Stúdentablaðið - 01.05.1995, Blaðsíða 11
STBL. • Maí 1995
STÚDENTABLAÐIÐ
Bls. 11
I
I
Október
- hagsmunabarátta og brids
Þó farið sé að hausta er haldin þróttahátíð Há-
skólanum. Metþátttaka er í mótinu og einkum í
letigreinum; brids, skák og keilu. Félagslíf í Há-
skólanum lifnar við og laganemar standa fyrir
kennslumálaráðstefnu þar sem þeir deila nokkuð
á íhaldssemi og utanbókarlærdóm af páfagauk-
skyni. Laganemar eru ánægðir með ráðstefnuna
og hugmyndin um kennslumálaráðstefnur í sem
flestum deildum fær góðan hljómgrunn og aðrir
fylgja í kjölfarið.
Undirbúningur fyrir Þjóðarátakið kemst á fúllan
skrið og Vigdís Finnbogadóttir gerist vemdari
átaksins. Stjórnmálafræðinemar blanda sér inn i
umræðuna unt fjármál Háskólans og leggja til
opinberlega að allir stúdentar skrái sig úr þjóð-
kirkjunni því þá renni féð til Háskóla íslands.
Biskup íslands segir í kvöldfréttum að svona
tillögur sæmi ekki akademískum borgumm, ger-
ir ályktun Politicu að stórfrétt og hjálpar til við
að beina sjónum fólks að tjársvelti Háskólans.
Og enn em stúdentar í fararbroddi í umræðu um
ijármál Háskólans. Fundur er haldinn á vegum
SHÍ um fjárveitingar til HI. Háskólaráð spyr
Olaf G. Einarsson þáverandi menntamálaráð-
herra hvort stefnan sé að gera HI að annars
flokks háskóla. Dagur B. Eggertsson, formaður
SHÍ, biður Qölmiðlamenn að segja ekki
nokkmm frá því að hætta sé á að prófgráður frá
HÍ verði einskis virði. Fjölmiðlar bíta á agnið og
slá málinu upp. Og Háskólinn er enn í fjölmiðl-
um og nú út af bágum bókakosti.
Intemetið í Háskólanum kemst á allra varir. í
sjónvarpsþætti Loga Bergmanns Eiðssonar em
sýndar klámmyndir á tölvuskjám úr Háskólan-
um. Áhugi þjóðarinnar á Internetinu eykst til
muna en Intemet-gúrúar Háskólans fara í hol-
umar og fjarlæga klámið. Bóksala stúdenta
tengist Intemetinu, fyrst íslenskra verslana.
Stúdentar eggja þjóðina til
dáða í bókasafns-
málum og fá
blíða "
mót
Hrafn Jökulsson, skáld og rithöfund-
ur, sagði á haustdögum að bók-
menntafræðinemar væri sá þjóðflokk-
ur íslenskur sem einna minnst vit
hefði á bókmenntum.
Hvað vill Jón Yngvi Jóhannsson, bók-
menntafræðinemi, segja við Hrafn
Jökulsson?
„Þetta er örugglega rétt hjá Hrafni
(og Pjetri Hafstein Lárussyni vini
hans líka). Ég er líka viss um að ís-
lenskunemar eru ótalandi, verkfræði-
nemar hafa ekki verksvit, stjórnmála-
fræðinemar ekkert vit á pólitík, og al-
þýðuflokksmenn og ritstjórar þeirra
myndu ekki þekkja alþýðuna þó hún
kæmi og biti þá í nefið."
t ö k u i
og í leiðara
Morgunblaðsins
20. okt. segir m.a. að
það sé „aðdáunarvert hjá Stúdenta-
ráði að beita sér fyrir þjóðarátaki til að efla
þennan bókakost.“ Háskólinn leggur fram beiðni
um að takmarka aðgang að námi í Háskóla Is-
lands en frumvarp þess efnis nær ekki fram að
ganga á þingi. Stúdentar safna 700 þúsund krón-
um innan Háskólans með merkjasölu og afhenda
Einari Sigurðssyni, nýskipuðum landsbóka-
verði, sem fyrsta framlag í þjóðbókasjóð. Fjöldi
leikrita berst í leikritunarsamkeppni Stúdenta-
leikhússins og Stúdentaráðs.
Nóvember
Hemmi og Thor - vinir stúdenta
Hermann Gunnarsson lýsir því yfir í Stúdenta-
blaðinu sem sent var inn á öll heimili í landinu
að Þjóðarátak stúdenta sé „frábært mál!“ Sig-
urður Gíslason er ekki sammála Hemma, tekur
stórt upp í sig og segir í lesendabréfi í DV að
auglýsingin „Þjóðin þarf bækur“ ljómi af hroka
og vanmetakennd þeirra 19 manna sem lýsa yfir
stuðningi við átakið. Ekkert má nú. En Thor
Vilhjálmsson tekur Sigurð í bakaríið þegar hann
lýsir yfir stuðningi við þjóðarátakiðí
Stúdentablaðinu: „Því að ég vænti þess að fátt
verði til fyrirstöðu þegar hugumstór æskublómi
sameinast til að stuðla að því að íslendingar
svali áfram þeim metnaði að þjóð okkar geti
mælt sig við aðrar þjóðir og þá helst þær þar
sem siðmenningin blómgast sem best. Kjarval
sagði eitt sinn við okkur: Fólk sem lyftir aldrei
neinu í samtaki verður aldrei þjóð.“ Háfleygt og
hárrétt.
Verkáætlun Stúdenta er samþykkt í háskólaráði.
Mikill vilji er til þess að ganga strax í það sem
framkvæmanlegt þykir án mikils tilkostnaðar,
s.s. gerð stjómsýsluúttektar og ritun og sam-
þykkt siðareglna. Mikill hugur í mönnum. I
verkáætluninni er aukinheldur að finna hug-
myndir um stofnsetningu kennsluþróunarstofu,
aðstoðarmannakerfi og vildarvinafélagi, svo
dæmi séu nefnd. Nokkum kurr vekur að Röskva
leggi frarn tillögumar í eigin nafni, enda úr ýms-
um áttum. Mestu máli skipti þó að þær séu lagð-
ar fram, segja aðrir.
Stjórnmálafræðinemar gera það
ekki endasleppt og blása
til átaks til að auka
kosningaþátttöku
ungs fólks.
Gömul hug-
mynd skýt-
ur enn einu
sinni upp
kollinum;
stofnun
Háskólaút-
varps. Und-
rbúnings-
hópur boðar
útsendingar í
haust, en lítið hefúr
heyrst í þeim síðan. Góð
hugmynd engu að síður.
Danskur sérfræðingur um lánamál og
námsaðstoð, Klaus Bryll að nafni, kernur til
landsins í gallabuxum og heldur fyrirlestur á
málþingi um LÍN um danska námsaðstoðarkerf-
ið. Klaus talar á ensku.
Póstkortaherferð Stúdentaráðs fer á fullt. Um
16000 kort eru send til þingmanna, mörg hver
með kyndugum áletrunum. Steingrímur Sigfús-
son er hvattur til að standa upp í hárinu á stjóm-
inni (þá væntanlega Davíð?) og einhver Dúdda
þakkar einhverjum Ólafi Gé. fyrir allt: „Takk
fyrir allt, þín Dúdda.“ Dúdda hefur væntalega
grátið eins og við hin þegar Ólafur Garðar var
hækkaður í tign og launum. Póstkortaherferðin
vekur athygli og kátínu en að sama skapi vekur
óhug margra að Stúdentablaðið skyldi hafa
stolist í einkabréf af þessu tagi og birt úttekt.
Desember
- pragt en ekki pomp
1. desember. Fullveldisdagur. Hátíðisdagur stúd-
enta. Þjóðarbókhlaðan opnuð með pragt en engu
pompi, þar eð SHI hafði skorað á stjórn Þjóðar-
bókhlöðunnar að veita ekki kampavín og láta
peningana þess í stað renna í þjóðbókasjóð. Gott
mál, en vakti víst ekki rnikla lukku meðal þeirra
sem höfðu hugsað sér gott til glóðarinnar við að
væta kverkamar. Fína fólkið á íslandi mætir
uppáklætt og hlustar á skandinavíska bókaverði
halda ræður. Og Ólaf G. Kurr upphefst meðal al-
mennra stúdenta vegna þess að ekki var almenn-
ur aðgangur að opnuninni, en þeir stúdentar sem
vom boðnir, segja að ekki sé hægt að bjóða öll-
um — að alltaf þurfi að velja úr. Enn á ný kemur
í ljós að ekki er sama hvort rnaður er Jón eða
er 46 sinnum sú upphæð sem Háskólinn biður
um sem aukaframlag til þess að geta sinnt sínu
lögbundna hlutverki. Stúdentablaðið sendir
blaðamann í lok mánaðarins á tónleika bresku
sveitarinnar The Prodigy: Hann er þráspurður
af viðstöddum: Af hverju ertu með skegg?
©tlcnbtng-
arntr í
Hvað er margir erlendir stúdentar í
Háskóla íslands? Getur þú svarað
þessu, gæskan/góurinn. Nei,
sennilega ekki. Erlendu stúdent-
amir í Háskóla Islands eru nefni-
lega fleiri en flesta granar. Alls
stunduðu nám á síðasta vetri 211
erlendir stúdentar, frá öllum heims-
homum. Tæplega helmingurinn lagði
stund á íslensku fyrir erlenda stúdenta, eða 101. 62 vora í húmanísk-
um greinum og félagsvísindum, 25 í hjúkrunargreinum, 12 í raunvís-
indum og 11 í lögfræði og hag- og viðskiptafræðigreinum. Alls era
15 stúdentar hér á landi í gegnum Erasmus netið og alls 29 í gegnum
Nordplúsið. Ef litið er á þau lönd sem erlendu stúdentamir í Háskóla
íslands koma frá, þá era flestir frá Norðurlöndunum. Allmargir era
ffá Bandaríkjunum og Bretlandi, fáeinir frá Italíu og Þýskalandi,
nokkrir frá Eystrasaltslöndunum og einn frá Marokkó. Hér hafa auk
þess stundað nám í vetur stúdentar frá Mexíkó, Kína, Spáni, Japan,
Tékklandi, Búlgaríu, Bosníu, Ekvador, Bólivíu, Pakistan, Ástralíu að
ógleymdu Venesúela. Þetta er hin besta þróun og full ástæða til þess
að reyna að koma sem mest til móts við þarfir þessa fólks í þeim til-
gangi að „intcgrera" það á sem bestan hátt inn í íslenskt háskólasam-
félag.
séra Jón. En þrátt fyrir
þetta voru flestir ánægð-
ir enda afrakstur Þjóðar-
átaks stúdenta, 22,5
milljónir, afhentar Þjóð-
arbókhlöðunni. Dagur
stúdenta, tvímælalaust.
En ekki er neitt með öllu
gott svo ekki boði eitt-
hvað vont. Fjárskortur
safnsins skyggði á gleð-
ina. 80-140 milljónir var
talið að vantaði upp á og
upphófust deilur i fjöl-
miðlum um málið. Stúd-
entaráð beitti sér og
hvatti stjómvöld til þess
að nýta þá fjárfestingu
sem Þjóðarbókhlaðan er,
betur.
Stúdentablaðið greinir
frá kaupum á forláta
sófum í Læknagarði
sem kostuðu 2,7 milljón-
ir. Morgunpósturinn
kemst á snoðir um málið
og skúbbar fréttinni.
Umbrotsmaður Stúd-
entablaðsins er grunaður
um lekann og er leystur
frá störfum.
í desember var tilkynnt
að allur ágóði af bókinni
Þjóð á Þingvöllum eftir Ingólf Margeirsson sem
gefin er út af Vöku-Helgafelli, rynni til Þjóðar-
bókhlöðunnar. Önnur bók, stórvirkið „Sorry
Mister Boss“ hlýtur fyrsta sæti í vali bóka sem
maður gefur fólki í jólagjöf sem manni er einkar
í nöp við.
Og enn var Þjóðarbókhlaðan í fréttunuin því eft-
ir opnun kom á daginn að nestismál vora í ó-
lestri. Kurr er í stúdentum þegar nest-
isbann er sett á þá í miðjum
próflestri en landsbókavörður
telur það rýra virðingu safn-
ins að stúdentar borði þar
nesti. Stúdentar mótmæla
harðlega því hlutskipti
að þurfa að kaupa
kaffiteríunni rándýrt
snittubrauð skreytt með
grænmeti, eða svelta
ella. Nestismálið ógur-
lega bar nokkum keim
af taugatitringi í kring-
um prófatímann og
komandi Stúdentaráðs-
kosningum.
Og svo lýkur prófum og Há-
skólinn fer á ball. Tvær fylk-
ingar í Háskólanum berjast um
ballglaða háskólastúdenta. Sálfræði-
nemar, heilbrigðisgreinar og fleiri halda ball á
Hótel íslandi en kollegar þeirra í laga-, við-
skipta- og hagfræðideild sem og í verkfræðinni
þramma í Perluna. Soffía, félag heimspekinema,
gerir sig seka um tækifærismennsku og lýsir yfir
stuðningi við bæði böllinn. Hannes H. Gissur-
arson flýgur til Rio de Janeiro til að eyða þar
áramótunum á Copacabana-ströndinni. Hann
hefur e.t.v. hitt þar fyrir hagfræðinema sem voru
í útskriftarferð á sama tíma. Svo koma jólin, og
glöggið rennur í stríðum straumum.
Janúar
- í nafni vísindanna ...
Árið hefst með nýársávarpi forseta Islands. I því
tekur Vigdís Finnbogadóttir upp málflutning
stúdenta og Háskólans og skorar á alla stjóm-
málaflokka að setja menntamál í öndvegi fyrir
næstu kosningar. Áskorunin vekur fyrst í stað
litla athygli en Stúdentablaðið slær því upp að
þetta sé í fyrsta skipti sem Vigdís skorar beint á
stjómmálamenn og eggjar þá til dáða.
Stúdentaráð hlýtur Menningarverðlaun Visa
að upphæð 300 þúsund krónur sem renna til
bókakaupa. Stúdentar eru þar í hópi með
Einari Má Guðmundssyni, Auði Haf-
steinsdóttur og fleira af góðu fólki. í
kjölfar flutninga Háskólabókasafnsins
yfir í Þjóðarbókhlöðu er hátíðarsalur
Háskóla Islands færður í upprunalegt
horf við hátíðlega athöfh. Salurinn er
forkunnarfagur og hreint ótrúlegt að
honum hafi verið „fómað“ undir
bókasafn öll þessi ár. Margir sakna
samt lestrarsalarins, en þó er gert ráð
fyrir lestrarmöguleikum þarna áfram.
Hagsmunabaráttan ber árangur. Við
þriðju umferð fjárlaga er ákveðið að
veita 80 milljónum aukalega til skólans.
Sveinbjörn Björnsson, rektor, segir bar-
áttu stúdenta hafa skilað miklu.
Uttekt Stúdentablaðsins á vísindaferðum í Há-
skólanum vekur mikla athygli og úlfúð í garð
blaðamanns. Örn Úlfar Sævarsson segir í þeirri
umfjöllun Stúdentablaðsins að það „að gimast
vín er hluti þess að vera Islendingur" og skil-
greinir rétt stúdenta til ókeypis vínveitinga í vís-
indaferðum sem kjaramál. Laganemi á 3. ári
kallar ferðimar „þönder“, á kjamgóðri íslensku.
Hið virta fréttablað Morgunpósturinn sér ástæðu
til að birta sömu grein 6 vikum síðar með nýjum
myndum og æsifréttafyrirsögn.
Lesstofumál voru í brennidepli í janúar. Engu
líkara'var en að stjómvöld í Háskólanum litu svo
á að í kjölfar opnunar Þjóðarbókhlöðunnar gætu
þau einfaldlega skorið niður lesrými stúdenta
Hvað dettur Skúla Helgasyni, framkvcemda-
stjóra átaksins skondið í hug, þegar minnst er á
Þjóðarátakið i dag?
„Ja, mér dettur helst í hug símtal ffá afar vingjam-
legri konu sem hringdi þegar Þjóðarátakið stóð
sem hæst og hafði tekið eftir slagorði okkar
„Þjóðin þarf bækur.“ Konan vildi leggja sitt af
mörkum og spurði hvar hún ætti að afhenda sitt
Þjóðarátakið
skilaði 22,5
milljónum til
bókakaupa
einkasafn af Rauðu ástarsögunum sem gjöf til
safnsins. Mér sortnaði fyrir augum og sá fyrir mér
að nú hefði slagorðið aldeilis komið i bakið á
okkur og við fengjum yfir okkur mannhæðarháa
stafla af mölétnum ástarrómönum sem landinn
hefði blóðmjólkað. Svo fór nú ekki en þetta sýndi
í örlítið afskræmdri mynd að fólk tók a.m.k. eftir
þessu brölti okkar!“