Alþýðumaðurinn - 09.12.1965, Síða 1
*
JOLAKONFEKT
VERZLUNIN BREKKA
Skipuleggjum ferð- I Fyrir hópa og
ir endurgjaldslaust | einstaklinga
LÖND O G LEIÐIR. Sími 12940
Á SKRIFT ARSÍMI
ALÞÝÐUM ANN SINS
ER 1-13-99
XXXV. árg. - Akureyri, finuntudaginn 9. desember 1965 - 44. tbl.
Fjölþætt sfarfsemi UMSE
EINS OG undanfarin ár gengst
Ungmennasamband Eyjafjarðar
íyrir fræðslukynningu í skólum
á sambandssvæðinu um skað-
semi áfengis og tóbaks.
900^=
=x
F armiðaskatturinn
■ felldur niður
ÁKVEÐIÐ er nú að hinn fyrir-
hugaði farmiðaskattur komi
■ekki til framkvæmda. Á sl.
hausti gagnrýndi AM harðlega
slíka skattheimtu og taldi hana
mjög óréttláta og í sama streng
hafa margir tekið, m. a. stjórh
Alþýðuflokksfélags Reykjavík-
nr. AM fagnar þessum úrslitum.
I viðtali við Morgunblaðið í
gær upplýsir fjármálaráðherra,
að í stað ferðaskattsins sé ákveð
ið að Ieggja J/2% gjald á gjald-
•eyrissölu bankanna og var
frumvarp um það efni lagt- fram
á Alþingi í gær.
Á þessum vetri hafa þegar
verið heimsóttir 5 barna- og
unglingaskólar. Dalvíkurskóli,
Húsabakkaskóli í Svarfaðardal,
Árskógarskóli, Hjalteyrarskóli
og Laugalandsskóli á Þelamörk,
en ætlunin var að heimsækja
alla skóla fyrir áramót, en eigi
mun það reynast unnt vegna
samgönguerfiðleika. Voru það
Þóroddur Jóhannsson fram-
kvæmdastjóri UMSE og séra
Jón Kr. ísfeld á Bólstað, er önn
uðust fræðsluna að þessu sinni.
Þykir AM ástæða til að fagna
forustu Ungmennasambandsins
á þessu sviði.
Þá eru fyrirhuguð námskeið
í mælskulist á vegum sambands
ins í vetur og er hið fyrsta þeg-
ar hafið. Er það hjá Uungmenna
félögunum Atla og Þorsteini
Svörfuði í Svarfaðardal og er
leiðbeinandi á námskeiðinu séra
Ágúst Sigurðsson á Möðruvöll-
um.
LÆKKDN BYGGINGAKOSTN-
AÐAR, ER ÞJÓÐARNAUÐSYN
Vel heppnaður fundur F.U.J. á Akur-
eyri um húsnæðismál
FÉLÖG UNGRA JAFNAÐARMANNA um land allt héldu fundi
um húsnæðismál sl. þriðjudagskvöld. Ræðumaður F.U.J. á
Akureyri var Björgvin Guðmundsson viðskiptafræðingur úr
Reykjavík. Flutti liann ýtarlegt erindi og lagði jafnframt megin-
áherzlu á það, að lækkun byggingarkostnaðar væri brýn nauðsyn,
sem úr þyrfti að bæta.
Fundur F.U.J. var haldinn í
Sjálfstæðishúsinu og setti for-
maður félagsins Hersteinn
Tryggvason fundinn og bauð
Björgvin Guðmundsson velkom
inn og gaf honum síðan orðið,
og flutti Björgvin mjög yfirgrips
mikið erindi um þróun þessa
máls hin síðari ár, og kom þar
glöggt fram að síðan jafnaðar-
menn tóku við stjórn félagsmála
í des. 1958, þá er Friðjón Skarp-
héðinsson varð félagsmálaráð-
herra í minnihlutastjórn Alþýðu
^ > - V
L ' i '■;' ' r- '■
i
Hersteinn Tryggvason.
-v\\y
Nýft 09 vandað verzlunarhús á Blönduósi
Blönduósi 6. desember H. H.
LAUGáRDAGURINN 20. 11.
rann upp með norðan-norð-
austan kuldasveljanda í Húna-
þingi. Oðru hvoru kastaði úr
éli, ásamt snjórennings-læðingi,
sem burðaðist við að fylla hverja
laut og gilskoru en varð þó lítið
ágengt. A Blönduósi var að ger-
ast stór viðburður og fólk veitti
=x
Fjölg
im simanumera
IFYRRADAG var gengið frá
stækkun símstöðvarinnar á
Akureyri. Fengu þá 500 nýir
símnotendur síma og er tala
símnotenda orðin 2500. Síðar
munu 200 númer bætast við á
næstunni. Er álitið að hin mikla
fjölgun númera nú nægi nokkur
ár fram í tímann.
veðrinu litla athygli. Klukkan
9 um morguninn hafði verið
opnað hið nýja, stórfenglega og
glæsilega verzlunarhús Kaupfé-
lags Austur-Húnvetninga. (Kjör
búð).
Fólk streymdi að hinni gegn-
sæju verzlun, sem rís þar á
hinum 1200 fermetra grunni sín
um. A annari hæð verzlunar-
innar hillir undir hinar gler-
massífu skrifstofur, sem ekki er
þó að fullu frágengið ennþá.
Verzlunarhúsið er staðsett aust
an við hið þekkta félagsheimili
Blönduúss við aðalæð kauptúns
ins, svokallaða Húnabraut norð
an Blöndu.
Munu vera í dag uppistand-
andi 3 verzlunarhús K.A.H.
hvort fram af öðru frá því fyrir
aldamót.
í hinu glæsilega húsi er öllu
haganlega fyrir komið eftir
sænskum og ameríkönskum stíl
í dag. Þarna má segja að allt sé
á sama stað, eða í einum og
sama sal. Já, þarna getur kúnn-
inn fengið sér, hvort hann held-
ur vill; saumnál, brjóstahaldara,
kúaklóru, hljóðfæri eða þá
hangikjötslæri. Leitið og þér
munið finna.
Hvað húsið kostar, það er
aukaatriði. Það er risið af
grunni og þess var full þörf.
Þetta sýnir þor og þrótt Hún-
vetninga, ásamt mikilli fram-
sýni.
Hér að útibúi Búnaðarbank-
ans á Blönduósi er kominn ung-
ur bankastjóri, að nafni Guð-
mundur Rafn Sverrisson. Sú
stofnun hefur búið við lítil og
óíullkomin húsakynni. Heyrzt
(Framhald á blaðsíðu 5)
flokksins, er þá var mynduð,
hafi orðið jákvæð þróun. Rakti
Björgvin gang húsnæðismála
hin síðustu ár, það sem áunnist
hefði undir forystu jafnaðar-
manna og gat hann sérstaklega
starfs fyrrv. formanns Húsnæð-
ismálastofnunarinnar Eggerts
G. Þorsteinssonar núverandi fé-
lagsmálaráðherra. Kom Björg-
vin víða við og mun AM síðar
eða eftir áramót rifja upp þær
staðreyndir, er Björgvin drap á
í ræðu sinni.
Björgvin lagði á það megin-
þunga, að brýn nauðsyn væri á
því að lækka byggingakostnað-
inn og samsVaraði það 25%
kauphækkun, ef unnt væri að
þoka kostnaðinum niður um 14.
Gat hann þess, að á vegum Hús-
næðismálastofnunarinnar hefði
fyrir 2 árum komið bandarísk-
ur tæknisérfræðingur, Davison
að nafni, og niðurstöður hans
hefðu orðið þær, að bygginga-
kostnaður hér væri % hærri en
í Bretlandi, Bandaríkjunum og;
Kanada og taldi hann þrjár
meginástæður stuðla að því:
Fjármagnsskortur, skortur á
undirbúningi og of smáir verk-
takar.
Síðan gaf Björgvin skýra yfir-
sýn yfir framgang og einnig for
ustu Alþýðuflokksins í húsnæð
ismálum í núverandi stjórnar-
samstarfi, hvað áunnist hefði t.
d. í aukinni lánveitingu Hús-
náeðismálastofnunarinnar og
einnig til verkamannabústaða
og til útrýmingar heilsuspill-
andi húsnæðis og aðstoð við
Björgvin Guðmundsson.
æskufólk, sem er að stofna
heimili en skortir húsnæði.
AM hefir ákveðið að forsíða
fyrsta tölublaðs AM á nýju ári
verði helgað þessu máli og þar
mun rifjað upp það sem áunnist
hefir og einnig bent á ýmsar
mikilvægar staðreyndir, er
Björgvin Guðmundsson lagði
áherzlu á í framsögu sinni á
fundi F.U.J. á Akureyri, og AM
mun styðjast við rökfast og mál
efnalegt erindi Björgvins í
fyrsta tölublaði AM 1966.
Að loknu framsöguerindi
Björgvins tóku til máls Her-
steinn Tryggvason, Sigursveinn
D. Jóhanneson, Haukur Haralds
son, Þorvaldur Jónsson og Bragi
Sigurjónsson. Fundur F.U.J.
var mjög ánægjulegur og vænt
ir AM ánægjulegra samskipta
við ungá jáfnaðarmenn í fram-
tíðinni ög hvetúr þá jafnframt
til öflugrar sóknar. Ekkert norð
lenzkt blað annað en AM hefir
fagnað tillögu um lækkun kosn
ingaaldurs niður í 18 ár. AM
hefir tekið það skýrt fram að
blaðið hefir óbifandi trú á æsk-
unni og vill aukin réttindi henni
til handa, fremur en blinda
ádeilu. AM þakkar velheppnað-
an fund F.U.J. og fagnar þrótt-
miklu starfi félagsins, sem fram
undan er á nýju ári.
X
Skarðsbók til Islands
SKARÐSBÓK er oft hefir ver-
ið getið í fréttum undanfar-
ið og seld var á uppboði í
London nú fyrir skömmu á rúm
ar 4 milljónir og 320 þúsund kr.,
er nú orðin eign íslenzku þjóð-
arinnar. Voru það íslenzku
bankarnir er keyptu handritið,
en nokkur hula . var yfir hver
hinn nýi eigandi væri. En sl.
þriðjudag tilkynnti Jóhannes
Nordal bankastjóri á blaða-
mannafundi, að viðstöddum
menníamálaráðherra, að bank-
arnir hefðu kcypt Skarðsbók og
afhentu hana þjóðirmi til eignar.
ar.
Gylfi Þ. Gíslason, mennta-
málaráðherra þakkaði hina höfð
inglegu gjöf.
Skarðsbók er nú til varðveizlu
í Hambrosbanka í Lundúnum
og mun aíhugun fara fram hvort
viðgerðar sé þörf, áður en hand
ritið verður flutt til íslands.
Steindór skrifar um BÆKUR, sjá bls. 4