Stúdentablaðið - 01.05.1995, Side 10
Bls. 10______________________STÚDENTABLAÐIÐ___________________ STBL. - Mai 1995
Viðburðaríkur vetur er að baki í skóiahfinu. Þjóðarátak, kosningar tii SHÍ og
Alþingis, nýr menntamáiaráðherra, framadagar, jóiaböii, væntanlegar breyt-
ingar á Lánasjóðnum og sundkortasamningur er meða/ þess sem var á döt-
inni í vetur. Litum nánar á
Krónólógísk úttekt á atburðum vetrarins í máli og myndum - Fréttaannáll í léttum dúr og alvarlegum
Agúst
- rykið dustað af gráu sellunum
Það er kannski ofsögum sagt að segja veturinn
1994-95 hafi byrjað í ágúst. Engu að síður voru
þreytt nokkur þúsund haustpróf í Háskólanum
svo víst má telja, að ófáir hafi setið með sveittan
skallann við próflestur, t.a.m. fjöldi laganema á
2. ári, sem glímdu við hertar kröfur í lagadeild.
Á svipuðum tíma komu til landsins um 50 nor-
rænir læknanemar sem settust á skólabekk í Há-
skóla íslands, en samnorrænn menntamarkaður
hefur nú gengið í gildi. Einnig er þess vert að
geta, að knattspymufélag allra háskólanema,
KR, varð bikarmeistari í ágústlok, og vann þar
með sinn fyrsta titil í 22 ár. Nýr ritstjóri Stúd-
entablaðsins er ráðinn og Skúli Helgason er ráð-
inn til að stýra „Þjóðarátaki fyrir Þjóðbókasafn.“
Stúdentaráð Háskóla íslands kveikti umræðu um
ijárskort Háskóla Islands með samanburði við
aðra háskóla á Norðurlöndunum. Utreikningar
SHI vekja eftirtekt og athygli landsmanna — og
ekki síst stjómmálamanna — beinist að Háskól-
anum. Kominn tími til, segja margir. í Morgun-
blaðinu þann 23. ágúst óskar Andri Már Þórar-
insson, brosandi háskólaráðsliði, stúdentum og
starfsliði Háskólans til hamingju með reyklausan
Háskóla. Á þessari stundu em Andri og kollegi
hans Brynhildur Þórarinsdóttir allsendis gmn-
laus um það írafár sem á eftir að blossa upp út af
reykingabanninu.
September
- Letjandi líkingamál
Mánuðurinn fer rólega
af stað og sagt frá því
DV 2. sept. í venju-
bundnum klisjustíl að
bílastæðum hafí íjölgað
við Háskóla Islands:
„Efnahagssamdráttur
og óhagstæðari náms-
lán virðast ekki fæla
stúdenta frá námi og
bifreiðaeign.“ Dásam-
leg setning sem sannar
enn á ný hversu lífseig
hún er þjóðsagan um
námsmenn og lúxusbíl-
ana.
Sundkortasamningur er
gerður á milli SHÍ og
ITR, enda Röskva við
völd í báðum batterium
og stúdentar geta kom-
ist í sund fyrir 17 kr.
Fyrsta Stúdentablað vetrarins lítur dagsins ljós
og fjórir piltar til heimilis að Suðurgötu 4 em
fyrstu viðfangsefni „Heimilishomsins“, hins vin-
sæla efnisþáttar. Piltamir em nú fluttir, partíið
búið og dálkurinn hættur göngu sinni. I septem-
ber gerast aukinheldur þau stórmerki að Stúd-
entablað Aðalsteins Leifssonar (ritstjóri, 1993-
1994) er
útnefnt til
jafnréttis-
verðlauna,
en hlýtur
þau ekki.
R a d d i r
heyrast um
mismunun.
Síðar í mán-
uðinum lýs-
ir Ólafur
G. Einars-
son forseti
Alþingis og
fyrrverandi
stjórnmála-
maður því
yfír á SUS-
þingi í
Kópavogi
að hann
hyggist beita sér fyrir afnámi skylduaðildar að
Stúdentaráði. Ólafur gerir ekkert meira í málinu
en stúdentar karpa dulítið um það á síðum dag-
blaðanna. Þann 19. september birtist tímabær
blaðagrein í eftirmiðdagsblaðinu DV, „Letjandi
líkingamál“, eftir Jón Erlendsson yfirverkfræð-
ing. Þar segir m.a.: „Samanlagt er allt þetta góss
sambland af hálfsannleika og hindurvitnum.
Þekkingarhækjur sem menn styðjast við þegar
ekkert annað er tiltækt. Vitsmunalega klunnaleg-
ar smíðar sem hafa mikil áhrif vegna kjamyrtrar
hnyttni en reynast illa vegna lélegrar eða rangrar
túlkunar á veruleikanum. í stuttu máli eins konar
grjótmulningur i gírkassa skynseminnar." Grein-
in er illskiljanleg en þó segja margir hana napra
ádeilu á málshætti og orðtök. Þetta hefur þó ekki
fengist staðfest.
En stúdentar láta heldur ekki sitt eftir liggja í
blaðagreinum. Umfangsmesta og ítarlegasta
blaðagrein um Smugudeiluna birtist í Stúdenta-
blaðinu, eftir þá Þórmund Jónatansson og Sig-
urjón Pálsson. Það hefur fengist staðfest því
greinin var hluti af námsefni í HI og var lesin
fyrir próf í viðskipta- og hagfræðideild.
Stúdentaráð stendur fyrir fommenntastefnunni
„Voru íslendingar garpar“ og fær landskunna
sem heimskunna fræðimenn til að halda fyrir-
lestra, m.a. Harvard-prófessorinn Dr. Warren
Treadgold. Skömmu síðar ákveður ríkisstjórnin
að leggja 7 milljarða til vegaframkvæmda. Það
Íþróttahátíð var haldin í október. Metþáttaka var í brids
DAEW00 2800
DAEWOO D5320 Pentium
DAEWOO 5200 Pentium
■ 60Mhz Intel Pentium
■ 256KB skyndiminni (mest 1MB)
■ 8MB vinnsluminni (mest 128MB)
■ 420MB diskur (256kb buffer)
■ 14“ lággeisla skjár (örtölvustýrður)
■ Overdrive sökkull, ZIF 237 pinna
■ 32-bita PCI Local Bus skjákort
■ 1MB myndminni (mest2MB)
■ PCI og ISA tengibrautir
■ MS-D0S, Windows og mús
■ Kr. 'tdiKiTlTll stgr. m/vsk
66Mhz Intel 486DX2
128KB skyndiminni (mest 256KB)
4MB vinnsluminni (mest 64MB)
420MB diskur (256kb buffer)
14" lággeisla skjár (örtölvustýrður)
Overdrive sökkull, ZIF
32-bita VESA Local Bus skjákort
1MB myndminni (mest2MB)
VESA Local Bus og ISA tengibrautir
MS-D0S, Windows og mús
75,90 og 100Mhz
256KB skyndiminni (mest 1MB)
8MB vinnsluminni (mest 256MB)
420MB diskur (256kb buffer)
14" lággeisla skjár (örtölvustýrður)
32-bita PCI Local Bus skjákort
meðWindowshraðli
PCI 32-bita Local Bus og ISA brautir
1MB myndminni (mest2MB)
1280x1024x256 liti
ZIF sökkull (320pin) fyrir framtíðar
Pentium Overdrive
Enhanced dual channel IDE á
32-bita hi speed PCI og ISA braut
Uppfyllir EPA og Plug and Play staðal,
hljóðlát vifta
2-háhraða enhanced (UART 16550)
Enhanced hliðtengi
(ECP og EPP) og músartengi
D0S 6.22, Windows 3.11 og mús
110.000
Kr.
stgr. m/vsk
EPA POLLUTION PREVENTER
159.000
Verð frá kr.
stgr. m/vsk |
o
Lykilí; aþ alhliba
'EINAR j. SKULASON HF
Grensásvegi 10, Sími 563 3000
VISA
RAÐGREIÐSLUR
' I T f* o