Stúdentablaðið - 01.05.1995, Síða 1
I
5 . t b I . m a í 1995
STÚDENTAR • HÁSKÓLINN • MENNING • AKADEMIA • HÁÐ & SPÉ
Meðal efnis:
Úthlutun úr Nýsköpunarsjóði
s.2
Húllumhæ í höllinni
s. 4
Kynferðisleg áreitni í
Háskóla Islands?
s.6-7
„... og Stalín hafði
sínar
góðu liliðar!"
s. 9
Námsárið í belg og biðu
s. 10-13
Orðræða um aðild
s. 14
Lífið að loknu námi
s. 16
Röggsemi óskast
s. 17
Er Röskva goðsögn um
félagshyggju?
s.18
Vaka erekki á útleið
s. 20
Disneyland trúarbragðanna
s. 22
Flóamarkaður tii
styrktar fötluðum s. 23
Hvaö gerir
ríkisstjorniu?
Nýsköpunarsjóður námsmanna gat styrkt rúmlega eitthundrað verkefni til rann-
sókna og þróunar í atvinnulífi og á fræðasviði
Fjöldi verðugra verkefna
bíður enn afgreiðslu. Sjóðsstjórn mat rúmlega tvöhundruð verkefni styrkhæf.
Beðið er svara frá ríkisstjórn, sveitarfélögum og fyrirtækjum um aukaframlag í Ný-
sköpunarsjóð.
Sigurmyndin úr Ljósmyndamaraþoni Stúdentaráðs - Betra ísland eftir Hjördísi Geirdal
ann 8. maí síðastliðinn var úthlut-
að úr Nýsköpunarsjóði náms-
manna. Mikill fjöldi afar spenn-
andi umsókna barst sjóðnum, samtals
260 verkefni. Sjóðurinn hafði til um-
ráða 20 milljónir króna, og var unnt
að styrkja rúmlega eitthundrað verk-
efni sem efla mun rannsóknir og ný-
sköpun í atvinnulífi og á fræðasviði.
Hins vegar var ekki unnt að styrkja
önnur rúmlega eitthundrað verkefni,
sem þó voru metin af sjóðsstjóm sem
afar styrkhæf og fyllilega verðug.
Stúdentar róa nú öllum árum að því
að afla sjóðnum viðbótarfjármagns
og hafa sent erindi til ráðuneyta,
sveitarfélaga, stofnanna og fyrirtækja.
Viðtökur hafa vcrið jákvæðar og von-
ir standa til þess að aukaframlag fáist
i sjóðinn.
Einkum beinast augu manna að ríkis-
stjóminni. Efling Nýsköpunarsjóðs
námsmanna var bundin i ríkisstjórn-
arsáttmála og í einstaka ráðuneytum
hefur verið vel tekið í þá umleitan
forsvarsmanna Nýsköpunarsjóðs, að
veita meiru fjármagni í sjóðinn. Er-
indi þess efnis hefur þó enn ekki ver-
ið tekið upp í ríkisstjóm en en vonast
er til að það verði gert á næstunni.
Dagur Eggertsson, framkvæmdastjóri
Nýsköpunarsjóðs sagði í samtali við
Stúdentablaðið, að efling Nýsköpun-
arsjóðs væri í fullu samræmi við
stefnu ríkisstjómarinnar að efla ný-
sköpun og menntun í landinu. „Raun-
ar er beinlínis kveðið á um stuðning
við Nýsköpunarsjóð í stjómarsáttmál-
anurn. það er þó ekki aðalmálið, held-
ur hitt, að ekki hefur verið unnt að
styrkja gríðarlegan fjölda verðugra
umsókna. Við vonum því að allir
leggist á eitt um að tryggja þeim
framgang.” Stúdentar liafa þó ekki
aðeins knúið dyra hjá ríkisstjóminni
heldur hafa jafnframt leitað til sveit-
arfélaga, stofnana og fyrirtækja eftir
fjármagni í sjóðinn. Vel hefur verið
tekið umleitanir stúdenta og beðið er
svara á næstu dögum.
Sjá frétt s. 2.
ýsköpunarsjóður námsmanna er
að mörgu leyti dæmigerður fyrir
það starf sem stúdentar hafa verið
að vinna undanfarin ár. Nýsköpunar-
sjóður virkjar hugmyndaauðgi náms-
manna, stuðlar að rannsókna- og þró-
unarstarfi í Háskólanum, bindur at-
vinnulífið og Háskólann sterkari
böndum og er öflugt svar við bágu
atvinnuástandi námsmanna á sumrin.
Og sagan sýnir að verkefni unnin á
vegum sjóðsins hafa skilað miklum
árangri fyrir Háskólann, atvinnulífið
og námsmenn. Nýsköpunarsjóður
námsmanna er sönnun þess að náms-
menn vilja taka frumkvæði í eigin
málum og efla það starf sem unnið er
í Háskólanum.
í ár bárust fleiri umsóknir um styrki
til Nýsköpunarsjóðs en nokkru sinni
fyrr. Því miður reyndist aðeins unnt
að styrkja tæplega helming þeirra
verkefna sem sjóðstjórn mat sem sér-
lega styrkhæf en sjóðurinn hafði 20
milljónir til umráða. Það þýðir fjöld-
inn allur af spennandi og hagkvæm-
um verkefnum á rannsókna- eða
fræðasviði eru í biðstöðu, verkefni
sem hafa alla burði til þess að
blómstra og skila samfélaginu ótví-
ræðum arði. Stúdentar hafa sótt það
fast, að fá aukið fjármagn inn í Ný-
sköpunarsjóð, svo hægt sé að styrkja
fleiri verkefni og virkja krafta náms-
manna, prófessora og fyrirtækja til
nýsköpunar í sumar. Hin nýja rikis-
stjórn hefur lýst því yfír að hún vilji
efla veg menntunar í landinu, efla
rannsóknir og berjast gegn atvinnu-
leysi. Þetta eru göfug markniið og
það sem meira er: Þau eru samofm.
Stjómvöld gera best í því að berjast
gegn atvinnuleysi ef þau efla nýsköp-
unar- og þróunarstarf í landinu, það
eru gömul sannindi og ný. En til þess
að tal um menntun og nýsköpun
verði ekki orðin tóm, þurfa stjóm-
völd að sýna hug sinn í verki og
bregðast við. Það liggur fjöldinn allur
af spennandi nýsköpunarverkefnum á
borðinu og hundruð bíða svara frá
stjómvöldum. Ný ríkisstjóm hefur
hér kjörið tækifæri til að standa við
stóru orðin um eflingu Háskólans,
rannsókna og þróunar. Eflingar Ný-
sköpunarsjóðs var getið í stjórnarsátt-
málanum sem eins af verkefnum rík-
isstjómarinnar á þessu kjörtímabili.
Það er ekki eftir neinu að bíða.
er engin tilviljun að Stúdentaráð HJ. gerði samning við J
Búnaðarbankann um námsmannaþjónustu.
AN #4 ATHUGIÐ AÐ NÆSTA ÚTIBÚ BÚNAÐARBANKANS VIÐ HÁSKÓLANN ER Á HÓTEL SÖGU. -Tmustur bankl
.. ....Sí|p::##5í4i-*5SSaíí;
MÍ—^
J
L