Alþýðumaðurinn - 28.04.1966, Blaðsíða 7
Frá Oddeyrarskólanum
Sýning á skólavinnu barnanna, handavinnu, teikning-
iuro, flokkavinnu, vinnubókum o. fl. verður í skólan-
um sunnudaginn 1. maí n.k. kl. 1—6 síðdegis. Einnig
verða sýndar nokkrar myndir gerðar af nemendum
Cecil Ave School Delano, Calif., U.S.A.
Innritun 7 ára barna (fædd 1959) fer fram miðviku-
daginn 11. maí kl. 1 e. h. í skólann koma öll börn af
Oddeyri, Brekkugötu, Oddeyrargötu neðan við Ham-
arsstíg, Helga-magra-stræti norðan við Hamarsstíg, úr
Glerárhverfi öll börn austan Hörgárbrautar og Skarðs-
hlíð 14-18.
Skólaslit verða iaugardaginn 14. maí kl. 2 síðdegis.
Vorskólinn lrefst mánudaginn 16. maí kl. 10 f. h.
SKÓLASTJ ÓRI.
Frá Barnaskóla Akureyrar
Inntökupróf og skráning 7 ára barna (fædd 1959) fer
fram í skólanum miðvikudaginn 11. maí kl. 1 e. h.
Húsnæði barnaskólanna er nú notað til þess ýtrasta
og verða því árlega breytingar á skiptingu bæjarins í
skólahverfi eftir fjölda 7 ára barna í bæjarhverfunum.
Að þessu sinni verður skiptingin þannig:
Barnttskóla Akureyrar sækja börn búsett sunnan við
Ráðhústorg og vestan við Brekkugötu.
Þó skulu börn, sem búsett eru við eftirfarandi göt-
ur sækja' Oddeyrarskólann:
Helga-magra-stræti norðan við Hamarsstíg,
Oddeyrargata neðan við Hamarsstíg,
(öll börn búsett við Brekkugötu).
Sýning á handavinnu og teikningum fer fram sunnu-
daginn 1. maí kl. 1—6 síðdegis
Skólaslit fara frarn í söngsal skólans laugardaginn
14. maí kl. 2 e. h.
Vorskólinn hefst mánudaginn 16. maí kl. 10 f. h.
SKÓLASTJÓRINN.
Frá Gagnfræðaskólanum
á Ákureyri!
SÝNING á handavinnu nemenda, teikningum o. fl.
verður opin í skólahúsinu við Laugagötu sunnudag-
inn L maí 1966 kl. 1.30—10 síðdegis.
SKÓLASTJÓRI.
Danskar
KVENTÖFFLUR
teknar upp í dag.
LEÐURVÖRUR H.F., Sfrandgöfu 5, sími 12794
Vandað ársrit UMSE
MHEFIR borizt Ársrit
UMSE yfir árið 1965.
Þar er birt starfsskýrsla félags-
ins, er vitnar um þróttmikið
starf sambandsins. Séra Jón Kr.
ísfeld á þar grein er nefnist:
Enn þarf að sækja fram. Hall-
dór Gunnarsson íþróttakennari
skrifar: Hugleiðingu um íþrótt-
ir. Þorbjörg Finnsdóttir segir
frá ferð eyfirzkra ungmennafé-
laga á Landsmót UMFf á sl.
sumri. Þóroddur Jóhannsson
skrifar um íþróttamannvirki á
félagssvæðinu. Þá er birt ágrip
af starfi hinna ýmsu félaga inn-
an sambandsins, kvæði eftir
Magnús Gunnlaugsson og
Frosta og skýrt er frá bezta
árangri í frjálsum íþróttum á
félagssvæði UMSE.
- HEYRT, SPURT ...
(Framhald af blaðsíðu 4)
inn“, en í kosningunum þá bætti
„dauði flokkurinn“ við sig 412
atkvæðum frá bæjarstjórnar-
kosningunum þar á undan og
einum fulltrúa í bæjarstjórn.
Við teljum okkur raunsæa bjart
sýnismenn hjá AM og teljum
án nokkurs hiks að kosninga-
sigurinn verði enn stærri núna,
en 1946. Við erum svo sem ekk-
ert að fullyrða að það verði endi
lega Arnþór er detti.
PÓLITÍSK kona skrifar. Það
vekur mikla atliygli í bæn-
um að bæði Hörður Aðólfsson
og Amfinnur Arnfinnsson, eru
horfnir af lista Alþýðubanda-
lagsins, einmitt þeir menn er
stuðluðu hvað mest að fylgis-
aukningu síðast. Ég lít svo á að
með hvarfi þessara mætu
manna af listanum séu róttækir
jafnaðarmenn orðnir vonlausir
um að hægt sé að sameina jafn-
aðarmenn, með því að hafa
kommúnista innan þeirrar fylk-
ingar. Ég tek þetta sem aðvörun
og mun því kjósa Alþýðuflokk-
inn í vor.
MÞÓTTI Erlingur í Degi
klaufskur og allgrófur í
skrifum sínum um okkar ágætu
yfirhjúkrunarkonu og ritstj. ís-
lendings, en í gær bað einn á-
gætur Sjálfstæðismaður AM. að
spyrja: Hvort myndi verða und
ir eða ofan á í kosningunum,
Amþór eða Ingibjörg.
AM. kvað það litlu máli
skipta, því að a. m. k. 3 kratar
yrðu ofan á bæði Ingibjörgu og
Amþóri.
FR ÞAÐ rétt að Linduumboð-
i» í Reykjavík flytji inn er-
lent tyggigúmmí á sama tíma
og vandaðar vélar til slíkrar
starfsemi standa óhreyfðar hjá
Eyþóri í Lindu?
AUGLÝSING
Ráðsmann vantar við Sjúkrahús Húsavíkur. Umsókn-
arfrestur til 5. maí næstkomandi.
Launakjör: 13. launaflokkur.
Umsóknir sendist til formanns sjúkrahússtjórnar As-
kels Einarssonar, bæjarstjóra, Húsavík.
STJÓRN SJÚKRAHÚSS HÚSAVÍKUR.
AUGLÝSING
Ráðskonu vantar við Sjúkrahús Húsavíkur. Umsókn-
arfrestur tíl 5. maí næstkomandi.
Launakjör: 19. launaflokkur.
Umsóknir sendist til íormanns sjúkrahússtjórnar Ás-
kels Einarssonar, bæjarstjóra, Húsavík.
STJÓRN SJÚKRAHÚSS HÚSAVÍKUR.
SUMARVINNA
Það verkafölk, konur og karlar, 16 ára og eldra, sem
óskar að fá vinnu hjá oss í sumar í frystihúsi voru eða
við saltfisk og skreið, gjöri svo vel að hafa samband
við verkstjóra vora eða skrifstofuna liið allra fyrsta og
eigi síðar en 10 maí n.k.
Unglingar yngri en 16 ára verða einnig skráðir, en
ákvörðun um ráðningu þéirra verður eigi tekin fyrr en
lyrir liggja umsóknir fullorðinna.
ÚTGERÐARFÉLAG AKUREYRINGA H.F.
L. MAl L966
Hátíðahóld verkalýðsfélaganna á Akureyri
HÁTÍÐASAMKOMA í Nýja-Bíó kl. 1.30 e. h.
Rósberg G. Snædal ílytur setningarávarp — Lúðrasveit
Akureyrar leikur — Heiðrekur Guðmundsson, skáld,
les upp — Ræður flytja: Jón Ingimarsson, formaður
Iðju, Ketill Indriðason bóndi á Fjalli og Björn Jóns-
son, formaður Einingar.
BARNASAMOMUR í Alþýðuhúsinu og Borgarbíó.
DANSLEIKIR í Alþýðuhúsinu og Sjálfstæðishúsinu.
ÓMAR RAGNARSSON skemmtir á öllunr samkom-
unum.
Sjáið götuauglýsingar.
1. MAÍ-NEFNDIN.
VERZLUNIN HÖFN á Hafnarbakkanum
verður framvegis opin til kl. 23.30
frá og með 1. maí.
ODDUR ÁGÚSTSSON
ATHUGIÐ: Opið fil 23.30 frá ogmeS 1. maí
FERÐANESTI
VIÐ EVJArjARÐARBRAUT