Alþýðumaðurinn - 25.11.1965, Side 1
E P L I — APPELSÍNUR — BANANAR
VERZLUNIN BREKKA
Skipuleggjnm ferð- I Fyrir hópa og
ir endurgjaldslaust | einstaklinga
LÖND O G LEIfilR. Sími 12940
ÁSKRIFTARSÍMI
ALÞÝÐUM ANN SINS
ER 1-13-99
am
ALÞÝÐUMAÐURINN
XXXV. árg. - Alcureyri, fimnitudaginn 25. nóvember 1965 - 42. tbl.
Lesendur góðir
A M ALLTAF vera hreinskilið blað við lesendur
■‘“-‘■” sína. Blað sem pukrar eigi með óhreina samvizku,
en tjáir sig í bersögli umbúðalaust, og því skal ykkur trúað
fyrir því að AM mun fyrst og fremst leggja áherzlu á það
fram að jólum, að vera þróttmikið auglýsingablað, tengiliður
milli auglýsenda og viðskiptavina í þágu sjálfs sín og les-
enda sinna. Vitið þið hvað AM er að fara, ég vona það, en
þó skal frá því skýra í fullri einurð. AM hugsar ekki lágt
heldur hátt hvað framtíðina snertir. Blaðið sækir fram í
síauknum mæli, teflir alldjarft það skal játað án kinnroða,
því að enginn auðfélög eða milljónerar eru bakhjarlar þess,
OG AF ÞEIM ASTÆÐUM ER ORRUSTAN KANNSKI
ENNÞÁ TVÍSÝNNI OG EINNIG MEIRA HEILLANDI.
Sókn AM verður eigi stöðvuð úr þcssu, en öryggi er öllum
nauðsynlegt og einnig AM, og öryggi felst eigi í bjartsýni
einni saman, heldur og líka í fjárhagslegu öryggi og að því
vill AM stefna, í því skyni að blaðið mæti ykkur á nýju ári,
ennþá fjölbreyttara og sterkara cn verið hefir fram að þessu.
Þess vegna vonar blaðið að þið verðið ekki drýldm, þótt
efniviður blaðsins verði eigi eins fjölbreyttur og verið liefir
til þessa og takð eftir, þetta er ekki uppgjöf, heldur bak-
Irygglng fyrir framtíðma og cf sú baktrygging næst, er
grundvöllur tryggður fyrir framtíðargengi blaðsins. AM hef-
ir haft áhrif á akureyrska blaðamennsku. Jakob hjá íslend-
ingi hefir átt viðtal við gamlan mann, sem rauk að vísu í
burtu og Erlingur hjá Degi við Sólborgarbóndann er hafði
Ábæjarskottu til fóta sér. Fjölbreytni í akureyrskri blaða-
mennsku er hinn bjarti draumur AM, og það skal nást. AM
hvetur alla velunnara sína, hvort sem þeir eru búsettir í bæ
eða sveit, að rétta blaðinu vinarhönd, og á ég að trúa ykkur
fyrir einu, að ef hver lesandi blaðsins nú, tryggði blaðinu þó
ekki væri nema einn nýjan kaupanda, hyllti undir þau tima-
mót að AM kæmi tvisvar út í viku. AM veit að það verður
í framtíðinni, og því fyrr þess betra. — AM sendir ykkur
vinar- og baráttukveðjur í bjartsýni á traust ykkar.
Sigurjón Jóhannsson.
Úr liófinu við opnun Iðnaðarbankans. Sveiim Valfells formaður bankaráðs talar. Ljósm.: N. Hansson.
Opnað iðnððarbankaúfibú á Ákureyri
Bankastjóri er Sigurður Ringsted
Bankastjóri er Sigurður Ring
sted, er hefir áratuga í-eynslu að
bakj varðandi bankamál. Jó-
hann Egilsson er gjaldkeri, og
(Framhald á blaðsíðu 2.)
Starfsfólk Iðnaðarbankans. Frá vinstri: Sigurður Ringsted banka-
stjóri, Guðrún Sigurðardóttir skrifstofustúlka og Jóhann Egilsson
gjaldkeri. Ljósm.: Níels Hansson.
OÍÐASTLIÐINN laugardag var hér á Akureyri opnað á vegum
k-' Iðnaðarbankans, útibú að Geislagötu 14, Sjálfsíæðishúsinu,
með inngangi frá Glerárgötu.
Húsnæði bankans er rúmgott
og vistlegt, og er útibúið stað-
seít á neðstu hæð hússins og er
hér eigi um leiguhúsnæði að
ræða, því að Iðnaðarbankinn
keypti neðstu hæð Sjálfstæðis-
hússins fyrir nokkru síðan. AII-
margt manna sóttu heim bank-
ann hinn fyrsta dag.
Alþýðuflokksfélag
Akureyrar
hcldnr félagsfund í Sjálf-
stæðishúsinu (Litla salnum)
mánudaginn 29. nóvr. kl. 8.30
e. h.
DAGSKRÁ:
Inntaka nýrra félaga.
Frétfir af þingi S. Þ., Stein-
dór Steindórsson segir frá.
Rætt um undirbúning bæjar-
stjórnakosnmga.
Félagar eru hvattir til að
fjölmenna. Stjórnin.
Fundur um umferðarmál hðldinn á Ák-
ureyri næstk. laugardag
A ll/| VILL MINNA lesendur
sína á fundinn um um-
ferðamál er haldinn verður í
Borgarbíói n. k. laugardag og
vísast til auglýsingar í þessu
blaði um fundinn.
Forgöngu að þessum fundi
höfðu lögregluyfirvöld bæjarins,
ásamt Bindindisfélagi öku-
manna, en formaður þess er
Jónas Jónsson kennari, Skáta-
félögin undir forustu Tryggva
Þorsteinssonar skólastjóra, og
ennig Biíreiðaeigendafélag Ak-
ureyrar, en formaður þess er
Sigurgeir Þórðarson.
Akureyringar fjölmennið.
í stuttu viðtali er AM átti við
Gísla Olafsson yfirlögregluþjón
í gærkveldi, bað hann blaðið að
hvetja sem flesta Akureyringa
til að sækja fundinn, hann væri
öllum opinn og öllum frjálst að
koma fram með íyrirspurnir.
Þá er fvrirhuguð umferðar-
fræðsla í skólum barnastigsins
í næstu viku og mun einnig
verða útbýtt bæklingum varð-
andi þessi efni, bæði í skólana
og inn á heimili í bænum. Um-
ferðarfræðsla í framhaldsskól-
um verður eftir áramót.
N\\v
FulEkomin sjúkrabifreið á Húsavík
Fjölsóttur fundur í Alþýðuflokksfél. Húsavíkur
Húsavík 22. nóvcmber.
G. H.
O AUÐAKROSSDEILDIN hér er búin að eignast mjög vandaða
■*■*■ og fullkomna sjúkrabifreið og kom hún til kaupstaðarins í gær,
og er hún talin fullkomnasta sjúkrabifreiðin cr komið hefir til
landsins tií þessa.
Bifreiðin er af Chervrolet teg
und og með drifi á fram- og
afíurhjólum og eru því miklar
vonir við hana bundnar að hún
reynist vel í snjó. Margir hafa
lagt fram fé til bifreiðakaup-
anna, og má þar til nefna Slysa-
varnardeildir, karla og kvenna
á Húsavík, Kvenfélag Aðaldæla,
Kaupfélag Þingeyinga, Bárð-
dælahreppur o. fl., bæði ein-
staklingar og félög.
S t j ó r n Rauðakrossdeildar
Húsavíkur skipa: Sigurjón Jó-
hannesson skólastjóri formað-
ur, Daníel Daníelsson héraðs-
læknir og Gunnar Karlsson
kjötbúðarstjóri.
Umsjónarmaður bifreiðarinn-
ar verður Jónas Egilsson deild-
arstjóri.
Síðastliðinn laugardag hélt
Alþýðuflokksfélag Húsavíkur
fund að Hlöðufelli og var hann
fjölsóttur og ríkti þar mikill ein
hugur og sóknarvilji um að efla
Alþýðuflokkinn.
Framsögumaður á fundinum
var Bragi Sigurjónsson banka-
(Framhald á blaðsíðu 2.)
LEIÐARINN: Aflatryggingasjóður
Rósberg ritar um Ijóðabók BRAGA, s já bls. 5