Alþýðumaðurinn - 02.10.1962, Síða 1
XXXII. árg.
Þriðjudagur 2. október 1962
33. tbl.
Ritstjóramir gistii Kóttl Sögu
í M hételstjórans
og ætluðu ekki oð geta slitið sig þaðan
í viðgerSrskóla F. í. ó Rcykjavíkurflugvclli. Skrúfuþota að baki. Sveinn Sæmundsson, blaðafulltrúi F. í. lengsf til
vinstri. Þriðji fró vinstri, Asgeir Samúelsson, gamall Akureyringur, er yfirverkstjóri vcladeildar. - Ljósm. B. Thomsen.
H|á Flngfélagi íslandi á ReykjavíkurfIugvelli;
Mikil alúð lögð við að
veita sem öruggasta
flugþjónustu
Hinn 3. júní sl. voru 25 ár liðin
frá stofnun Flugfélags Akureyrar,
er nú heitir Flugfélag íslands h.f.
í örstuttum annál hljómar saga
þess svo:
1937: Stofnað 3. júní á Akur-
eyri fyrir forgöngu Agnars Kofo-
ed Hansen. Fyrsta stjórn: Vil-
hjálmur Þór, form., meðstjórn-
endur: Kristján Kristj ánsson og
Guðm. Karl Pétursson.
1938: Fyrsta flugvélin, TF—
Orn, 5 sæta sjóflugvél keypt.
Fyrsta flug hennar milli Reykja-
víkur og Akureyrar 2. maí.
1939: Örn Ó. Johnson gerist
forstjóri flugfélagsins og hefur
verið það síðan.
1940: Nafni félagsins breytt í
Flugfélag íslands h.f. og heimili
þess flutt til Reykjavíkur.
Það ár er og önnur flugvél fé-
lagsins keypt, Haförn.
1941: Fyrsta reglubundna áætl-
unarflugið innanlands hafið, milli
Rvíkur og Akureyrar.
1942: Fyrsta 2 hreyfla flugvélin
keypt. Fastar áætlunarferðir hefj-
ast milli Reykjavíkur og Egils-
staða.
1944: Þrjár flugvélar bætast í
flugflota F.Í., þar á meðal fyrsti
Katalínaflugbáturinn. Honum
flogið frá Ameríku til íslands af
íslenzkri áhöfn. Fyrsta flug ísl.
áhafnar á ísl. flugvél yfir Atlants-
haf.
1945: 11. júlí fyrsta millilanda-
farþegaflug F.í. Flugstjóri Jó-
hannes Snorrason. Flogið til Skot-
lands.
1946: Tvær flugvélar leigðar til
millilandaflugs. Fyrsta Dakota-
flugvélin keypt.
1948: Fyrsta flugvélin til milli-
landaflugs keypt.
1950: Grænlandsflug hefst. F.í.
gengur í Alþjóðasamband flug-
félaga.
1951: F.í. tekur við öllu reglu-
bundnu áætlunarflugi innanlands.
Flutningar þess aukast jafnt og
þétt, bæði farþegaflutningar og
vöruflutningar.
1954: Önnur millilandaflugvél
keypt.
1955: Auk áætlunarflugs innan-
lands flogið til Glasgow, London,
Hamborgar, Kaupmannahafnar og
Oslóar.
1957: Tvær Viscount-skrúfu-
þotur keyptar.
1961: Cloudmasterflugvél keypt.
Það gefur auga leið, að á bak
við alla þá þjónustu, sem Flug-
félag íslands hefur veitt og veitir,
liggur margháttuð skipulagning
og margs konar vinna, enda munu
nú starfa hjá F.í. alls um 350
manns.
S.l. föstudag bauð F.í. ritstjór-
um ýmissa blaða utan Reykjavík-
ur að skoða bækistöðvar sínar í
höfuðborginni, en áður hefur það
boðið fréttamönnum frá sömu
blöðum að skoða afgreiðslur sínar
erlendis.
Ritstjórar Akureyrarblaða fóru
héðan undir fararstjórn Kristins
Jónssonar, forstjóra, en Sveinn
Sæmundsson blaðafulltrúi F.Í.,
var leiðsögumaður, þegar suður
kom.
Fyrst voru skoðaðar hæki-
stöðvar F.í. á Reykj avíkurflug-
velli: afgreiðsla, húsnæði flug-
stjórnarmanna, viðgerðarverk-
stæði, lagerar, pöntunar- og bók-
unardeildir o. s. frv. Auk þess
kennsluverkstæði verðandi flug-
virkja, öryggistækjadeild, nám-
skeiðsherbergi, eldhús og mat-
stofa.
Viðgerðarverkstæðið skiptist í
deildir eftir viðfangsefnum og
fara þar fram víðtækar viðgerðir,
skoðanir og skiptingar á hinum
ýmsu hlutum, sem eina flugvél
mynda með tækjum hennar og
öllum búnaði. Fylgir því starfi
mikil árvekni og ábyrgð, og mátti
glöggt kenna, að F.í. leggur mjög
Um leið og Flugfélag íslands
bauð ritstjórum Akureyrarblað-
anna -—- og fleiri blaða utan
höfuðborgarinnar — til höfuð-
stöðva þess í Reykjavík til kynn-
ingar á starfsemi þess ýmiss kon-
ar, bauð Þorvaldur Guðmunds-
son, forstjóri Hótel Sögu, hins
nýja, glæsilega hótels í Bænda-
höllinni, þeim að gista „Söguna“
kynningartímann.
Bar ritstjórunum — sem flestir
hafa allvíða farið á skyndiferðum
— öllum saman um það, að vist-
legra hótel hefðu þeir hvergi gist,
bæði hvað gistiherbergi og allan
búnað þeirra snerti, viðmót og
þjónustu starfsfólks að ógleymd-
um matsal — og vínbar, sem að
vísu var enn þurr, sumum til hrell-
ingar, en öðrum til mikils hug-
léttis, eins og gengur.
Eins og kunnugt er, hefur Hótel
Saga hluta Bændahallarinnar
undir: Á 1. hæð er fordyri hótels-
ins og afgreiðsluskáli auk skrif-
stofu bókhalds og forstjóra, á 5.,
mikla áherzlu á að hafa flugkost
sinn í fyllsta lagi, svo að öryggi
farþeganna sé sem bezt tryggt,
enda félagið verið farsælt með
flug sitt, svo sem þekkt er. M. a.
hefur F.í. tekið upp þann hátt að
kenna ungum mönnum flugvirkj-
un, svo að síður verði skortur á
vel hæfum starfskröftum í þá iðn-
grein. Þá hefur félagið árleg nám-
skeið til aukins náms eða upprifj-
unar fyrir flugmenn og flugfreyj-
ur, og eru öryggismálin þar efst
á baugi.
Þegar bækistöðvar F.í. höfðu
verið skoðaðar á Reykjavíkur-
flugvelli var gengið á fund Arnar
Ó. Johnsonar, framkvæmdastjóra,
en yfirstjórn F.í. er til húsa í
Bændahöllinni, 4. hæð, og eru
þau húsakynni mjög vistleg.
Var þar spurt og spjallað drykk-
Ianga stund um starfsemi F.í. al-
mennt, áætlunarflug til hinna
ýmsu staða innanlands, flugvéla-
kost félagsins og áætlanir eða at-
huganir varðandi endurnýjun
hans og sitthvað fleira.
Öll var kynningarför þessi hin
fróðlegasta og ánægjulegasta. Hér
á Akureyri hefur F.í . ætíð notið
trausts og virðingar fyrir störf
sín, og þessi kynningarför dró
ekki úr þeirri skoðun, að hvar-
vetna væri vel um alla þræði hald-
ið og viljinn og getan til góðrar
og öruggrar þjónustu réði hvar-
vetna ríkjum hjá F.í.
6. og 7. hæð eru svo gistiherbergi
og eru a. m. k. 5. og 6. hæð full-
búnar og frágengnar til þeirrar
þjónustu, en á 8. hæð, efstu hæð
,,Hallarinnar“ er m. a. vínbar og
veitingasalur með tilheyrandi að-
stöðu til afgreiðslu veitinga. Er
veitingasalurinn, sem er raunar
gluggar í stað veggja á þrjá vegu,
rómaður fyrir það útsýni, er hann
veitir yfir höfuðborgina og fjalla-
faðminn umhverfis allt vestan frá
Snæfellsjökli austur um og suður
á Reykjanesfjallgarð. Auk þessa
er salurinn sérstæður og smekk-
legur að skreytingu og búnaði.
Hefur þar verið leitað til íslenzks
iðnaðar — hvað búnað snertir —
eftir föngum og sama er að segja
um ganga og gistiherbergi.
Mikil aðsókn mun hafa verið
að Hótel Sögu frá því rekstur þess
hófst, hins vegar er sitthvað enn
ekki fullbúið, sem hótelið mun
ætla að starfrækja eða fyrirhugað
er að starfrækja í tengslum við
hótelið. Stendur á frágangi hús-
næðis til þessara hluta, en Bænda-
höllin er enn í byggingu, svo sem
kunnugt er.
Kynningarboð F. í., hvað rit-
stjóra Akureyrarblaðanna snerti,
stóð frá föstudagsmorgni til laug-
ardagsmorguns s.l., en ekki hóf
nema einn ritstj óranna — ritstj óri
íslendings — sig til flugs norður
þá. Ritstjórar Alþm. og Vm. sátu
hið fastasta til laugardagskvölds,
en ritstjóri Dags lét sig hvergi
hræra fyrr en á sunnudag.
Sín í milli sögðust ritstj órarnir
hvergi vilja frá Hótel Sögu fara
og hinum yfirlætislausa og við-
mótsþýða forstjóra þess og prúða
afgreiðslufólki.
Á Reykj avíkurflugvelli voru
sumir ritstjóranna hins vegar
spurðir að því í gamantón, hvort
„innrás“ þeirra í Reykjavík —
sbr. fyrirsögn í Tímanum — væri
„runnin út í sandinn”, en heima á
Akureyri fundu gárungarnir það
út, að ritstjórarnir mundu hafa
„dottið í það“ hjá F. í. og þeim
mun verr, sem þeir sneru síðar til
baka úr förinni.
N Ý PRENTSMIÐJA
hefur verið stofnsett hér í bæ,
Valprent, og er til húsa í Gránu-
félagsgötu 4. Prentsmiðjan mun
annast prentun umbúða og ýmis-
legt smáprent.