Alþýðumaðurinn - 03.06.1965, Blaðsíða 1
ALÞÝÐU
Furðulegt lendingarbann
MAOURINN
Tryggvi Helgason, flugmaður,
kallaði blaðamenn á fund sinn
í gær, og sagði þeim furðulega
sögu af skiptum sínum við flug-
málastj órnina dönsku.
Svo stendur á, að úti í Færeyj-
Söngfólk i Kirkjukórasambandi Ey jafjarðarprófastsdæmi.
ur er skipið Steingrímur trölli
til viðgerðar, en skipasmíðastöð-
in er fátæk af ýmsum varahlut-
um, og nú var verkið að stöðv-
ast vegna þess að þar vantaði
smáhlut í vél. Var Tryggvi beð-
inn að fljúga með stykki þetta,
sem vegur um eitt kílógramm,
til Færeyja.
Tilmælin fékk hann á mánu-
dagsmorgun, og um leið tók
hann að leita eftir við ýmsa
aðila um lendingarleyfi í Fær-
eyjum. Atti hann tal við sendi-
herra Dana í Reykjavík, Flug-
félag Islands og flugmálastjórn-
ina, og töldu allir aðilar að vand
kvæðalaust yrði að fá lendingar-
leyfi í Færeyjum. í trausti þess
að leyfið fengizt, og það væri í
raun réttri aðeins formsatriði,
Iagði Tryggvi af stað seint á
mánudag, en varð að snúa við,
er komið var miðja leið, sakir
þoku.
Enda þótt leyfiö væri ekki
komið á þriðjudagsmorgun, og
hann gæti ekki náð sambandi
við flugmálastjórnina, lagði
hann aftur af stað, en er komið
var um þriðjung leiðar barst
honum skeyti gegnum flugmála-
stjórn íslands þess efnis, að hon-
um væri harðbannað að lenda í
Færeyjum, nema um nauölend-
ingu væri að ræða. Sneri hann
þá við og var fluginu þar með
lokið.
Þegar hann ræddi við blaöa-
menn seinni part þriðjudags,
hafði hann enn ekki náð sam-
bandi við Hauk Claessen, sem
gegnir embætti flugmálastjóra í
fjarveru hans, til þess að spyrj-
ast fyrir um nánari atvik að
Framháld á bls. 6.
Aðalfundur KEA
28.5% aukning í veltu K.E.A. á árinu
Þingað um Surtsey
Enda þótt Surtsey sé yngsti
hluti lands vors, og vafasamt að
hún sé enn fullsköpuð, þá hefur
hún þegar átt sitt -þing. Að vísu
var það ekki valið af eyjar-
skeggjum sjálfum, sem enn eru
ekki nema nokkrir máfar, sem
koma þar í heimsókn og hvíla
sig, eða selir, sem fá sér sólbað á
sandi eyjarinnar.
lJing Surtseyjar var haldið í
Reykjavík, dagana 27.—29. maí
s.l. sóttu það 40 fulltrúar þar
af 17 erlendir. Auk nokkurra
þeirra jarðfræðinga, sem feng-
izt hafa við rannsókn eyjarinnar
frá upphaíi, voru- þetta vísinda-
menn í líffræði, bæði sjávar- og
landlífvera. Viðfangsefni ráð-
stefnunnar var að gera áætlanir
um, hversu haga skuli rannsókn-
um á því, hvernig lífverurnar
nema land á Surtsey, en jafn-
framt að fylgjast með þeim
breytingum, sem verða kunna á
lífinu í sjónum umhverfis eyna.
Hér er um að ræða mikilsvert
rannsóknarefni sem vakið hefur
athygli víða um heim, og erlend-
ar vísindastofnanir, einkum am-
eriskar, hafa tjáö^sig fúsar til
að styrkja bæði með fjárfram-
Iögum, og leggja til menn til að
vinna að rannsóknum, þar sem
íslenzka vísindamenn vantar.
Gerði ráðstefnan áætlun um
rannsóknir þessar i framtíðinni,
og ná þær rannsóknir á öllum
lífverum allt frá hinum smæstu
til hinna stærstu. Slíkar rann-
sóknir hafa ekki einungis marg-
þætt vísindalegt gildi, heldur má
einnig draga af þeim marga lær-
dóma um hagnýt efni en umfram
allt eiga þær að gefa oss svör
um, hvernig lífverurnar nema
nýtt land. En framtíðarrannsókn
ir í Surtsey eru áætlaðar að ná
um víðara svæði. Uppi í jöklum
gerist það á ári hverju, að nýir
tindar skjóta upp kollinum, eftir
að hafa legið hundruð eða þús-
undir ára undir jökli. Brátt taka
lífverur, plöntur og dýr að tylla
tánum á tinda þessa, og ýmis-
legt er þar sambærilegt og um
landnámið í Surtsey. Er því ætl-
unin að taka einhverja slíka
tinda til rannsóknar samtímis
eynn.i, og gera þar samanburð.
Þá er og ákveðið að taka Vest-
mannaeyjar allar til nákvæmr-
ar líffræðilegrar rannsóknar, og
ef til vill einhver svæði á strand-
lengju Suöurlands. Þótt Surtsey
sé skammt undan landi, er hún
þó umflotin sæ, sem veldur líf-
verunum verulegum tálmunum
til að ná eynni. Ekki er því ó-
sennilegt, að landnám lífveranna
í Surtsey geti gefið oss einhverj-
ar bendingar um það, hvernig
Iifverurnar hafa borizt yíir haf-
ið til íslands á sínum tíma.
En til þess að gild svör fá-
ist við þeim spurningum, sem
rannsóknirnar eiga að svara, er
eitt nauðsynlegt öðru fremur, og
það er að eyjan sé friðuð fyrir
ágangi manna, annarra en
þeirra, sem þar þurfa að vinna
að rannsóknum. Ríkti fullkom-
inn einhugur í því máli á ráð-
stefnunni, og voru hinir erlendu
vísindamenn ekki síður ákveðn-
ir í því efni en íslendingarnir.
Síðan friðun Surtseyjar fyrir
heimsóknum kom til tals hér á
landi hafa heyrzt um það ýmsar
raddir. Mönnum finnst þetta hót-
fyndni og það hafi enga þýð-
.ingu. En þegar ákveðið hefur
verið að gera eyna að einskonar
vísindalegri rannsóknastöð, og
kalla má, að það viðfangsefni
hafi vakið heimsathygli, eða a.
m. k. athýgli í heimi vísindanna
hér báðum megin Atlantshafsins,
Framhald á bls. 6.
Sl. þriðjudag hélt KEA aðal-
íund sinn í Samkomuhúsi Akur-
eyrar. í skýrslu félagsstjórnar
kom fram, að góðæri hafði ríkt
í starfsemi félagsins á sl. ári,
nam heildarvelta félagsins rúm-
um 700 millj. kr. og varð aukn-
ingin 28.5% á þessu eina ári.
Allar verksmiðjur félagsins
skiluðu framleiðsluaukningu og
má geta þess, að Efnagerðin
Flóra efldi Menningarsjóð fé-
lagsins um 110.000.00 kr.
Framleiðsluaukning mjólkur-
afurða nam 6.8% og kom fram,
að mjólkurframleiöslan sé orð-
in of mikil fyrir innanlandsmark
að. Sauðfjárafurðir urðu hins
vegar minni en árið á undan og
lítil aukning varð á sjávarafurð-
um.
- Byggingaframkvæmdir voru
allmiklar, byggð var kjörbúð á
Syðri Brekkunni, við Byggða-
veg, í Hrísey var verzlun
félagsins flutt í nýtt og vistlegt
húsnæði, unnið var áfram við
byggingu kj ötvinnslustöðvarinn-
ar og bygging mjólkurstöðvar
var hafin.
HefDíilHÍ tagt frm þinn skerf!
ÞAÐ BYGGIST nú meir en nokkru sinni fyrr á sölu miSa í Happ-
drætti Alþýðublaðsins, hvort blaðið heldur áfram að koma út eða
ekki. Þess vegna er þess fastlega vænxt að allir þeir, sem vilja styðja
blaðið á cinhvern hátt, leggi fram sinn skerf fyrir 20. júní.
VIÐ DRÖGUM TVISVAR í þessu happdrætti, í fyrra sinn 20.
júní næstkomandi og hið siðara í desember. Miðar, sem keyptir eru
nú, gilda cinnig í desember.
I JUNI verður dregið um tvær sumarleyfisferðir, báðar fyrir tvo.
Önnur ferðin er til New York, en hin til meginlands Evrópu. í des-
ember verður dregið um þrjá bíla, einn Landrover og tvo Volkswogcn.
ÞEIRRI ÁSKORUN er scrstaklcga beint til allra þeirra, sem hafa
miða til sölu, að þeir geri skil sem allra fyrst, ekki síðar en 20. júní.
SÖLUUMBOÐ Á AKUREYRI hjá STEFÁNI SNÆBJÖRNSSYNI,
Véla og raftækjasölunni, Hafnarstræti 100.