Alþýðumaðurinn - 20.01.1966, Side 1
E P L I — APPELSÍNUR — BANANAR
VERZLUNIN BREKKA
Skipuleggjum ferð-
ir endurgjaldslaust
LÖND O G LElflIR. Sími 12940
IFyrir hópa og
einstaklinga
ASKRIFTARSÍMI
ALÞÝÐUMANNSINS
ER 1-13-99
ALÞYÐUnnAÐURINN
XXXVI. árg. - Akureyri, fimmtudaginn 20. janúar 1966 - 2. tbl.
<í>
I
4
LEITIN ENN ÁRANGURSLAUS
EINS og Iesendum AM er kunnugt týndist flugvél frá Flug-
sýn sl. þriðjudag, en hún hafði farið í sjúkraflug til Nes-
kaupsstaðar. Víðtæk leit hefur farið fram, bæði á sjó, lofti og
Iandi, en þá er blaðið fór í prentun hafði hún engan árangur
borið. í morgun fóru menn úr Flugbjörgunarsveitmni á Ak-
ureyri og úr Mývatnssveit. Er hér um 11 mamia flokk að
ræða á 4 jeppum, og auk þess hefur flokkuriim 1 trukk cg
flytur hann snjóbíl læknisins á Breiðuinýri. Samkvæmt upp-
lýsingum frá Tryggva Þorsteinssyni, var flokkurmn rétt við
Ferjuás kl. 12.15 í dag, en hann mun ætla að lialda í Þor-
steinsskála. Tryggvi kvað hlustunarskilyrði mjög slæm og
hefur því verið scndur bíll með fullkominni talstöð er mun
verða staðsetíur á milli Grímsstaða og Reykjahlíðar. Tryggvi
hafði eftir Ieitarmönnum að skyggni sýndist heldur slæmt
inn til landsins. Ekki mun vera ætlunin að leitarflokkurinn
fari mikið um sjálfur til leitar, heldur munu flugvélar fljúga
yfir leitarsvæði þeirra og gera mönnunum aðvarí, ef ein-
hvers verður vart.
I
Náfffari lengdur í Noregi
Húsavík 4. jan. G. H.
LEIÐINDAVEÐUR hefur ver-
ið hér um jólin og áramótin
og færð stundum verið erfið,
hæði í bænum og í nágrenninu.
Áramótadansleikir voru hér að
vanda í báðum samkomuhús-
' unum. Fjölmenni var og fór allt
vel fram.
Kveikja átti í tveimur bál-
köstum á gamlárskvöld, en
fresta varð því vegna veðurs.
Var kveikt í öðrum þeirra í gær
kvöldi, en í hinum verður
kveikt á þrettándanum ef veður
leyfir og þá mun lúðrasveitin
einnig leika við Sundlaugina,
um leið og kveikt verður í
■ brennunni.
Ljósaskreytingar voru með
mesta móti hér um jólin, bæði
í heimahúsum og verzlunum.
(Framhald á blaðsíðu 2.)
Fjárhagsáæflun Akureyrar
NiðurstöSutöIur tekna- og gjaldameg-
in kr. iS5.ili7.ooo.eo
Útsvör áætluð kr. 49.997.ooo.oo
r
Aætlunin var samþykkt í lieild nieð 11 samhlj.
atkv. - Litlar breytingar frá fyrri umræðu
BÆJARSTJÓRN AKUREYRAR hélt fyrsta fund sinn á þessu
ári sl. þriðjudag og var þar aðalmálið afgreiðsla fjárhagsáætl-
unar bæjarins fyrir yfirstandandi ár, en fyrri uniræða haföi farið
fram fyrir jól. Milli umræðna liöfðu komið fram fáeinar breyting-
artillögur við frumvarp áætlunarinnar frá fulltrúum Aiþýðubanda
lagsins, fulltrúa Alþýðuflokksins og fulltrúum Framsóknarfl.
Fulltrúar Alþýðubandalags-
ins lögðu til, að áætluð útsvör
yrðu lækkuð um 1.7 millj. kr.,
en aðstöðugjöld hækkuð um 1.5
millj. Kr. 500 þús. yrðu áætlað-
ar í B-deild byggingalánasióðs
(til stærri íbúðarlána á vegum
bæjarins), framlag til skóla-
garða og unglingavinnu yroi
hækkuð um 50 þús. kr. frá áætl
un og yrði 225 þús. kr. í stað
175 þús., byggingastyrkur til
íþróttafélaga yrði 1 millj. kr. í
stað 500 þús. kr., framlag til
gatnagerðar yrði 11 millj. kr.,
eins og áætlun gerði ráð fyrir,
en af þeirri upphæð yrði 2 millj.
kr. fengnar að láni, framlag til
Framkvæmdasjóðs yrði áætlað
5 millj. kr. í stað 4 millj., enda
fengi U. A. helming þeirrar upp
hæðar til endurnýjunar skipum
sínum, óvænt og óviss útgjöld
lækkuð um 500 þús., og 250 þús.
n\nn-
Miklar umræður í Bæjarsfjorn
m nýja gjaldskrá Rafveitunnar
í FUNDI bæjarstjómar Akureyrar sl. þriðjudag var meðal ann-
ars á dagskrá fyrri umræða um fjárliagsáætlun Rafveitu Akur
eyrar fyrir 1966 og nýja gjaldskrá fyrir selda raforku. Urðu mikiar
umræður um fjárhagsáætlun Rafveitunnar og þó sérstaklega gjald
skrána, en samkvæmt henni hækkar rafmagn tilfinnanlega til not-
enda eða frá 20—23%, þar af er hækkun vegna hins nýja raforku-
skatts ríkisins um 10—11%.
Ingólfur Árnason tók fyrstur
til máls og deildi fast á rafveitu
W\v
s
F0RSTJ0RASKIPTI
HJÁ SANA H.F.
VALDIMAR BALDVINSSON
er hefur gengt framkvæmda
stjórastörfum við Sana h.f. hef-
ir sagt lausu starfi, og hefur nú
Eysteinn Ámason verið ráðinn
forstjóri fyrirtækisins.
Ungur Dalvíkingur
verður fyrir árás
Liggur slasaður á sjúkrahúsi
SÁ ATBURÐUR skeði aðfararnótt laugardags, að ungur Dalvík-
ingur varð fyrir árás og hlaut hann höfuðkúpubrot og liggur
hér á sjúkrahúsinu. Atburður þessi skeði liér í miðbænuni, cða
nánar tilekið á bak við Gullfoss.
Sjónarvottar gerðu lögregl-
unni viðvart og fór hún með
hinn slasaða mann á lögreglu-
varðstofuna, þar sem fór fram
læknisskoðun, en að henni lok-
iríni fékk sá slasaði að fara
heim til sín ásamt ferðafélög-
um sínum, en þó með því skil-
yrði að félagar hans skýrðu frá
hvað gerzt hefði í öryggsskyni,
svo fremur væri hægt að fylgj-
ast með líðan piltsins. En dag-
inn eítir var hann fluttur á
sjúkrahúsið og kom þá í Ijós,
að hann var höíuðkúpubrotinn.
AM. hafði samband við sjúkra-
húsið í gær, og var blaðinu
tjáð, að líðan sjúklingsins væri
eftir atvikum, Lögreglan hand-
tók ofbeldismanninn hina sömu ]
nótt og atburðurinn skeði, og
er málið í rannsókn. AM. telur
ástæðu að harma slíkan atburð,
og mætti hann gjarnan verða j
til aðvörunar hugsandi mönn-
um.
stjórn fyrir þá miklu hækkun,
er hún vildi steypa yfir bæjar-
búa, hvað raforkuverð snerti.
Taldi hann rökstuðning fyrir
svo mikilli hækkun og rafveitu
stjórn legði til ekkifyrir hendi
og bar fram tillögu um, að sér-
stök nefnd, sem í ættu sæti full-
trúar allra flokka, yrði skipuð
til að athuga rekstur Rafveit-
unnar með það fyrir augum að
kanna, hvort ekki mætti gera
hann hagkvæmari og ódýrari.
Sigurður Óli Brynjólfsson
gerði að umtalsefni næturhit-
unartextann og bar fram lækk-
unartillögu við hann, en tók
einnig undir þau orð Ingólfs, að
(Framhald á blaðsíðu 2).
=000^
Rændaklúbbsfundur
FYRSTI FUNDURINN á þessu
ári verður að Hótel KEA mánu-
daginn 24. þ. m. á venjulegum
tíma kl. 9 að kveldi.
Umræðuefni verður: Gróður-
vcrnd, skógrækt og skjólbelti.
Framsögu hefur Hákon Bjama-
son skógræktarstjóri.
kr. yrðu áætlaðar til að ganga
frá lóð Oddeyrárskólans.
Fulltrúi A’þýðuflckksins lagði
ti!, að byggingarstyrkur íþrótta-
félaga yrði felldur niður, sem
áætlaður var 500 þús. kr., en
framlag til íþróttahúss bæjar-
ins, ný bygging, yrði hækkað
um sömu upphæð, yrði 1 millj.
kr. í stað 500 þús. Til vara lagði
hann til, að byggingastyrkur til
íþróttafélaganna yrði skipt að
jöfnu milli K. A. og Þórs, en
gengi ekki óskiptur í ár til ann-
ars félagsins, eins og gert væri
ráð fvrir af bæjarráði.
Fulltrúar Framsóknarflckks-
ins lögðu til, að aðstöðugjöld
hækkuðu um 300 þús. en á móti
hækkaði gjaldamegin á áætlun
framlag til Rauða kross deild-
arinnar á Akureyri um 50 þús.
(Framhald á blaðsíðu 7).
Ráðinn ritsímastjóri
í Reykjavík
GUNNARI SCHRAM sím-
stjóri hefur verið ráðinn rit
símastjóri í Reykjavík.
Tekur hann við starfinu 1.
marz næstkomandi.
Jóhann Guðmundsson.
Nýr póstmeistari
0LI P. KRISTJÁNSSON póst
meistari lét af störfum fyr-
ir aldurssakir um sl. áramót, en
starfi póstmeistara hefir hann
gegnt síðan árið 1923 við góðan
orðstír. Við starfi póstmeistara
hefir tekið Jóhann Guðmunds-
son, en Jóhann hefir gengt
starfi hér á póststofunni síðan
1935. Hinn nýi póstmeistari okk
ar er Húnvetningur, fæddur að
Hvammi í Langadal árið 1917.
Kvæntur er Jóhann Hjördísi
Óladóttur og eiga þau hjón 4
börn.
AM sendir hér með fráfar-
andi póstmeistara þakkir fyrir
farsæl störf og bíður Jóhann
Guðmundsson velkominn í
stöðu póstmeistara á Akureyri.
Leiðari: Bæjar-og sveitarstjómarkosningar Yiðtal við eiganda Pedromynda, sjá Ms. 5