Alþýðumaðurinn


Alþýðumaðurinn - 28.08.1962, Qupperneq 4

Alþýðumaðurinn - 28.08.1962, Qupperneq 4
Maffhías Jochumsson f, 1 1/11 1835 að Skógum 1 Þorskafirði. — Búsettur ó Akureyri fró 1887—1920 (dónarór). Líf og björg á báðar hendur, blómatún og engi frjó; síldai'hlaup og sjóbirtingar silfurglitra lygnan sjó. Sett er borð, en sægur fugla syngur hátt, að veitt er nóg. Leita skip að lægi blíðu, ljómar vor um ránar skaut, enginn leit á láði ísa listum-fegri hafnarbraut; ekkert hérað haganlegri höfuðstað sér kaus og hlaut. AKUREYRI Heil og blessuð, Akureyri, Eyfirðinga höfuðból! Fáar betri friðarstöðvar fann ég undir skýjastól: hýran bauðstu börnum mínum blíðufaðm og líknarskjól. Þú átt flest, sem friðinn boðar, fjarðardrottning, mild og holl, vefur grænum fagurfaðmi fiskiríkan silfur-„poll“, en í suðri Súlur háar sólargeislum prýða koll. Skrúðaveggur Vaðlaheiðar vendir að þér betri hlið; ramlegt fjall með reknar herðar reisnir gafl við hánorðrið; út og suður sveitaraðir sumargrænar taka við. Hér er mitt á milli tveggja megin öfga, fjörs og hels: stöðugt móti illum árum andar banda fagrahvels, sælublíðir sumarvindar sefa reiði frosts og éls.

x

Alþýðumaðurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.