Stúdentablaðið - 01.05.1995, Qupperneq 22
Bls. 22
STÚDENTABLAÐIÐ
STBL. • Maí 19
Sértrúarsöfnuður sumarsins var heimsóttur af Stíg Stefánssyni.
sérlegum útsendara Stúdentablaðsins. Hann gengur svo langt að
kalla einingarhof Hamsah Manarah
Sértrúarhópar af öfgakenndara taginu hafa verið mjög i kast-
ljósi heimsfréttanna undanfarin ár og eru þar oftar en ekki
hörmungarfregnir á ferð. Nægir þar að minnast eiturga-
sárásanna í Japan á dögunum, fjöldasjálfsmorðanna í Sviss
og umsáturs um söfnuð Davids Koresh i Waco, Texas. í
kjölfar þess síðastnefnda komst sértrúarhópur nokkur í Frakklandi
mjög í þarlendar fréttir. Söfnuður sá rekur sinn eigin her líkt og
„brunaliðið“ vestra og hefur sterkan og einráóan leiðtoga ekki ó-
svipaðan Koresh. Allt er þó mun geggjaðra og stærra í sniðum í
Frakklandi auk þess sem trúargrunnurinn er allmiklu flóknari. Það
að kukla með kristindóminn einan þætti ekki bera merki um mik-
inn metnað á þeim bænum enda er um að ræða eins konar sam-
runasúpu aðskiljanlegra trúarbragða. Yfirlýst markmið er að sam-
eina hin ólíku andlit eóa birtingarform guðdómsins og er helstu
trúarbrögðum heims slegið saman undir forystu Messíasar hins
nýja, sem ber hið dulúðlega nafn: Hamsah Manarah. Utan um
þessar samkrullshugmyndir leiðtogans hafa áhangendur og fjár-
sterkir lærisveinar reist heilt þorp í frönsku Ölpunum sem þeir af
einhveijum ástæðum kjósa að nefha
borg. Hin helga borg Mandarom
Shambhasalem er mikið nafn og
prýðir byggðalagið.
Jesú, Búdda og Hamsah
Manarah, hver annar?
íbúarnir telja sig geta troðið öllum
trúarbrögðum heims innan ramma
sinna eigin kennisetninga og skiptir
þar engu hvort um er að ræða frum-
stæða andatrú í Afríku eða ein heims-
trúarbragðanna fjögurra. Borgin er
ansi hreint undarleg samsuða trúar-
tákna, furðulegir spíralar eru út um
allt og við hlið hindúahofsins er ís-
lömsk moska. Aðalsérkenni borgar-
innar eru þrjár risavaxnar styttur sem
gnæfa við himinn. Ein er af Jesú,
önnur af Búdda en sú stærsta sem Allir finna eitthvað við sitt hæfi
stendur á milli þeirra er stytta sem hinn Búddha,og Hamsah Manarah
reynast geimleikfangabyssur ekki ólíkar þeim sem sjást í
Star Trek, ágætri kvikmynd sem Háskólabíó hefur nú til
sýningar. Þar fara vemdarar hinnar helgu borgar.
Tígulspeglar og torræð tákn
Útsendari Stúdentablaðsins tók hús á þessum furðusöfnuði
fyrir skemmstu og ákvað strax að láta reyna á þá fullyrð-
ingu að öll trúarbrögð heims rúmuðust innan ómismans
eins og hinir trúuðu nefna kenningu sína. í samtali við
safnaðarmeólim þóttist blaðamaóur vera ásatrúar og kvaðst
blóta Þór, hinn sterka og vígfima ás. Viðmælandinn var
kona um fertugt af óljósu þjóðemi. Hún var klædd í hefð-
bundinn einkennisklæðnað safnaðarins sem er furðuleg
múnderíng; skærbláir síðir jakkar með svörtum foldum
(sloppasnið), rauðar kahki buxur og rautt ennisband alsett
merkingarþrungnum smáglingri svo sem þríhymings- og
tígulspeglum, og torræðum táknum. Lítið vildi konan kann-
ast við Þór en þóttist heldur betur þekkja vin hans Óðinn og
var greinilega
ekki vel heima í
flóknum fjölskyldu-
tengslum ása. Raunar
var á konunni að
skilja að hún ætti í
tvíhliða viðræðum
við hinn æðsta ás
nánast upp á hvem
einasta dag og hafði
hún ekkert nema gott
af yfirguði forfeðra
okkar að segja.
Ómið er móður-
hljóð
Lítið fékk útsendari
blaðs allra stúdenta
til sjávar og sveita að
einingarhofinu: Jesú,athafna sig í borginni
og var ægiskjótt af-
hógværi leiðtogi hefur látið reisa af sjálfum sér. Við aðalhlið borg-
arinnar er fjöldi styttna af minni guðum eða svo til í mennskri
stærð. Þeir halda á undarlegum tólum sem við nánari aógæslu
vopnaóur myndavélinni sem ætlað var að festi herlegheitin á filmu.
Ekki reyndist mögulegt að fá að ræða við Messias hinn nýja en
vopnaðir varðliðar vísuðu slíkum beiðnum kurteislega en ákveðið
Einingarhofið sem er óðum að rísa
á bug. Hins vegar var snápur upplýstur nánar um ómismann og
ingönguskilyrði safnaðarins. Fyrst dvelst væntanlegur meðlimur i
nokkrar vikur í borginni við nám í kennisetningum fræðinnar en að
þeim tíma loknum fær hann að hitta Hamsah Manarah við einhvers
konar vigsluathöfn eða fermingu. Meistarinn kynnir hinum nýinn-
vígða svo hið eina sanna óm-hljóð, móðurhljóð allra hljóða. Ómið
er hljóðið sem hinn mikli arkitekt alheimsins tautaði fyrir munni
sér við sköpun hans, það er lykilinn að fortíð, nútíð og framtíð og
forsenda alls æðri skilnings. Hið hreina og sanna óm-hljóð er hins
vegar ekki ætlað utanaðkomandi og er varðveitt af kostgæfni innan
veggja safnaðarins.
Boðið að láta fé af hendi rakna
Þegar blaðamaður Stúdentablaðsins falaðist eftir því að heyra hinn
hljómþýða óm var því óðar vísað á bug en blaðamanni bauðst hins
vegar að gefa fé til byggingar hins mikla einingarhofs pýramídans
sem nú rís í hinni helgu borg. Pýramídahofið er samblanda af
kirkju, hofi, sýnagógu og mosku og yfirleitt öllum þeim vistarver-
um þar sem trúarbrögð eru ástunduð. Andlega sinnaðir stúdentar
sem vilja leggja fé til byggingar hofsins geta nálgast adressuna á
ritstjórnarskrifstofum Stúdentablaðsins en vísa verður þeim annað
sem leita óm-hljóðsins og veraldarskilnings.
Stígur Stefánsson
félagsstofnun stúdenta
ÞAKKAR STUDENTUM SAMSTARFIÐ
OG sameyegdina í VETUR
Ferðaskrifstofa stúdenta bók/U^ /túdeivfo
Húsnæðisdeild Kaffistofur