Alþýðumaðurinn - 27.05.1965, Blaðsíða 1
ALÞYÐU
MAOURINN
Hraðfrystihúsið gaf ca. 600 þús. kr. í hagnað með
framleiðslu 47 þús. kassa af freðfiski.
Aðalfundur Útgerðarfélags
Akureyringa h/f var haldinn s.l.
mánudag í kaffisal Hraðfrysti-
Speglun — Kyrrð: Vi3 höfnina ó Dalvík var fyrrum oft fjörugf athafnalif, en nú hefur hrammur afla- 09 atvinnu-
leysis lagzt á reisuleg atvinnutæki. (Ljósm.: S.).
HANDRITAHEIMT
Miðvikudagsins 19. maí 1965
mun lengi verða minnst í ís-
lenzkri sögu. En þá samþykkti
meirihluti þjóðþingsins danska
að afhenda Islendingum handrit
þau, sem geymd eru í dönskmn
söfnum og samkomulag er um
að Islendingar fái í sínar hend-
ur. En þetta er ekki einungis
merkisviðburður í íslenzkri
sögu, heldur í allri sögunni um
samskipti þjóða í milli. Meiri-
liluti danska þingsins sýndi þar
meiri viðsýni og vilja til vin-
samlegrar sambúðar v.ið aðra
þjóð en dæmi eru til um, þar
sem þjóð hefur látið af yfirráð-
um sínum yfir annarri. Mun þess
áreiðanlega verða lengi getið.
En það er líka vert að minnast
þess, hvernig flokkaskipting
danska þingsins varð um málið,
og hin gleðilegu úrslit þess eru
fremur öðru að þakka hinni ein-
beittu og óhvikulu forystu Al-
þýðuflokksins danska. Án lienn-
ar hefði málið ekki náð fram að
ganga, svo mjög sem róið var
gegn því af tilteknum aðilum.
Vér Islendingar hljótum að
fagna þessuin úrslitum. Með
þessari samþykkt danska þings-
ins er endi bundinn á áratuga
langt deilumál, mál, sem verið
hefur oss mikið tilfinningamál
en erfitt að sækja, þar sem óskir
vorar hvíldu eingöngu á sögu-
legum rétti, en ekki á lagabók-
stöfum. Því betur gerðu þeir Dan
ir, sem lögðu síðustu hönd á
verkið.
Handritin eru með réttu þjóð-
ardýrgripir og þjóðarauður vor
íslendinga. I hugum vorum get-
ur aldrei hvílt nokkur vafi á því,
Tilkynning frá Fegrunarfélagi
Akureyrar. —- Þeir lóðareigendur ó
Akureyri sem enn hafa ekki lokið
hreinsun ó lóðum sínum, eru óminnt
ir um að hafa lokið því ekki seinna
en þriðjudaginn 1. júní n. k. —
Fegrunarfélagið mun sjó um að
fjarlægja rusl af lóðum sem komið
verður ó götukanta en tilkynna þarf
um það í síma 11374 (Jón Krist-
jónsson) n.k. mónudag og þriðju-
dag kl. 17 til 19 bóða dagana.
Fegrunarfélagið.
að þau eru íslenzk eign, verk ís-
lenzks hugar og handa, hvaða
hártoganir sem einhverjir fræði-
skrjóðar setja fram í þeim efn-
um, um að þau séu norræn eða
evrópsk sameign. Ef eign vor ís-
lendinga á þeim væri vafasöm
mætti með jafnmiklum rétti
segja, að hvert einasta ritverk,
sem fjallaði um annað efni en
þjóðar höfundarins væri sam-
eign hans og þeirrar þjóðar, sem
efnið vær.i frá tekið. Það er
raunar furðulegt, að menntaðir
menn skuli láta sér slíkar firrur
um munn fara í alvöru.
En nú mun að því koma að
vér endurheimtum hinar gömlu
liækur úr aldalangri útlegð. Ef
þær hefðu mál og tilfinningu
mæltu þær vissulega frá mörgu
segja. Allt frá þeim tíma, að
verið var að skrá letur á bók-
fellið í íslenzkum torfbæjum fyr-
ir hundruðum ára og til þess
dags, sem þær verða aflur born-
ar undir íslenzkt þak. Og von-
andi verðum við þess umkomn-
.ir að veita þeim þær viðtökur,
sem þeim ber.
húss félagsins. Formaður félags-
stjórnar, Albert Sölvason, setti
fundinn og nefndi til fundar-
stjóra Sverri Ragnars og fund-
arritara Pélur Hallgrímsson.
I upphafi ræðu sinnar minnt-
ist formaður látinna starfs-
manna, þeirra Helga Pálssonar,
Jóhannesar Jónassonar og Gunn-
ars Geirssonar og risu fundar-
menn úr sætum í virðingar-
skyni. I skýrslu stjórnarinnar
kom m. a. fram, að á árinu liafði
íélagið greitt í vinnulaun
27.857.653 kr. á rúmlega 900
launamiðum, eða sem svaraði
til, að 10. hver maður í bænum
hefði atvinnu af fyrirtækjum
Ú. A.
Útflutningsverðmæti afla og
vinnslu urðu um 47 millj. kr.
1 Að skýrslu formanns lokinni
skýrði Gísli Konráðsson fram-
kvstj. reikninga félagsins liðið
ár.
Þar kom fram, að alls hefðu
togarar félagsins farið 65 veiði-
ferðir, þar af siglt 20 söluferðir
og afli alls orðið 6.971.978 kg.
Togurunum Hrímbak og Kald-
bak var lagt á árinu. Þeim fyrr-
nefnda 14. maí en þeim síðar-
nefnda 12. febrúar. Afli togar-
anna skiptist þannig: Selt í Bret-
landi í 9 söluferðum 970.307 kg.,
selt í Þýzkalandi í 11 söluferð-
um 1.365.736 kg., losað á Akur-
i hjó U. A.
eyri 4.581.745 kg. og úrgangui'
í Krossanes 54.190 kg.
Freðfiskur til útflutnings frá
Hraðfrystihúsi Ú. A. varð
47.500 kassar.
Reksturhalli Ú. A. varð á ár-
inu, með afskriftum 8.578.172
kr., en án afskrifta 4,2 milljónir.
Er lialli á rekstri skipanna
allra frá 1.2 millj. til 2.6 millj.
kr., en athyglisvert er að hagn-
aður af rekstri Hraðfrystihúss-
ins er tæplega 600 þús. kr., þrátt
fyrir að sáralítið hefur þar verið
unnið á árinu.
1 lok fundar urðu nokki'ar
uniræður um framtíð félagsins
og kom m. a. fram eftirfarandi
tiilaga frá bæjarstjóra, Magnúsi
E. Guðjónssyni f. h. bæjarráðs:
„Aðalfundur Útgerðarfélags
Akureyringa h/f, haldinn 24.
maí 1965 felur stjórn og fram-
kvæmdastjórn félagsins að gera
lillögur um framtíðarrekstur fé-
lagsins. Samþykkir fundurinn að
tillögur þessar verði lagðar fyrir
bæjarstjórn Akureyrar svo fljótt
sem aðstæður leyfa.“
Var tillaga þessi samþykkt
samhljóða.
í lok fundar kom fram hjá Vil-
helm Þorsteinssyni, framkvstj.,
að afli togaranna vær.i orðinn
meiri og hefði gefið meira Verð-
mæti fyrstu mánuði þessa árs en
verið hefði á sama tíma í fyrra.
Á fundinum kom einnig fram
að um þessár mundir væru liðin
20 ár frá stofnun félagsins, en
það var stofnsett 26. maí 1945.
Cowfrcðgiilir i HoregsfSr
Nýútskrifaðir gagnfræðingar
Gagnfræðaskóla Akureyrar, alls
80 manna hópur lagði upp í
skólaferðalag til Noregs í gær-
morgun, og ætla þau að heim-
sækja vinabæinn Álasund. Far-
arstjóri verður skólastjórinn,
Sverrir Pálsson, en einnig fara
með hópnum nokkrir kennarar
skólans.
Vegna þoku var tekin ákvörð-
un urn, að fara með bílum suður
lil Keflavíkur, því ekki var talið
treystandi á, að flugvélin, sem
er norsk, gæti lent á Akureyrar-
ílugvelli.
Er til Álasunds kemur, liefur
koman verið undirbúin á marg-
an liátt, þar munu Akureyrsku
gagnfræðingarnir sitja kvöld
samsæti með gagnfræðingum
Álasunds, keppt verður í knatt-
spyrnu, og bærinn og nágrenni
hans skoðað undir leiðsögn
heimamanna.
I vetur söfnuðu gagnfræðing-
arnir Akureyrsku fé til farar-
innar, með ýmsum hætti, og
varð þeim vel ágengt. Blaðið
óskar ferðalöngunum góðrar og
ánægjulegrar ferðar.
TOGARARNIR
Togarinn Svalbakur seldi í
Bretlandi 185.6 tonn á mánudag
fyrir 14851 £, er það ágæt sala.
Togarinn Sléttbakur landaði
einnig á mánudag hér heima
148.4 tonnum, og fór sá fiskur