Stúdentablaðið - 01.05.1995, Page 23
STBL. • Maí 1995
S P R E L L
Bls. 23
Floamarkaður til styrktar fötluðum stúdentum á
Ingólfstorgi sunnudaginn 11. júní
Húsgögn og húsbúnaður, grill og gosdrykkir, trúðar og töframenn, sól og sumar
að hagnaður dagsins rynni til kaupa á
fjölnota tölvu fyrir fatlaða stúdenta í
HÍ,“ sögðu þeir Pétur og Páll í samtali
við Stúdentablaðið. Þeir bættu við að
tölvan sem væri í sigtinu myndi nýtast
afar mörgum hópum, s.s. blindum og
heymarskertum, líkamlega fotluðum
stúdentum og þar fram eftir götunum.
„Vonandi tekst okkur þetta ætlunarverk
og stúdentar geta sýnt okkur stuðning
með því að líta við og kaupa muni —
það er hægt að gera kostakaup hjá okk-
ur,“ sögðu þeir kumpánar.
Trúðar, kórsöngur og sprell
Þ:
að verður ýmislegt fleira í gangi
|en flóamarkaðsmál þennan dag,
því stefnt er að því að vera með
ýmiss konar uppákomur allan daginn.
Von verður á trúðum og leiktækjum fyr-
ir blessuð bömin, Háskólakórinn mun
taka lagið og vonir standa til að Stúd-
entaleikhússfólk muni troða upp. Þeir
Lionsmenn munu aukinheldur grilla
ofan í landslýð.
Flóamarkaðurinn mun standa frá 10.00
árdegis til 16.00 síðdegis og mun enda með allsherjaruppboði á þeim hlutum
sem enn verða óseldir. Þá er allt útlit fyrir að sodastream-tæki og fótanudd-
tæki fari fyrir lítið. Stúdentablaðið hvetur alla lesendur sína til sjávar og
sveita til að koma á sjómannadaginn 11. júní og eiga kaup við þá Pétur og
Pál og félaga þeirra í Lionsklúbbnum Víðarr. Þetta ftumkvæði þeirra á það
fyllilega skilið.
ast
■ sla
ur
ann 11. júni næstkom-
andi stendur Lions-
klúbburinn Víðarr fyrir
sínum árlega markaðsdegi.
Hagnaðinum af sölunni er
ætlað að verja til kaupa á
fjölnota tölvu fyrir fatlaða
stúdenta. Félagar í Víðarr
hafa undanfamar vikur safn-
að ýmsum vamingi úr kytr-
um og kompum landsmanna
og hyggjast selja allt frá hús-
gögnum niður í húsbúnað,
sunnudaginn 11. júní. For-
ráðamenn söfnunarinnar von-
ast til þess að stúdentar og
starfslið Háskólans taki við
>ér og leiti í geymslum, dyr-
Tírh og dyngjum, og láti eitt-
hvað af hendi rakna til söl-
nnar. Ekki síður er þaö ósk-
andi að stúdentar sýni þessu
máli áhuga, með því að mæta
á flóamarkaðinn og kaupi
grillað kjet og gamla muni.
Kaupa á fjölnota tölvu
ir fatlaða
t
a:
JLJLs
ð sögn Péturs Más
um Víðarr er þetta í þriðja skipti sem þessir valinkunnu sómamenn
standa fyrir markaðsdegi, til styrktar góðum málstað. „Við heyrðum
af því að aðstaða fatlaðra stúdenta í Háskólanum væri bágborin, einkurn
vað varðar tækjakost. Þess vegna ákváðum við í samráði við Námsráðgjöf,
Smáauglýsingar
Páfagaukur fæst gefins!
Þetta er ótrúlegt en satt, gauksi er á lausu. Ein-
staklega geðgóður og hreinlegur páfagaukur
fæst gefins. Tilvalin gjöf í fermingarveisluna eða
útskriftarpartíið. Gauksi blístrar á morgnana en
þegir á kvöldin. Sómagaukur. Upplýsingar í síma
5522795.
Sófi óskast, sófi óskast!
Óskað er eftir sófa eða hægindastól gefins, má
vera útlifaður. Sækjum heim. Svarað í síma
5514994 eftir klukkan 19.00. J. og S.
Ástarkúla óskast!
Hver man ekki eftir Ástarkúlunum frá Ingvari og
Gylfa? Það voru kúlulaga rúm í rósrauðum lit í n.k.
star-trek-stíl. Sannkölluð unaðar- og ástardyngja
fyrir elskendur á tölvuöld. Óska eftir að kaupa
Astarkúlu. Uppl. í síma 5621080.
Skepnuskapur
og sumarfrí
Ljósmyndamaraþon SHÍ1995 - ÚRSLIT
Hið árlega Ljósmyndamaraþon SHÍ var
haldið á kosningadaginn 1995 og var þátt-
taka ágæt. Var þátttakendum gert að
niynda eftir 12 mismunandi þemum og var valin
besta rnynd hvers myndeíhis. Jafnframt var valin
besta serían.
I
I
I
I
I
HVERER
. MAÐURINN?
■ 1 nn og aftur heldur dálkurinn „hver er mað-
|H urinn?“ áfram göngu sinni. í síðasta blaði
JL—Vvar umsjónarmaður heldur betur að
skensa, því hann birti aftur mynd af manninum
sem var maðurinn í fyrsta skiptið! Skondið, ekki
satt. Eini gallinn var sá, að eitthvað virðist hafa
farið úrskeiðis í prentun á myndinni svo m.a.s.
gleggstu þrautakóngar gátu ekki ráðið gátuna. En
áfram heldur dálkurinn. Og nú er úr vöndu að
ráða. Maðurinn í þetta skipti er fyrrverandi há-
skólanemi og var í Vöku. Hann er íjölmiðlamað-
ur á RÚV, eða íslenska sjónvarpinu, eins og
amma kallar það. Hann var fréttaritari sjónvarps-
ins í Danmörku í nokkur ár en kom heim til ís-
lands til að taka við af Ingva Hrafni þegar hann
var látinn flögra á braut. Hann er með stórt og
bogið nef og fyrsti stafúrinn í nafni hans byrjar á
bé. Sem fyrr er utanlandsferð til Kamtschaka
með Ferðaskrifstofu Stúdentablaðsins og sendist
svör til ritstjómarskrifstofa blaðsins fyrir næstu
helgi. En þangað til, farið varlega.
Kostakjör
Stúdentablaðið heldur áfram óeigingjami leit sinni að kostakjömm fyrir háskólastúdenta, og er fund-
víst að vanda. Eins og lýðum er ljóst, em kostir alþjóðasamstarfs, einkunt Evrópusamstarfsins, ótví-
ræðir. Umbætur konta nefnilega yfirleitt að utan, rétt eins og upphefð og umtal. Enn ein sönnun þess
birtist okkur íslendingum á dögunum, þegar EES-dómstóllinn knúði íslensk stjómvöld til þess að fella
niður tolla af bjór, en á íslandi er bjórsala ríkinu tekjulind, en ekki borgurum mannréttindi. Eftir að
Friðrik Sophusson hafði þráast við að hlýta alþjóðalögum, neyddist hann loks til að fella niður tolla.
Niðurstaðan: 9% verðlækkun á bjór. Níu prósent. Það þýðir á íslensku að nánast tíundi hver drukkinn
bjór er ókeypis, og 9 bjórar af hverjum 100 eru nú gratís. Og svo voga menn sér að tala um fullveldis-
afsal og skrifræðisskrímslið í Brússel. Þetta eru tvímælalaust kostakjör sumarsins og kjarabót ársins.
Og nú þarf Verslunarráð að kæra verðlagningu og innflutningsstýringu á léttvínum og Orator, félag
laganema, ætti að ftnna sér blóðið renna til skyldunnar.
Um leið og ég þakka
stúdentum samfylgdina í vetur
hvet ég þá til að nýta sér þessi
kostakjör.
Reykjavík, Ó Reykjavík
- Erling Aðalsteinsson
Betra ísland - Páll ísólfur Ólason
Sumarfrí - Ólafur Ág. Axelsson
Vísindin efla alla dáð - Jón Pétur Einarsson
Skepnuskapur - Valgerður Johnssen
Verðugur launa sinna - Ólafur Ág. Axelsson
Kjarni ntálsins - Gunnar K. Gunnlaugsson
Lán - Hjördís Geirdal
Mismunun - Ólöf Sara Arnardóttir
Minn tími er kominn - Birgir og Kristinn
Heildarlausn - Per Mats Henje
Mín dýpsta þrá - Lýður Guðmundsson
Besta myndin var valin úr myndaröðinni Betra
ísland og varð mynd Hjördísar Geirdal sem
getur að líta á forsíðu, fyrir valinu. Besta serían
að rnati dóntnefndar var myndasería eftir Per
Mats Henje og óskar Stúdentablaðið honum og
öðrurn vinningshöfum til hamingju með
velgengnina.
Ólafur G. Einarsson
Stúdentar -
Gleðilegt sumar
Landsbanki íslands.
Reykj avíkurapótek.
Happdrætti Háskóla
íslands.
ofannefnd fyrirtæki styrktu út-
gáfu þessa blaðs
Ja, hverfjárinn. Síðasta Stúdenta-
blaðið komið út í vetur. Það þýðir
að sumarið mun líða í ringulreið
og rugli. Firringu.
Tja, við getum þó altént skellt okk-
ur á sumarhátíð Stúdentablaðsins
næsta laugardag. Þar verða víst
allir sem einhverju máli skipta, Óli
Gé. og svona. Við mætum.
Stúdentablaðið vill að lokum þakka öllum þeim sem tóku óeigingjarnan þátt í hinum sívinsælu „límingum" blaðsins og forðuðu ritstjóra frá sturlun. Að síðustu vill ritstjóri þakka þeim Steingrími Eyfjörð, umbrots- og myndlistarmanni, og Ellerti
Þór Jóhannssyni, prófarkalesara, fyrir samfylgdina í vetur og sendir þeim saknaðar- og alúðarkveðjur og bestu óskir um gæfu í leik og starfi.
r
L