Alþýðumaðurinn - 10.02.1966, Side 5
Ég er sannfærður um það, að ákvæðisvinna
getnr verið beggja hagur og líka þjóðfé-
lagsins í heild,
segir Níels Hansson framkvæmda-
st jóri Trésmiðafélags Akureyrar
MHEFIR birt margar N. H. myndir og flestir munu vita það,
að höfundur þeirra er Níels Hansson, og vill AM hér með
þakka Níelsi fyrir samstarfið, sem frá því fyrsta hefir frá hans
liendi einkennst af ljúfmennsku og greiðvikni. Hitt vitá kannski
ekki allir lesendur AM, að Níels er framkvæmdastjóri Trésmiða-
félags Akureyrar og gegnir því ábyrgðarmikla starfi, að annast
uppmælingar og sér um lífeyris- og sjúkrasjóði félags síns.
Hann hefir svo sem oft litið
inn til mín áður hann Níels og
fært mér myndir, en nú er
erindið ánnað, hann hefir fall-
izt á það að eiga viðtal við AM,
sem fulltrúi félags síns. En svo
ég kynni Níels örlítið meira, þá
skal upplýst að hann er góður
íslendingur af dönskum ættum,
kom til íslands árið 1949 og
lærði trésmíði hjá Olafi Ágústs-
syni. Kvæntur er hann Jakob-
ínu Jónsdóttur og hafa þau
hjónin unnið mikið starf innan
Hjálpræðishersins á Akureyri.
En ekki lengri formála og hefst
hér viðtalið.
Ég hefi orðið var við al-
menna andúð á uppmælinga-
töxtum hinna ýmsu stéttarfé-
laga, og því vildi ég biðja þig
Níels, að skýra sjónarmið þitt
til þessa máls, hvað áhrærir þitt
stéttarfélag?
Já, alveg sjálfsagt, en í stað
orðsins uppmælingar vil ég nota
orðið ákvæðisvinna, það myndi
merkja hið sama og denska orð
ið akord. Án nokkurra undan-
bragða skal ég segja það að ég
tel ákvæðisvinnu vera það, sem
ætti að komast á hjá öllum stétt
um, einnig í almennri verka-
mannavinnu, þar sem hægt væri
að koma því við. Ég byggi það
á minni eigin reynslu. Ég byrj-
aði 16 ára að vinna ákvæðis-
vinnu sem verkamaður og vinn
an var að grafa húsgrunn. Svo
var ég í Svíþjóð við skógarhögg
og þar var einnig ákvæðisvinna.
Nú áður en ég kom til íslands,
þá vann eg í járnsteypuverk-
smiðju, ög þar var einnig ákvæð
isvinna. I sambandi við ákvæð-
isvinnu fær hver maður laun
eftir afköstum, og tel það ekk-
ert óréttlátt þótt duglegur og
samvízkusamur maður njóti
sinna verðleika í starfi. Nú ég
tel, að í tímavinnu að ef maður
slæpist, þá sé hann um leið að
stela frá verkkaupanda, en ef
maður slæpist í ákvæðisvinnu,
þá rýrir hann sín eigin laun.
Það er þá þín skoðun, að upp
mæling ,eða ákvæðisvinna, svo
að notað sé þitt orðtak sé beggja
hagur?
Já, ég er sannfærður um það,
að ákvæðisvinna getur verið
beggja hagur og meira en það,
líka þjóðfélagsins í heild, því að
afköstin hljóta að verða meiri.
í sambandi við byggingariðnað-
inn nú, sem mér virðist vera
efst á baugi hjá þjóðinni, þá tel
ég það hagkvæmt fyrir þjóðar-
heildina að framkvæmdir séu
sem mestar á sem stytztum
tíma, þar sem húsnæðisvand-
ræðin eru svo mikil.
En ég hefi heyrt um næstum
ævintýralegt kaup í sambandi
við ákvæðisvinnu, og margir
kalla það hreina og beina fé-
flettingu?
Ég myndi nú fyi-st svara þessu
með því að benda á skrif dag-
blaðsins Tímans, er mér finnst
næsta svívirðileg gagnvart fag-
mönnum en ég vil taka fram,
að hér svara ég aðeins fyrir
hönd smiðanna, aðrir svara fyr-
ir sín stéttarfélög. Ég vil t. d.
benda á 23. tbl. Tímans frá 29.
jan sl., þar sem blaðið fullyrðir
að ákvæðisvinnumaður hafi
kr. 60.000.00 mánaðalaun, er
þýddi að uppskeran væri yfir
árið kr. 720.000.00. Þessar tölur
eru hreinar blekkingar út í loft
ið hvað staðreyndir hér á Akur
eyri snertir. I ákvæðisvinnu
myndi duglegur maður ná kr.
240.000.00 í árslaun, miðað við
að hann sé í stöðugri vinnu, en
vil taka fram að margir bera
mjög minna úr býtum. Nú, tíma
kaup hjá smiðum miðað við
vikukaup er nú kr. 2.333.00 á
viku, sem ég myndi segja að
væri allt of lágt, og er það ekki
einmitt gott, ef duglegir menn
hafa möguleika á að auka tekj-
ur sínar í hlutfalli við dugnað-
inn. Ég hefi mörg dæmi upp á
það, að menn sem hafa keypt
vinnu eftir tímakaupi hafi verið
töluvert dýrari. Ég get nefnt
þér dæmi og það eru staðreynd-
ir. Það er yfir gluggasmíði sam
tals II stykkj. Kaupandinn
þurfti að kaupa þá fyrir kr.
33.000.00 unnið í tímavinnu, en
þar sem maðurinn var óánægð-
ur með þetta verð bað hann mig
að reikna þetta eftir ákvæðis-
vinnutaxta og miðað við að
gluggarnir séu smíðaðir úr furu,
eins og venjulegt er mundi
vinnan kosta kr. 6.223.00, efni
kr. 4.550.00 og með 60% álagi,
Níels Hansson.
sem yrði kr. 3.734.00 mundu
gluggarnir kosta kr. 14.507.00 og
yrðu því gluggarnir 150% ódýr-
ari smíðaðir í ákvæðisvinnu og
ég vil taka fram að þetta er
ekkert einsdæmi í sambandi við
að tímavinna sé neikvæðari fyr-
ir kaupandann en ákvæðis-
vinna.
En viltu skýra mér örlítið frá
ákvæðisvinnutaxta ykkar tré-
smiða og þá einnig lesendum
AM varðandi byggingar?
Já, gjarnan. Ákvæðistaxti í
sambandi við mótavinnu er
reiknað fyrir einbýlishús 44
mín. á fermetra' miðað við slétt-
an vegg, en í fjölbýlishúsum 38
mín. fermetrinn. Nú ef menn
gerðu sig ánægða með minna út
flúr eða íburð á húsum, heldur
en nú er í tízku, þá my-ndi það
geta sparað, ef miðað væri við
kjallara og eina hæð um kr.
20.000.00 varðandi uppslátt og
svona mætti lengi telja. Ég vil
vera svo djarfur að fullyrða, að
það er mikið sök kaupandans
er stuðlar að síhækkandi bygg-
ingarkostnaði. Þeir gera svo
miklar kröfur, sem síðar birtast
sem Grýla, og þá er oft sökinni
komið á fagmennina, er tölur
tala um síhækkandi byggingar-
kostnað. Ég tek sem dæmi, að
einfalt hús, 110 fermetrar,
grunnur með kjallara og einni
hæð, með sperrum myndi kosta
55000.00 kr. til sveina, en þessi
upphæð getur farið upp í
75.000.00 kr., ef verktakinn ger-
ir miklar kröfur til alls konar
útflúrs, sem þo ekkert gagn ger
ir, nema þá fyrir oft og tíðum
all gloppótt fegurðarskyn aug-
ans. Af því að Íslendingar gera
oft samanburð við hin Norður-
löndin, hvað byggingarkostnaði
viðvíkur, leyfi ég mér a'ð benda
á eitt atriði ’til - samanburðar.
Bróðir minn, sem er búsettur í
Svíþjóð, keypti fyrir stuttu 90
fermetra íbúð og kostaði hún
82000.00 sænskar krónur, en
það mun svara til 800.000.00 kr.
íslenzkar, og miðað við að Sví-
ar eiga byggingarefni sjálfir, tel
ég þetta mjög dýrt miðað við 90
fermetra bús hér.
Hvað myndu hús af þessari
gerð kosta hér?
Já, það er nú það, íslending-'
ar gera sig nú ekki ánægða með
minna en 110 fermetra íbúðii’,
en sú stærð myndi kosta hér ca.
900.000.00 kr. En í þessu sam-
bandi vil ég benda á, að þriggja
herbergja íbúð hér í fjölbýlis-
húsi á Akureyri mun kosta um
700.000.00 kr. og tel ég þennan
samanburð ekkert óhagstæðan
fyrir okkur íslendinga.
Hvað segið þið trésmiðir um
fyrirhugaðan innflutning á til-
búnum húsum?
Ég held að það sé engin fram-
tíð í því. Sænsku húsin, er flutt
voru inn á sínum tíma, gáfu
slæma reynslu, og tel ég að
þessi innfluttu hús verði ekkert
ódýrari, þar sem mikið er eftir
að gera við þau þegar þau eru
komin hingað, einnig uppfylla
þau á engan hátt þær kröfur,
er íslendingar gera til húsagerð
ar, og það sama er að segja
varðandi innflutning á eldhús-
innréttingum. Útlend húsgögn,
er hingað hafa verið flutt, hafa
mestöll verið dýrari en innlend
framleiðsla.
Sumir telja að verk í ákvæðis
vinnu séu verr unnin.
Því er til að svara, að ákvæð-
isvinnutaxti er miðaður við
fyrsta flokks vinnu og meistar-
anum ber að taka út verkið og
láta lagfæra, ef einhverju er
ábótavant, áður en næsti aðili
tekur við því. Ég vil taka það
fram, að öll ákvæðisvinna á
vegum Trésmiðafélags Akureyr
ar og einnig Reykjavíkur, er
undir endurskoðun af fulltrú-
um verkkaupanda.
Þetta þóttu mér athyglisverð-
ar fréttir og munu trésmiðafé-
lögin vera einu fagfélögin á
landinu, er hafa fulltrúa frá
verkkaupanda er fylgjast með
mælingum og endurskoðun
reikninga og ætti þessi tilhögun
að stuðla að gagnkvæmari skiln
ingi vinnukaupenda og vinnu-
seljenda, en oft má finna all-
djúpstæða tortryggni hjá fólki
í þessu sambandi. Hér látum við
(Framhald á blaðsíðu 7.)
STAKAN
okkar i
sendir okkur þessa vísu,
með eftirfarandi for-
mála. Þegar ég las vísu eftir
Dalvíkur-Jóhann í vísnaþætti
AM, þótti mér sem fleiri
mundu geta tekið undir vís-
una, ef hún væri öðruvísi, og
snéiú henni þannig:
1
Óskin mín er ávallt pen,
alveg laus við gjálfur.
Drottinn verndi Bjama Ben
og bænheyri mig sjálfur.
„Áhorfandi“ sendir þessa
vísu og vona ég að hún komi
ekki af stað neinni úlfúð á
milli Þórs og'K. A., en yfir-
skriftin er „Horft á knatt-
spyrnu Akureyringa.
. ' n
Sjaldan þrýtur vaskleik
vömin,
vafagemsi er aldrei feginn.
K. A. hefir betri börnin,
en bröltið er allt hinu megiii.
Þannig kveður Arnheiður
Stefánsdóttir frá Múlhúsum á
Jökuldal:
Gróði eins er annars tap,
oft fer margt að veði.
Fyrir kráar kunningsskap,
keypta og selda gleði.
i
Víst má finna sannleik í
næstu vísu, sem er eftir Ósk
Skarphéðinsdóttur:
Kvöldin lengjast, vantar vor.
Vakir þrengjast, bilar þrekið.
samt mín gengin gæfuspor
getur engin frá mér tekið.
Ég held að hún þurfi ekki að
vera misskilinn þessi staka Páls
Ólafssonar.
Undarlega er undir mér
orðið hart á kvöldin
seld því undirsængin er
í sýslu- og hreppagjöldin.
Mun ekki mögum finnast
að Ólöf Sigurðardóttir frá
Hlöðum mælist hér vel:
Meðan glóð í gígnum er
gos í blóði ungu,
munu ljóðin leika sér
létt á þjóðartungu.
1
Munið þið svo lesendur góð
ir eftir vísnaþætti AM. Verið
þið sæl að sinni.
’f############################K