Alþýðumaðurinn - 15.07.1965, Page 1
ALÞÝÐU
MADURINN
Kjarasamningar komnir á
í Reykjavík og Hafnarfirði
Frá stálskipasmíðinni i Slippstöðinni h. f. (Ljósm.: Niels Hansen)
Yfirlýsing ríkisstjórnnrinnar om
fluknor úrbstur i húsmeðismálum
Héi> íer á eftir yfirlýsing sú,
sem ríkisstjórnin gaf út í sam-
bandi við kjarasamninga þá, er
undirritaðir voru í Reykjavík
sl. föstudag. Sleppt er þó þeim
atriðum, er snerta Reykvíkinga
eina, enda þótt ætla verði, að
þau verði ekki sérréttindi þeirra
nema fyrst í stað.
„9. júlí 1965.
I lilefni að lokum samninga
við verkalýðsfélögin og að und-
an gengnum viðræðum við full-
trúa ríkisstjórnarinnar og full-
trúa ifrá Alþýðusambandi ís-
lands varðandi húsnæðismál,
lýsir ríkisstjórnin yfir því, að
hún muni beita sér fyrir eftir-
farandi:
1) Lánsupphæð til þeirra um-
sækjcnda um íbúðalán, sem
liófu byggingaframkvæmdir á
tímabilinu 1. apríl til 31. desemb-
Sl. föstudag náðist samkomu-
lag í kjaradeilu þeirri, er verka-
ei' 1964, hækki úr 150 í 200 þús.
kr. út á hverja íbúð. Ríkisstjórn-
in tryggi viðbótarfjáröflun til
Húsnæðismálastjórnar á þessu
ári, er nemi því viðbótarfjár-
magni, sem þessi hækkun krefst.
2) Hámarkslán Húsnæðismála
stjórnar verði endurskoðað frá
og með 1. janúar 1966, með
hliðsjón af hækkun vísitölu
byggingakostnaðar frá því 1.
júlí 1964% Lánsupphæðir verði
síðan endurskoðaðar árlega með
hliðsjón af breylingum bygg-
ingarkostnaðar frá því árið áð-
ur. Næstu finnn árin skal hækk-
un lánsupphæðar ekki nema
lægri upphæð en 15 þús. kr. á
ári, jafnvel þótt byggingarkostn-
aður hækki lítið eða ekki.
3) Bygging hagkvæmra íbúða
fyrir láglaunafólk rverkalýðsfé-
lögum.
4) Unnið verði að því af
hálfu ríkis og sveitafélaga að
tryggja láglaunafólki húsnæði,
sem ekki kosti það meira en
hóflegan hluta árstekna. í þessu
skyni verði nú hafin endurskoð-
un laga um verkamannabústaði
Framhald á bls. 3.
lýðsfélög í Reykjavík og Hafn-
arfirði hafa átt í síðan um miðj-
an júní. Varð þannig forðað al-
mennu verkfalli.
Meginatriði hins nýja sam-
komulags eru:
— Vinnuviko verður 44 klukku-
stundir með óskertu grunnkaupi.
— Allt grunnkaup hækkar um 4%.
— 5% kauphækkun eftir tveggja
ára samfellt starf hjá sama at-
vinnurekanda.
— I veikinda- og slysatilfellum
fær verkafólk nú rétt á allt að
14 daga kaupi auk þess réttar,
er það áður hafði.
— Eftirvinnuálag vcrður 50% á
dagvinnukaup en næturvinnu-
álag 91 %.
— Gerðar voru margvíslegar taxta
tilfærslur og breytingar, sem
verkalýðsfélögin hafa lagt á-
herzlu á að næðu fram að
ganga.
Samkomulag þetta var stað-
fest á fundum Dagsbrúnar, Hlíf-
ar, Framsóknar, Framtíðarinnar
og Vinnuveitendasambands ís-
lands og gildir það til 1. júní
næsta ár.
Meginalriði hinna nýju samn-
inga eru sem hér segir:
1) Vinnuvikan verði 44 klst.
með óskertu grunnkaupi, og unn
in á tímabilinu kl. 8—17 mánu-
daga til föstudaga og kl. 8—12
á laugardögum. Akvæði samn-
inganna um vinnutíma haldist
að öðru leyti en því að nætur-
vinna telst frá kl. 12 á laugar-
dögum.
2) Allt grunnkaup liækki um
4%.
3) Verkafólk, sem öðlazt hef-
ur rétt til óskerts vikukaups,
skal eftir 2ja ára samfellt starf
hjá sama atvinnurekanda eiga
rétt á 5% kauphækkun á sama
hátt og mánaðarkaupsmenn.
4) I veikinda- og slysatilfell-
um skal verkafólk, er réttar nýt-
ur skv. lögum nr. 16, 9. apríl
1958, eiga auk ákvæða laganna,
rétt á allt að 11 daga kaupi.
I þessu sambandi skal vera
fylgt sömu reglum og um greiðsl
ur og framangreind lög kveða
á um.
5) Eftirv.innuálag skal vera
50% á dagvinnukaup, en nætur-
og helgidagaálag skal vera 91%
á dagvinnukaup.
6) Gjald atvinnurekenda í
styrktar- og/eða sjúkrasjóði fé-
laganna greiðist samkvæmt þeim
reglum, er gillu á síðasta samn-
ingstímabili, einnig á þeim
tíma, er samningar voru lausir.
7 J Tilsvarandi ákvæði orðist
svo:
„Nú hefur verkamaður/verka
kona unnið 6 klst. eða meira
samfellt í næturvinnu, og skal
hann/hún þá fá minnst 6 klst.
hvíld, ella greiðist áfram nætur-
vinnukaup, þó að komið sé fram
á dagvinnutímabil.“
8J Verkafólk, sem vinnur
hluta úr degi samfellt hjá sama
vinnuveitanda, skal njóta sama
réttar um greiðslur fyrir samn-
ingsbundna frídaga, veikinda-
og slysadaga, starfsaldurshækk-
anir o. fl. og þeir, sem vinna
fullan vinnudag og skulu greiðsl
ur miðaðar við venjulegan'
vinnutíma aðila.
Nú fellur niður vinna hjá at-
vinnurekanda svo sem vegna
þess að hráefni er ekki fyrir
hendi hjá fiskiðjuveri . fl. og
skal verkafólk einskis missa varð
andi framangreind réttindi af
þeim sökum.
Aðilar urðu ásáttir um að
skipa átta manna nefnd með 4
Framh. á bls. 3.
Munið vangetna
í viðtali við vikublaðið Dag
í næslsíðasta tölublaði, greinii
formaður Styrktarfélags vangef
inna á Akureyr.i, Jóhannes 01
Sæmundsson, frá mörgu alhygl
isverðu og þykir Alþýðumannin
um rétt að vekja athyglí á bar
áttumáli Jóhannesar um leið og
minnt er á happdrætti það, er
stuðla á að því að hér rísi dag-
heimili fyrir hið ógæfusama
foík, er hlotið hefur skarðan
hlut frá borði, hvað vitsmuna-
legt algerv.i snertir.
Samkvæmt upplýsingum J ó-
hannesar munu um 70—80
manns vera á Mið-Norðurlandi,
er þarfnast aðstoðar í þessu efni.
Alþýðumaðurinn vill hvetja
almenning til að veita þessu
nauðsynjamáli lið og gott er að
vita, að enn eru til menn, sem
berjast fyrir hugsjónum og þess
vegna, góðir Akureyringar, Ey-
firðingar og Þ.ingeyingar, mun-
ið happdrætti Slyrktarfélags van
gefinna, látið þið Jóhannes Óla
Sæmundsson finna það, að bar-
átta hans og félaga lians er mun-
uð, og að Ijúft sé þökk að gjalda.
Þióðleikhnsið
sýndi sl. sunnudags-, mánudags-
og þriðj udagskvöld í Samkomu-
húsi Akureyrar sjónleikinn líver
er hrœddur við Virginiu Wolf?
undir leikstjórn Baldvins Hall-
dórssonar.
Leikendur eru Helga Valtýs-
dóttir, Róbert Arnfinnsson, Anna
Herskind og Gísli Alfreðsson,
og var leikur þessi eitt af aðal-
viðfangsefnum Þjóðleikhússins á
sl. vetri og hlaut mikla aðsókn
og góða dóma, en nú sýna leik-
endur hann víðs vegar um land
í sumar og hafa fengið hvarvetna
ágætar viðtökur.
Höfundur leikritsins, Edward
Albee, er bandaríkjamaður, og
hefur það vakið hvarvetna mikla
athygli, þar sem það hefur verið
selt á svið, hlotið bæði lof og
Framhald á bls. 6.