Alþýðumaðurinn - 30.09.1965, Qupperneq 1
ÁSKRIFTARSÍMi
ALÞÝÐUMANNSINS
ER 143-99 I
I
Þótt bleikar sén hlíðar og vetur bíði bandan Súbia og
Yaðlaheiðar, nemum við þó góðleika baustsins og ná-
um takt við frjóleika þess í brosi barnanna
XXXV. árg. - Akureyri, fimmtudaginn 30. september 1965 - 35. tbl.
Skólabjallan kallar á fagra æska
Oddcyrarskólinn. — Ljósmynd: Niels Hansson.
Indriði Úifsson.
1 LÞÝÐUMAÐURINN mun enn fylgja fyrri sið og birta livers-
dagslegar fréttir á forsíðu. Við heyrum skólabjöiluna hringja,
er kveður nemendur til náms að liðnu sumri. Við væntum þess,
að skólarnir í höfuðborg Norðurlands verði vermireitir á komandi
vetri og í þeirri trú kynnum við skóla Akureyrar með nokkrum
orðum. Að vísu er þetta ekki nein tæmandi skýrsla, aðeins drepið
á nokkrar staðreyndir, sem góðgjarnir skólastjórar bæjarins hafa
veitt fréttamanni blaðsins í gegn um sírna. Hér með þökkum við
velvild þeirra og væntum þess, að blaðið megi áfram njóta stuðn-
ings þeirra og þá gjarnan vona, að þeir skeði eigi fréttamann
blaðsins óvelkominn, þótt hann banki að dyrum í skammdegi og
beiðist þess, að mega líta æsku bæjarins við nám, — í þeirra
ríki.
Yfir 400 h'árn í Oddeyrarskólanura
1Ð hringjum í hinn nýja
skólastjóra, Indriða Ulfsson.
Og við gefum honum orðið, að
vísu nokkuð samanþjappað. 111
nauðsyn blaðamanna að spara
rúm. Og nú talar Indriði Úlfs-
son, skólastjcri Oddeyrarskól-
ans:
í Oddeyrarskólanum munu
stunda nám um 420 böm í 16
bekkjardeildum og er nemenda
aukning þó töluverð frá því í
fyrra. Breytingar á kennaraliði
skólans eru þær, að Eiríkur
Sigurðsson skólastjóri tekur
sér ársfrí frá störfum en skóla-
stjórastöríum á meðan gegnir
Indriði Úlfsson. Tveir kennarar
hverfa frá skólanum, þau Hall-
grímur Sigfússon og Rósa Árna
dóttir. Nýir kennarar eru þær
Stella Thorarensen, er starfaði
áður við ísaksskóla í Reykjavík
og Signý Guðmundsdóttir, er
=000*=
SAMK0MULAG?
SAMNINGANEFNDIR í deilu
prentara og prentsmiðjueig-
cnda náðu samkomulagi í gær-
kveldi, og verður það borið
undir atkvæði síðdegis í dag.
Eru horfur á því, að ekki komi
til verkfalls.
áður gegndi starfi í Haganes-
skólahverfi. Haustskóli starfaði
í september, bæði fyrir og eftir
hádegi. Ákveðið er, að söng-
kennsla nái yfir alla bekki skól-
ans. 12 kennarar starfa við skól-
ann, auk skólastjóra, á þessu
skólaári. Skólinn var múrhúð-
aður utan á s.l. sumri og einn-
ig málaður. — Við þökkum
Indriða Úlfssyni skólastjóra fyr
ir upplýsingarnar og óskum
honum velfarnaðar í hinu nýja
en ábyrgðarmikla starfi.
Hjörtur L. Jónsson.
Skólinn í Glerárhverfi allt of lítill
HÉR hefur Hjörtur L. Jóns-
son skólastjóri barnaskól-
ans í Glerárhverfi, orðið:
í barnaskóla Glerárhverfis
munu rúmlega 100 börn stunda
nám í vetur og fimm kennarar
munu stunda þar sína kennslu.
Skólinn í Glerárhverfi er þeg-
ar orðinn alltof lítill, enda
byggður 1937. Mörg börn úr
Glerárhverfi þurfa því að sækja
nám í Oddeyrarskóla. Áríðandi
er, að nú þegar verði hafizt
handa um undirbúning nýs
skóla í Glerárhverfi. — Við
Þökkum Hirti skólastjóra fyrir,
Hvert rám setið og meira en það
í Gagnfræðaskólanum
pAGNFRÆÐASKÓLI Akur-
eyrar verður settur á morg-
un, 1. október og samkvæmt
upplýsingum, er blaðið fékk hjá
Sverri Pálssyni, munu um 715
nemendur verða í skólanum í
vetur, og er þar hvert rúm set-
ið og meira en það. Kvað skóla-
stjórinn eigi heppilegt, að gagn-
fræðaskólar væru svo fjöl-
mennir. Hæfilegur nemenda-
fjöldi væri 500—560. Sjáanlegt
er því, að við blasir skortur á
skólahúsnæði í Akureyrarkaup-
stað, og sem alkunna er, ríkir
megnasta vandræðaástand í
(Framhald á blaðsíðu 2).
| ' ■ “V "" *
í
Sverrir Pálsson.
Tryggvi Þorsteinsson skólastjóri
Barnaskóla Akureyrar
TVTÆST skal nema staðar í ríki
’ Tryggva Þorsíemssonar, —
Barnaskóla Akureyrar. Eins og
kunnugt er, gegndi Tryggvi
en viijum gjarnan bæta því við,
að Glerárhverfi finnst mörgum
fegursti hluti bæjarins og við
sjáum vaxtarverki þessa hverf-
is í nýjum og reisulegum bygg-
ingum og því vonum við, að
ekki verði þess langt að bíða,
að þar rísi nýr og. fagur skóli,
er hæíi fegurð hverfisins, og
þá eigi síður, verði musteri
ungrar kynslóðar, þar sem num
in verður þekking og vizka, og
einnig reisn í viíund þess, að
það er burðarásinn í jafnvægi
í byggð landsins, að vera sann-
ur Norðlendingur. Fyrirgefið,
þetta er aðeins innskot.
Tryggvi Þorsteinsson.
Þorsteinsson störfum skóla-
stjóra í forföllum Hannesar J.
Magnússonar. Nú hefur Hann-
es látið af skólastjórastörfum,
en Tryggvi verið skipaður í það
embætti. Blaðið flytur Hannesi
beztu þakkir fyrir trausta, ör-
ugga og vinsæla skólastjórn í
18 ár og flytur jafnframt hinum
nýja skólastjóra beztu heilla-
óskir. í skólanum í vetur munu
stunda nám um 780 börn eða
svipaður fjöldi og í fyrra, enda
■ skólinn algerlega fullskipaður,
en bekkjardeildir eru 29, og er
það einni deild fleira en í fýrra.
Auk fyrrverandi skólastjóra
láta nú af störfum við -skólann
Indriði Úlfsson núverandi skóla
stjóri Oddeyrarskólans, og
Guðný Matthíasdóttir, er hverf-
ur að öðrum störfum. Nýir
kennarar eru Rósberg G. Snæ-
(Framhald á blaðsíðu 2).
VIÐTAL VIÐ GOODTEMPLARA, sjá bls. 5
LEIÐARINN: „Öfund knýr og eltir mig“
Skipuleggjum ferð- |
ir endurgjoldslaust §
LÖND O G LEIF-IR. Sími 12940
[ Fyrir hópa og
einstaklinga