Alþýðumaðurinn - 20.01.1966, Blaðsíða 2
- Skemmlileg leiksýning'
ÍJjróttasíéa A.M.
RITSTJÓRI: FRÍMANN GUNNLAUGSSON
iMMiimmmmmmMmMmmmmmmmm immmmmmimmmmmmMmmmmmmmmmmmmmmmiimm <mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm*
Unglingameistaramó) Islands á Akureyri í vetur
NÚ ER hafinn tími hinna eig-
inlegu vetraríþrótta t. d.
skíðaíþrótta, handknattleiks,
körfuknattleiks o. fl. og mun
hér sagt fyrst frá verkefnum og
undirbúningi skíðafólksins hér
í bænum.
Frá því í okt. sl. hafa skíða-
menn og konur æft vel og sér-
staklega þeir sem eru íi ungl-
ingaflokkum og má mikð vera
ef árangur þeirra á ekki eftir
að verða mjög góður í vetur,
en á síðastliðnum vetri unnu
unglingar Akureyrar öll mót,
sem þeir voru þátttakendur í.
Nýlega lauk Skiðaráð Akur-
eyrar við að raða niður mótum
vetrarins, og eru þau þannig:
22—23. jan. Stórhríðarmót,
svig. 5.—6. febr. Togbrautar
mót, svig. 20. febr. Akureyrar-
mót, svig. 5.—6. marz Hermanns
mót, svig og stórsvig. 26.—27.
marz Unglingameistaramót ís-
lands, svig, stórsvig ganga og
stökk. 2. apríl Akureyrarmót,
stórsvig.
Á hverju ári hafa komið upp
miklar deilur, á Skíðamóti fs-
iands, vegna niðurröðunar í rás
hópa, en sú regla hefur verið
höfð, að beztu menn hvers stað-
ar hafa verið ræstir af stað nr.
1—15, þeir næstbeztu nr. 16—30
og þeir sístu frá 31, og deilurn-
ar alltaf staðið um það mat, sem
viðkomandi framkvæmdaraðili
hefur haft á getu keppenda.
Nú hefur Skíðasamband ís-
lands ákveðið keppnir, svoköll-
uð opin mót, þar sem allir geta
verið þátttakendur, og fram-
kvæmdaaðilar landsmóta eiga
að taka tillit til, við niðurröðun
í ráshópa, og eru mótin þessi:
29.—30. jan. Þorramót á ísa-
STÓRHRÍÐARMÓTIÐ
UM NÆSTU HELGI
NÆSTKOMANDI laugardag
hefst fyrsta skíðamót ársins á
Akureyri og er það Stórhríðar-
mótið. Ilefst það kl. 2 á keppni
í drengjaflokki 12 ára og yngri,
unglingaflokki 13—15 ára og
telpnaflokki.
Á sunnudag hefst keppni kl.
1 og þá verður keppt í A, B og
C fl. karla.
Kristinn Bencdiktsson mun
lcggja allar brautir og fara sem
undanfari.
Verðlaunaafhending fer fram
strax að keppni lokinni.
firði, 12.—13. febr. Stefánsmót
í Reykjavík, 5.—6. marz Her-
mannsmót á Akureyri. Einnig
verður landsmót síðasta árs og
Skarðsmót, sem haldið er á
Siglufirði um hvítasunnu, höfð
til hliðsjónar.
Skíðamót íslands verður svo
haldið á ísafirði 5.—11. apríl.
Eins. ög fram hefur komið af
upptahnngu móta verður hald-
ið hér Unglingameistaramót ís-
lands, hið fyrsta sem fram fer.
Vonandi er að_Skíðaráð Akur-
eyrar farnis vel um framkvæmd
móta vetrarins og þó sérstak-
SÍÐASTLIÐINN sunnudag var
haldið skíðamót á Húsavík.
og keppt þar í svigi í karla-
flokki, unglingaflokki, kvenna-
flokki og drengjaflokki. Kepp-
endur voru 37 frá Húsavík, Ak-
ureyri, ísafirði og Siglufirði, og
þar á meðal flest af bezta skíða-
fólki lgndsins.
Kristinn Benediktsson frá ísa
firði dvaldi á Húsavík vikuna
9.—16. janúar og þjálfaði skíða-
fólk á staðnum og síðan buðu
Húsvíkingar til þessa móts og
vonandi láta þeir ekki staðar
numið með að veita skíðafólki
sínu verkefni.
Mótsstjóri var Stefán Bene-
diktsson, en Kristinn Benedikts
son lagði allar brautir. Keppni
öll gekk mjög;vel og höfðu kepp
endur orð á að engu væri líkara
en Húsvíkingar héldu stór
skíðamót um hverja helgi.
Aðmóti loknu var boðið til
kaffi drykkju og verðlaun
afhent.
Úrslit urðu þessi:
KARLAR
1. Kristinn Benediktsson í á
33,1 sek. í fyrri ferð og 33,5 í
síðari, samtals á 66,6 sek. 2Reyn
ir Brynjólfsson A á 37,1 og 34,4,
samtals 71,5. 3. Ágúst Stefáns-
son S á 36,3 og 35,5, samtals 71,8.
4. Viðar Garðarsson A á 37,2 og
37,5, samtals 74,7. Keppendur
voru 13.
KONUR
1. Karolína Guðmundsdóttir
A á 49,3 og 43,1, samtals 92,4.
Keppendur 2. Sigríður Júlíus-
dóttir S lauk ekki keppni.
UNGLINGAR
1. Árni Óðinsson A á 33,8 og
34,8, samtals 68,6. 2. Ingvi Óðins
lega með Unglingameistaramót
ið, sem líta má á, sem viður-
kenningu frá Skíðasambandinu
á þeirri aðstöðu sem hér er og
talin sú bezta hér á landi, bæði
af keppendum og leiðtogum
skíðaíþróttarinnar.
Skíðaráð hefur ákveðið að
hafa framvegis ferðir til æfinga
í Skíðahótelið á þriðjudögum og
fimmtudögum kl. 7.15 og á laug
ardögum kl. 1.30 og sunnudög-
um kl. 10, og vonandi er að
skíðafólk og annað áhugafólk
þessarar hollu íþrótta láti sig
ekki vanta í fjallið í vetur.
son A á 34,2 og 34,5, samtals
68.7. 3. Björn Haraldsson H á
34,5 og 36,8, samtals 71,3. 4. Jón-
as Sigurbjörnsson A á 38,1 og
35.8, samtals 73,9. Keppendur 18.
DRENGIR
1. Gunnlaugur Frímannsson
A á 19,0 og 19,5, samtals 38,5.
2. Haraldur Haraldsson H á 34,8
og 20,0, samtals 54,8. 3. Gunnar
Jakobsson A á 70,5 og 28,9,
samtals 99,4. Keppendur 4.
ANN þrítugasta des. sl. átti
Ásgeir P. Sigurjónsson á
Dalvík 60 ára afmæli og þótt
seint sé sendir AM honum beztu
heillaóskir. Ásgeir er Skaftfell-
ingur að ætt fæddur að Fornu-
stekkum í Hornafirði. Stundaði
hann nám í Menntaskóla Akur-
eyrar og lauk þaðan guðfræði-
prófi, síðan lá leið Ásgeirs í
Kennaraskólann og að kennara
prófi loknu varð Ásgeir kennari
við barnaskóla Dalvíkur og þar
hefir Ásgeir gegnt kennslustörf
um síðan, að því undanskyldu,
að hluta úr tveim vetrum
kenndi hann við farskóla í Skíða
dal. Kennslustarf Ásgeirs nær
nú yfir 33 ár og hefir starfs-
vettvangur hans verið Dalvík
frá upphafi eins og fyrr segir.
Ásgeir hefir lítt tranað sér
fram til opinberra starfa, en hef
ir eigi komist undan því að eiga
sæti í skattanefnd og er hann
nú fulltrúi skattstjóra á Dalvík.
Ásgeir hefir frá fyrstu tíð verið
óhvikull jafnaðarmaður og ötull
stuðningsmaður Alþýðuflokks-
sin.
(Framhald af blaðsíðu 8).
förunautar þessa unga fólks,
hefir sitt aðdráttarafl, og hvoru
- Miklar umræður
(Framhald af blaðsíðu 1.)
sér þætti hækkunin næsta rík í
heild skoðað.
Bragi Sigurjónsson tók í sama
sterng og kvaðst vænta þess
fastlega, að rafveitustjórnin
tæki tillögur sínar um gjald-
skrárhækkun til nákvæmrar
endurskoðunar fyrir síðari um-
ræðu um hana og fjárhagsáætl-
un Rafveitunnar og freistaði
þess að finna leið til minni
hækkana.
Árni Jónsson og Arnþór Þor-
steinsson, báðir í rafveitustjórn,
skýrðu málið frá sjónarhóli
hennar.
Gísli Jónsson deildi á Ingólf
Árnason fyrir að koma fram
með tillögu um endurskoðun á
rekstri Rafveitunnar. Kvað
hann tillöguna nánast van-
traust á rafveitustjórn og raf-
veitustjóra og skoraði fast á
Ingólf að draga tillöguna til
baka, hverju Ingólfur neitaði.
Eftir nokkur meiri orðaskipti
var tillaga Ingólfs borin upp og
felld, en fjárhagsáætlun Rafveit
unnar og tillögum rafveitu-
stjómar um nýja gjaldskrá
ásamt lækkunartillögu Sigurð-
ar Ola Brynjólfssonar varðandi
næturhitun vísað til rafveitu-
stjórnar og síðari umræðu í bæj
arstjórn.
Kvæntur er Ásgeir Þórgunni
Loftsdóttur frá Böggvisstöðum
og eiga þau tvö börn.
Ásgeir Sigurjónsson.
AM endurtekur heillaóskir
sínar og væntir þess að Ásgeir
veiti þeim móttöku þótt þær
séu seint sendar.
tveggja þessa gætti í ríkum
mæli í þessari leiksýningu
Auðséð er að leikstjórinn ung
frú Ragnhildur Steingrímsdótt-
ir hefir unnið gott og mikið
starf í þágu sýningarinnar, hrað
inn og góðar sviðsetningar báru
því vitni. Aðeins eitt hlé er sem
nokkuð kveður að og er það
stór ávinningur, hléið leið einn-
ig fljótt, því nemendur úr M. A.
fluttu í því góða tónlist af
smekkvísi, og einnig áður en
leiksýningin hófst. Leiktjöld
voru smekkleg og talsvert
augnayndi.
Að öllu samanlögðu mjög
ánægjuleg kvöldstund, enda var
leikendum þökkuð hún með
kröftugu lófataki að leik lokn-
um, og þeir marg kallaðir fram
og færð blóm.
Formaður skólaleikfélagsins,
Ólafur Ólafsson, flutti stutt
ávarp að sýningu lokinni, einn-
ig flutti skólameistari, Þórarinn
Björnsson, ávarp, en honum og
Jóni Á. Jónssyni kennara og
stjórnarmanni í skólaleikfélag-
inu voru færðir blómvendir.
Þetta var frumsýningin, en
næstu sýningar verða enn betri.
Góðir Akureyringar! Ykkur er
óhætt að sækja þær vel. A. S.
- Náttfari lengdur
(Framhald af blaðsíðu 1).
Þá var komið fyrir þremur
ljóskösturum utan við kirkjuna.
Einnig var byrjað á nýrrri lýs-
ingu inni í kirkjunni, komið fyr
ir kösturum, sém lýsa altarið
upp. Teikningu af lýsingu þess-
ari gerði Aðalsteinn Guðjohn-
sen verkfræðingur, sem er gam
all Húsvíkingur. Rafvirkjarnir
Arnljótur og Bjarni Sigurjóns-
synir önnuðust uppsetning ljós-
anna af smekkvísi.
Kirkjusókn var mikil hér um
hátíðarnar og nokkur börn
skírð. Nokkuð var um trúlofan-
ir hér fyrir og um áramótin:
Emelía Svafarsdóttir og Stein
grímur Hallgrímsson, Valborg
Aðalgeirsdóttir og Grétar Halls
son, Sigrún Sigurbjörnsdóttir
og Pétur Pétursson, Guðrún
Finnsdóttir og Pálmi Karlsson,
Svanhildur Þorleifsdóttir og
Þórhallur Aðalsteinsson. Eitt-
hvað fleira mun hafa gerzt af
slíku tagi, en verður að bíða
næsta blaðs.
M. s. Náttfari er farinn til
Noregs, en þar á að lengja hann
um ca. 4V2 m., en Dagfari held-
ur til síldveiða austur, þegar
veður leyfir.
Sjúkrabíllinn nýi hefur kom-
ið í góðar þarfir í erfiðri færð
að undanförnu og hefur mikið
verið notaður, bæði í bænum
og i sveitunum í kring og hefur
reynzt mjög vel við erfiðar að-
stæður.
Skíðamót á Húsavík um sl. helgi
ÁSGEIR P. KRISTJÁNSSON SEXTUGUR