundarboði.
21. gr. — Lög þessi öðlast þegar gildi.