Alþýðumaðurinn - 05.05.1966, Blaðsíða 4
lisuiiiistiiittitiiiiiiiitiifiiiiiiiifiiiimiiiiitiiiitiiiiiiiiiiimiiiitminftiiiiiiiimiiiiiiitiiiiiitiiiiitiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiu'iiiuniiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiiitiiiiitiiiiiiimfiiiiiiiiitiiiiiiiiiimtiiiiiiiimiiiiiiitinii'
Ritstjóri: SIGURJÓN JÓHANNSSON (áb.).
útgeíandi: ALÞÝÐUFLOKKSFÉLAG AKUR-
EYRAR. — Aígreiðsla og auglýsingar:
Strandgötu 9, II. hæð, sími (96)11399. —
Prentverk Odds Björnssonar h.f., Akureyri
ALÞYÐUJVIAÐUR5NN
• iiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiii
11111111111111111111111111111111111111111111111111111111111
lllilllllilllllll..
Sókn jaínaðarstefnunnar
í SL. ÁRI juku þýzkir jafnaðarmenn stórlega fylgi l
sitt, og í vetur hafa jafnaðarmenn í Finnlandi og §
Bretlandi unnið slíka kosningasigra, að heimsathygli \
helir vakíð. I>essa dagana eru jafnaðarmenn í Finn- I
landi sem leiðandi flokkur finnska þingsins að mynda I
ríkisstjórn, en um árabil hafa Sovétríkin kúgað Finna \
til að halda finnskum jafnaðarmönnum utan áhrifa í |
ríkisstjórn. Nú hefir finnska þjóðin brotið af sér það f
ok og i’ylkt sér að stórum hluta undir merki jafnaðar- 1
stefnunnar, eins og fyrr ségir.
V BRETLANDI unnu jafnaðarmenn í nýlega afstöðn- i
um þingkosningum slíkan kosningasignr, að til ein- i
dæma telst, en þar hafði flokkur. jafnaðarmanna stjórn- i
að landinu um rúmlega ársskeið við mjög nauman 1
þingmeirihluta, en farizt það svo úr hendi, að við ný- f
afstaðnar kosningar jók hann þingmeirihluta sinn úr f
2ja fulltrúa meirihluta. í 97 fulltrúa meirihluta. Sú f
traustsyfirlýsing hrezku þjóðarinnar við jafnaðarstefn- f
una vakti að vonum heimsathygli. i
TTF.R Á ÍSLANDI hefir athygli fnanna líka heinzt f
** meir að jafnaðarmíjnnum og samtakaflokki þeirra, f
Alþýðuflokknum, en oft fyrr. Þar á nokkurn hlut að (
máli hálfrar aldar afmæli flokksins nýafstaðið og upp- |
rifjun mála, sem hann hefir ýmist haft forgxingu um (
eða veitt öflugan stuðning. Mönnum varð ljósara en f
fyrr, mörgum hverjum, hve margt og mikið starf f
flokksins er í íslenzkri lramfarasögu og hve fjarstætt I
er ýmislegt, sem honum htfir verið fundið til foráttu |
af andstæðingunum. |
■ “ ^ 7
IjÁ \TKUR athygli í vaxancjá mæli, Uvernig flokkur- f
* inn vinnur. Hann talar til skynsemi kjósenda og f
þegnskapar, skýrir mál frá sjónarhóli jafnaðarstefn- I
unnar, leynir ekki annmörkunWr-þessajj eða hinni úr- f
lausn og viðurkennir það, seití ’ékki hefir tekizt, en (
skýrir líka, hvers vegna þetta eða hitt hafi mistekizt, f
ög.hann sneiðir meir en aðrir flokkar hjá ásökunum og (
brigzlum í garð andstæðinga, en á slíkum hardagaað- f
ferðum gerist almenningur æ leiðari. , f
F:NN VEKUR athygli fólks, að Alþýðuflokkurinn er f
nú mjög samstæður og heilsteyptur í framgöngu f
sinni fyrir baráttumálum sínum og hefir sigrazt á inn- (
byrðis deilum, sem hins vegar hrjáir nú opinskátt f
suma aðra flokka. Allt þetta vekur vaxandi traust á (
flokknum sem og hitt, að þeim fjölgar stöðugt, sem f
gera sér Ijóst, hve heilbrigð og affarasæl þjóðfélags- f
stefna jafnaðarstefnan er: hún herst fyrir íramförum |
án ofríkis, hún vinnur að umbótum án cifga, hún leit- f
ar samvinnu og samstöðu sem flestra um úrlausn mála f
og hún forðast hatursáróður og afflutning á málstað f
þeirra, sem eru annars sinnis um úrlausn mála í ýms- f
' um tilvikum, því að jafnaðarmönnum er ljóst, að f
deildar skoðanir og rökræður um mismunandi leiðir f
að marki geta leitt til enn betri úrlausna en fyrr var f
- hugleitt. f
¥ ÞESSUM mánuði fara bæjarstjórnarkosningar fram f
-*- um allt land og í sumum kauptúnum sveitarstjórn- f
arkosningar, og í næsta mánuði verður kosið til ann- I
arra sveitarstjórna. Alþýðuflokkurinn gengur sigurviss f
og starfsglaður til þessara kosninga og er það bæði upp- I
örvún og gleðiefni að hafa orðið þess áskynja, að nú f
munu margir veita honum hrautargengi, sem eigi hafa (
gert svo fyrr. Alla slíka kjósendur býður Alþýðuflokk- f
(Framhald á blaðsíðu 7.) f
S
PP
draumurinn fæst sennilega ekki
bókaður í fundargjörðarbækur
bæjarstjórnar. En þökk fyrir
samt Reykjalín, það veitti ekki
af að lappa svolítið upp á
húmorleysi Erlings.
HVERS VEGNA er Hörður
Aðólfsson ekki í 3. sæti G-
listans nú eins og síðast, svo
mjög sem hann efldi listann þá
að fylgi? spyr nú maður mann,
en Alþýðubandalagsmenn verj-
ast um þetta allra frétta. Hvers
vegna er Arnfinnur Arnfinns-
son ekki á lista þeirra nú?
spyrja menn líka, en hann safn-
aði fast liði að listanum síðast.
HEYRT
SPURT
VIÐ HÓFUM þáttinn i síðasta
blaði á heldur óhugnanlegri
mynd. En í dag er myndin aftur
á móti fögur. Stúlkan lieitir
María Ragnarsdóttir og sýndi
hún sumarföt á vegum Vefnaðar
vörudeildar KEA og Verzlunar
innar Drífu á fjáröfiunardegi
kvenfélagsins Hlífar. Við þökk-
um Maríu fyrir sumarið í svip
og fasi og Hlíf fyrir Pálmholt.
SKRIFAR. Allt í einu
varð Dagur skemmtileg
ur. í næst síðasta blaði birti
Dagur reyfara eftir Reykjalín
okkar, sem allir bæjarbúar hafa
skemmt sér við. En það er
„Slippdraumurinn“ hans um
forustu Framsóknar í dráltar-
brautarmálinu. Bara verst fyrir
Reykjalín og Framsókn, að
HLERAÐ
Eða hví tók ekki Jón Helgason,
greindur og gegn starfsmaður
verkalýðsfélaganna hér í bæ og
vel látinn, þriðja sætið á G-list-
anum að Herði frágengnum,
spyrja menn, en Alþýðubanda-
lagsmenn þegja sem fastast.
Og hvers vegna tók ekki
Björn Jónsson þriðja sætið, að
hinum ófáanlegum? spyrja menn
líka. Honum bar, fhmst fólki,
að verja flóttann sem foringi
liðsins. „Ber þú sjálfur Krák
þinn,“ sagði Hrafn rauði við Sig
urð jarl Hlöðvisson í Brjánsbar-
daga, er tveir fánaberar höfðu
verið felldir fyrir honum og Sig
urður vildi fá Hrafn til að bera
merki sitt. Sigurður gerði þá
svo og féll, en með sæmd. Björn
hefur valið hinn kostinn að láta
óþekkt ungménni bera „krák“
sinn, og ferst þannig ólíkt Sig-
urði.
BJÖRN JÓNSSON alþingis-
maður í Norðurlandskjör-
dæmi eystra, átti allt í einu
mjög annríkt heima í kjördæmi,
þegar að staðfestingu kísilgúr-
samnings dró á Alþingi, Hjalti
Haraldsson, bóndi í Svarfaðar-
dal, fékk það vandasama verk
sem varamaður Björns, að vera
EKKI á móti samningnum og
þó á MÓTI honum. En um
Hjalta verður heldur ekki kosið
í næstu alþingiskosningum, veit
Björn. Sjálfur getur hann sagt
með frómum svip: Ég fjallaði
eki um málið á þingi, því ég var
í önnum heima.
KARL KRISTJANSSON al-
þingismaður, er sá þing-
maður Framsóknar, er fastast
hefur prédikað, að menn lytu
skilyrðislaust flokksaga, og á að
hafa verið þungorður í garð
Jóns Skaftasonar og Bjöms
Pálssonar, er „féllu á prófinu“
við afgreiðslu álmálsins á Al-
þingi, svo að orðalag Dags só
snúið upp á liðsmenn hans. En
Karl átti eftir að „falla á próf-
inu“ sjálfur, því að við atkvæða
greiðslu kísilgúrsmálsins í efri
deild á dögunum, greiddi hann
atkvæði gegn flokksmönnum
sínum, og mun Erlingur okkar
lijá Degi, ugglaust ekki láta hjá
líða að snupra manninn harð-
lega fyrir. Og hvað segja „lietj-
ur í héraði“ Ketill undir Fjalli
og Hermóður í Árnesi?
17’LÓI SKRIFAR m. a. I ræðu
sinni þann 1. maí taldi Jón
Ingimarsson ýmislegt er áunn-
izt hefði í baráttu íslenzkrar al-
þýðu, nefndi hann m. a. togara-
vökulögin og almannatrygging-
ar, en hann var svo sem ekkert
að skýra frá því að það voru
kratarnir er báru þesi mál á-
samt fleirum fram til sigurs.
(Framhald á blaðsíðu 7.)
A\\
AF NÆSTU GRÖSUM
l:u,,
MESSAÐ verður í Akureyrar-
kirkju n. k. sunnudag kl.
2 e.h. Sálmar nr: 17, 406, 147,
131, 354. B. S.
MESSAÐ í Lögmannshlíðar-
kirkju kl. 10.30 f.h. á sunnu-
daginn kemui', ferming. —
Sálmar nr: 372, 111, 594, 648,
596, 603, 591. Sóknarprestar.
HESTAMANNAFÉLAGAR Ak
ureyri! Munið aðalfund Léttis
í Alþýðuhúsinu n. k. föstu-
dag kl. 9 e.h.
KRAKKAR og vísnavinir. AM
þarf því miður að fresta barna
sögunni og Stökunni okkar
fram yfir kosningai'. Hittumst
heil að þeim leik loknum.
ZION. — Sunnudaginn 8. maí.
Samkoma kl. 8.30 e.h. Allir
velkomnir.
FRA SJÁLFSBJÖRG.
Bazar og kaffisala fé-
lagsins verður að
Bjargi sunnudaginn 8.
maí kl. 3 e.h. Allur
ágóði af kaffisölunni rennur í
minningarsjóð Ragnheiðar
Hjaltadóttur. Einnig verður
tekið á móti gjöfum í sjóð-
inn. Föndurnefndin.
BAZAR og KAFFISALA verð-
ur í sal Hjálpræðishersins n.
k. laugax-dag kl. 3—6 e.h..
Góðar vörur, gott verð, styðj-
ið starfið.
HJÁLPRÆÐISHERINN. — Al-
menn samkoma vei'ður í sal
Hjálpræðiáhei'sins n. k. föstu-
dag kl. 20.30. Laugardag kl.
20.30 verður sýnd kvikmynd
fi'á 100 ára afmæli Hjálpræð-
ishersins í Englandi. Sunnu-
dag kl. 20.30 Hjálpræðissam-
koma. Mánudag kl. 16 Heim-
ilasamband, og kl. 20.30 Æsku
lýðssamkoma KVIKMYND.
KRAKKAR athugið, að kvik-
mynd verður fyrir börn kl. 6
á föstudaginn og sunnudaga-
skóli á sunnudaginn kl. 2 e.h.
Brigader Alma Rosseland
stjórnar þessum samkomum.
Allir velkomnir.