Réttur - 01.10.1983, Side 47
Ójöfnuðurinn í heiminum
í Afríku er einn læknir á hverja 50.000
íbúa. f Evrópu er einn læknir á hverja 800
íbúa.
í rómönsku Ameríku eiga 1,3% af
jarðeigendum 71,6% af öllu ræktuðu
landi.
í Asíu verða 4 af hverjum 5 skólabörn-
um að hætta í fjögra ára barnaskóla
vegna fátæktar.
En einnig í Evrópu er ójöfnuðurinn
meðal íbúanna gífurlegur. Athugum það
ríka land Sviss:
Einn hundraðasti fullorðinna í Sviss á
þriðjung allra einkaeigna í landinu, 5%
eiga helminginn. Fjórðungur íbúanna á
engar eignir. Auðvitað eru „aðkomu-
verkamennirnir“ ekki reiknaðir með.
Og þá er að líta á hin forríku Banda-
ríki: Þjóðarframleiðslan nemur um 3000
miljörðum dollara á ári. Það ætti að vera
nóg handa öllum. En fátæklingunum
fjölgar, auðmennirnir græða æ meir. 12
miljónir manna eru atvinnulausir. 30% af
framleiðslumöguleikum iðnaðarins er
ekki notaður, vélarnar standa kyrrar.
Væru öll þessi hjól sett í gang mætti fram-
leiða verðmæti, er næmu 300 miljörðum
dollara. og væru þeir rúmir 200 miljarðar
dollara, sem nú er eytt í vígbúnað, notað-
ir í þarflega hluti, þá væri vissulega hægt
að fullnægja félagslegum þörfum, sem
nú er ekki sinnt: t.d. láta sjúka fá ókeypis
rúm og hjálp á sjúkrahúsum, sem nú er
látnir deyja drottni sínum, ef þeir eiga
ekki fyrir sjúkrakostnaði. (Islenskar
verðandi mæður koma heim til íslands til
að fæða börn sín, af því slíkt gerir menn
gjaldþrota í Bandaríkjunum!)
Vaxandi atvinnuleysi í
auðvaldslöndunum
Auðmannastéttin og afturhald alt reyn-
ir að hagnýta sér þá auðvaldskreppu, sem
nú gengur yfir Vesturlönd og ekki sér fyr-
ir enda á, til þess að lækka laun verka-
fólks og svifta það ýmiskonar mannrétt-
indum, er það hafði áunnið sér. — Vér
þekkjum dæmin þegar hér heima. — Þar
að auki vofir svo tölvubyltingin yfir, sem
m.a. mun valda því í Vestur-Þýskalandi
að af 4 miljónum vélritunarstúlkna verði
tveim miljónum sagt upp á næstu tveim
árum. — Það er því vissulega tími til
kominn í þessum löndum að launastétt-
irnar rísi upp og taki völdin í sínar
hendur, ef ekki á illa að fara.
Tökum hið auðuga Vestur-Þýskaland
sem dæmi um hvernig verkalýðurinn er
leikinn: atvinnuleysið aukið í sífellu: í
byrjun árs 1984 voru 2,26 miljónir verka-
fólks atvinnulaust, 425 þúsundum meira
en 1983. — Á sama tíma óx gróði at-
vinnurekenda um 15%. — Fyrir æskulýð-
inn er útlitið svartast.
Hlutfallstala atvinnuleysingja miðað
við vinnufært fólk fer sívaxandi, þrátt fyr-
ir framleiðsluaukningu í atvinnulífinu.