Alþýðumaðurinn - 14.01.1965, Side 1
ALÞYÐU
MADURINN
ARG. 1. TBL.
YR\, FIMMTUDAGUR 14. JAN. 1965
Fjár hagsdcetlun hœjar-
sjáðs Akureyrar afareídd
Niðurstöðntölur 74.513.50» kr.
I tsvör 45.167.500 kr.
Á þriðjudag sl. fór fram í
bæjarstjórn Akureyrar síðari
umræða um fjárhagsáætlun bæj-
arsjóðs Akureyrarbæjar.
Nokkrar breytingartillögur
höfðu kornið fram frá bæjar-
fulltrúum, sumt nýir liðir. Aðal-
breytingar, sem urðu á áætlun-
inni við umræðurnar voru þær,
að framlag úr Jöfnunarsjóði
sveilarfélaga hækkaði um 600
þús. kr. og framlag bæjarins til
Almannatrygginga og atvinnu-
leysistrygginga lækkaði saman-
lagt um 500 þús. kr.
Á móti þessu kom nýr liður,
framlag til skólagarða og ungl-
ingavinnu, 150 þús. kr., framlag
til skíðalyftu var hækkað um
100 þús. kr., styrkur til barna-
heimilis IOGT að Böggvistöðum
49 þús. kr. og til Sjóferðafélags
Akureyrar 10 þús. kr.
Við ofangreindar breytingar
lækkaði áætlun útsvara um 900
þús. kr. og verður 45.167.500
kr. Er sú upphæð um 22.5%
hærri en samsvarandi útsvarsá-
ætlun síðasta árs.
Framhald á bls. 2.
Ténshóli Shogafjarðor seltur
Sauðárkróki, 6. jan.
Jól og áramót liðu hjá með
svipuðum hætti og vant er. Á
aðfangadag fóru jólasveinar um
bæinn með sleða í eftirdragi og
útbýttu gjöfum til barna, mun
það ekki hafa gerzl hér fyrr.
Skemmtanalífið hefur verið í
fullum gangi; dansleikir tíðir
bæði hér í félagsheimilinu Bif-
röst og eins úti um sveitirnar.
Leikfélagið hafði þrjár sýn-
ingar á Gullna hliðinu milli jóla
og nýárs fyrir fullu húsi og
sunnudaginn 2. janúar var sýn-
ing á Blönduósi.
Ljósaskreytingar utan á íbúð-
arhúsum og á trjám í görðum
voru meiri en nokkru sinni fyrr
en liins vegar mikið minna um
götuskreytingar en áður, hvort
sem þar mun hafa ráðið ein-
hver efnishyggja eða eitthvað
annað.
M.ið árle'ga barnaball kvenfé-
lagsins var haldið á Þrettándan-
um.
Komu þar saman öll börn og
ungmenni bæjarins og undu við
leiki, dans og söng frá hádegi
til miðnættis. Einníg koma þar
margir fullorðnir og allir með-
taka þar skemmtun og veitingar
að vild sinn.i, sér að kostnaðar-
lausu.
Fyrirhugað er að hafa álfa-
dans og brennu laugardaginn 9.
janúar. Er það á vegum Sjálfs-
bjargar, félags fatlaðra og lam-
aðra. Mun Karlakór Sauðár-
króks aðstoða, en söngstjóri
hans er Ogmundur Svavarsson.
Þriðjudaginn 5. janúar gerð-
ist hér sá merkisatbuvður, að
settur var Tónlistarskóli Skaga-
fjarðar í fyrsta sinni. Aðalfor-
göngumaður að stofnun skólans
hefur verið Eyþór Stefánsson
tónskáld, og er hann skóla-
stjóri. Aðalkennari er frú Eva
Snæbjörnsdóttir og hefur hún
hlotið menntun sina við Tónlist
arskólann í Reykjavík.
Að baki skólanum stendur
Tónlistarfélag Skagafjarðar, sem
stofnað var sl. haust. Hefur það
hlotið góðar undirtektir hjá hér
Framhald á bls. 2.
Ávnrp frii framjinemdanefnil DnviWsis
Undanfarið hefur verið mikið rætt um kaup á húsi Davíðs Stefánssonar frá Fagra-
skógi, svo að það mætt,i verða geymt sem minjasafn um skáldið. Hópur áhugamanna
um kaupin hefur kosið framkvæmdanefnd til að annast það mál, og hefur Stúdenta-
félagið á Akureyri einnig lieitið málinu fylgi sínu og valið fulltrúa í nefndina. Nefnd-
in kallaði fréttamenn blaða á fund sinn og hafði Þórarinn Björnsson, skólameistari,
formaður nefndarinnar, orð fyrir henni. Skýrði hann frá undirbúningi málsins og
hét á liðsinni blaðanna. Afhenti hann þeim eftirfarandi ávarp til almennings um fjár-
söfnun. Þess er að vænta, að hinir mörgu aðdáendur skáldsins taki vel undir fjár-
söfnunina, svo að húsið megi varðveitast sem þjóðargjöf.
‘ . ^Tr, If'
Á V A R P — Að Bjarkarstíg 6 á Akureyri stendur hús Davíðs Stefánssonar frá
Fagraskógi. Hús þetta lét Davíð sjálfur reisa og bjó þar einn meira en tvo áralug.i.
Húsið með öllu, sem í því er, minnir á Davíð einan. Ifver hlulur geymir brot af
hugsun hans og srnekk. Hér kvað hann ýmis fegurstu ljóð sín, og segja má, að sjálf
þögn hússins sé eitt af ljóðum skáldsins.
Þegar við andlát Davíðs var um það rætt, að heimili jijóðskáldsins yrði að varð-
veita eins og hann skikli við það í hinzta sinn. Tækifærið var einstakl til þess að
geyma minningu andlegs höfðingja og mikils Islendings. Allir virlust sammála. Aðeins
Jiurfti einhverja til að hefjast handa.
Nú hefur Akureyrarbær riðið myndarlega á vaðið með jrví að kaupa hið dýrmæta
bókasafn skáldsins. Erfingjar hafa gefið húsmuni Davíðs og listmuni. Eflir er liúsið
eitt, og virðist einsætt, að hér komi til hlutur |ijóðarinnar allrar. Davíð var meira
en Akureyringur eða Eyfirðingur. Hann var Islendingur, jijóðskáldið, sem langa ævi
naut meiri ástsældar en flest, ef ekki öll íslenzk skáld fyrr og síðar. List hans stóð
djúpum rótum í íslenzkri Jijóðmenningu og Jijóðarsál. Hér er Jiað einmitt Jijóðarinnar
allrar að sýna þakklæli í verki og ræklarsemi. Á jiví vaxa allir.
Áhugamenn á Akureyri, ásamt Stúdentafélaginu á Akureyri, hafa tekið höndum
saman um að efna til samskota með Jrjóðinni til kaupa á húsi Davíðs. Vér treystum
því, að þeim mörgu Islendingum, víðs vegar um land, sem sótt hafa yndi í ljóð Dav-
íðs Stefánssonar á liðnum árum, sé það Ijúft að gjalda svo skuld sína við skáldið,
að þeir leggi eitthvað af mörkum, til þess að heimili Davíðs frá Fagraskógi megi varð-
veitast sem eitt af véum íslenzkrar menningar.
Dagblöðin í Reykjavík sem og önnur blöð i bæjum landsins eru beðin að birta
ávarp þetta, og jafnframt er þess vænzL, að þau taki á móti framlögum. Einnig er
mælzt til þess við unnendur Davíðs úti um land, í sveit og við sæ, að þeir hafi for-
göngu um fjársöfnun, og geta Jreir snúið sér til einhvers úr framkvæmdanefnd og feng-
ið senda söfnunarlista. —- Gjaldkeri söfnunarinnar er Haraldur Sigurðsson, Útvegs-
bankanum, Akureyri, pósthólf 112.
I framkvæmdanefnd:
Þórarinn Björnsson. Brynjólfur Sveinsson, Guðmundur Karl Pétursson,
Sigurður 0. Björnsson, Sverrir Pálsson, Freyja Eiríksdóttir,
Ragnheiður Árnadóttir, Aðalgeir Pálsson, Haraldur Sigurðsson.