Alþýðumaðurinn - 19.05.1966, Qupperneq 4
iitiiiiiiiniiiiimiimtiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiinuiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiitiiiitiniiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiiiiiituiiniiiiiiiiiiiiiiiliiitiitiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiNimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii*
Ritstjóri: 5IGURJÓN JÓHANNSSON (áb.).
Útgi>íandi: AU»ÝÐUFLOKKSFÉLAG AKUR-
EYRÁR. — Áígreiðsla og auglýsingar:
Strandgötu 9, II. hæð, sími (96)11399. —
Prentverk Odds Björnssonar h.f., Akureyri
ALÞYÐUMAÐURINN
--------------
iiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiftiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii
111 ■ i ■ i ■ ii ■ ■ 11111 n ■ ■
Nóg vatn - og gott
IÞÉTTBÝLI — og raunar hvar sem er — er nóg vatn
og gott hvortveggja í senn ein brýnasta nauðsynin
og sjálfsögðustu þægindin. Hitt gleymist oft, að það
getur verið miklum kostnaði bundið að afla þessara
þæginda og nauðsynja, þó að íslendingar séu vísast
flestum þjóðum betur settir við þá útvegun og hafi
víðast t(ik á að ná í ágætt vatn.
SÚ TRÚ hefir verið ríkjandi hér á Akureyri, að
bærinn ætti óþrjótandi vátnsforðabúr -í Hlíðar-
íjalli, en nú er svo komið með sífelldri útþenslu bæjar-
ins og vaxandi vatnsþörf frá ári til árs við aukinn iðn-
að og alls konar þjónustu, að Itrýn nauðsyn er fyrir
bæinn að ráðast í miklar framkvæmdir til aukningar
vatni í bæinn, og hafa tvær úrlaúsnir komið mest til
orða: vatnsveita með dælingu framan frá Þveráreyrum
eða hreinsun Glerár upp á Glerárdal, þaðan sem fall-
þrýstingur yrði nægur.
HVORTVEGGJA úrlausnin er talin dýr. Hreinsun
Glerár dýraf i að stofnkosnaði, en dæling vatns
framan frá Þveráreyrum rafmagnsfrek í rekstri og auk
þess háð því, að rafmagnið fari aldrei af, svo að mótor-
stöð þarf að reisa til vara Laxárrafmagni. Enn eru
þessi mál á athugunarstigi, en þeim athugunum þarf
nauðsynlega að hraða og freista þess að finna hagkvæm-
ustu og varanlegustu lausnina, auk þess sem eigi má
slaka á kröfunni um fyrsta flokks vatn, sem Akureyri
er þekkt fyrir.
-^\v
\
VÉR GERUM það hér með að tillögu vorri, að vatns- \
veitmtjóra bæjarins, sem allir þekkja að dugnaði og i
trúleik í starfi, verði falið að kynna sér erlendis vand- I
aðar og hagkvæmar vatnshreinsistiiðvar, t. d. í Noregi, |
þar sem talsverð reynsla mun fyrir hendi um þær. Oss |
finnst, að fyrst beri að fullkanna Glerárúrlausnina.
Malbikun gatna
SVO SF.M VATNIÐ er nauðsynlegt til neyzlu og §
hreinlætis, svo eru steyptar eða malbikaðar götur =
nauðsynlegar, svo að hægt sé að halda stórum bæjum i
þrifalegum. Hér í bæ sem víðar er götuforin í rigning- }
um og rykið í þurrkatíð lengi búið að angra bæjarbúa, i
en með nýjum og stórvirkum malbikunartækjum, hill- |
ir loks undir draum okkar allra: hvert stræti og hver I
gata malbikuð horna milli í bænum og steyptar, lagð- |
ar eða malbikaðaf gangstéttir. Þegar þessu verki verð- i
ur lokið, þurfum við varla að fyrirverða okkur lengur 1
fyrir forina og rykið, sem nú er óneitanlega oft hin |
mestu bæjarlýti, en öll vijjum við hafa bæinn okkar |
fyrirmyndarbæ um hreinlæti og umgengni sem annað. i
I^N STORAÚKNING vatnsveitunnar, sem hér er |
" nefnd að fráman, og hið mikla átak, sem blður i I
gatnagerðarmálum okkar, verða mjog fjárfrekar fram- i
kvæmdir. Það kann því að þykja eigi góð latína, að f
telja slíkar þjónustidramkyæmdir eitt af því albrýn- \
asta, nú á kosningaloforðadiigum, er bíði úrlausnar |
nýrrar bæjarstjórnar, og segja bæjarbúum, að þær verði i
fjárfrekar og krefjist fórna af þeirn. Þetta er hins vegar |
sannleikur, sem enginn má dylja sig, enda munu bæj- i
arbúar ekki undan gjiildunum skorast, finni þeir, að |
fast ög Vél sé framkvæmt, svo sem hér er þörf án táfar. f
HÚN HEITIR Friðný Jóhann-
esardóttir. Ljósmyndari
blaðsins, Níels Hansson, mætti
henni á förnum vegi, eftir skóla
slit í Oddeyrarskóla sl. laugar-
dag. AM er tjáð að hún liafi
staðið sig vel í skólanum og
hlotið verðlaun fyrir dugnað
sinn. AM sendir henni heilla-
óskir og óskar henni hamingju
og farsældar í framtíðinni.
¥vAÐ var kominn aðeins sunn-
anblær sl. föstudag og við
sáum það strax, að það hafði
orkað jákvætt á hugarheima
þeirra hjá Verkainanninum, eru
svolítið grínaktugir í sér, en
snupra samt Sigurjón fyrir það,
að hafa andúð á prósentureikn-
ingi og vorkenna blessuðum
krökkunum, er þurftu á sínum
tíma að una við kennslu þessa
prósentuhatara, það var svo
sem ekki að spyrja að hugul-
seminni hjá þeim blessuðum.
En það skyldi nú ekki fara svo,
að prósentuvinirnir hjá Verka-
manninum þyrftu að fá sér ein-
livern vökva með prósentunni
sinni eftir kosningamar, að hún
reyndist vera orðin strembið
þurrmeti, er erfitt væri að
kingja, en þökk fyrir krossinn
fyrir framan A.
AMANSAMUR náungi bið-
ur AM að koma þeirri orð-
sefidingu á framfæri til þeirra
hjá Verkamanninum, að þeir
ættu að fara til Helga okkar
augnlæknis úr því að þeim hafi
missýnzt svona berfilega, þá er
þeir lásu klausu hans í síðasta
blaði AM, en hann vonar að Ing
ólfi sínum Árnasyni hafi eigi
missýnzt og því skilið sig rétt.
¥Á, og sko til líka. Sunnanátt-
" in liefur einnig strax orkað
til hins betra á hann Erling
okkar hjá Degi. Það bregður
fyrir svolítilli gamansemi hjá
honum annað veifið, minna við-
brögð hans, sveitamann á til-
burði kálfs, sem er sleppt út í
fyrsta sinn, dálítið klaufalegur
og óráðinn í spori, en síðan létt
stökk, þó án þess að athuga
hvert stokkið var, og af þeim
sökum stundum lent í fjós-
haugnum, og þá dapraðist held-
ur betur Iéttleikinn hjá kálfsa.
Þannig er einnig með „létta
hjalið“ hans Erlings, stundum
nær hann því næstum að vera
„humoristi“, en dettur svo
skyndilega niður í gamla Dags-
ergelsið aftur.
■pKKI datt okkur nú í hug, að
Erlingur væri afbrýðisam-
ur við AM út af fallegu stúlku-
myndinni, er við höfum stund-
um birt. Hann Erlingur er svo
myndarlegur og landsfrægur
Ijósmyndari. Hann ætti svo sem
ekki að vera í vandræðum að
ná í fallega stúlkumynd í blað-
HEYRT
SPURT
SEÐ
HLERAÐ
ið. Hvaða blómarós myndi for-
smá að sitja fyrir hjá Erlingi?
— ekki einu sinni Ingibjörg.
¥jÁ er það nú sendibréfið til
hans Wilsons. Það getur
svo sem vel verið, að Sigurjón
pári honum línu, þá er tóm
gefst til eftir kosningarnar, þeg
ar þau Arnþór og Ingibjörg eru
fallin. En leiðrétta skal nú ör-
lítinn misskilning, er gætir hjá
Erlingi. AM liefur varað við
tveggja flokka kerfi á fslandi
að bandarískri fyrirmynd, þar
sem tveir auðvaldsflokkar
drottna, en talið það aftur æski-
lega þróun hér, sem orðið hefur
í Bretlandi, að allir lýðræðis-
sósíalistar sameinuðust innan
eins flokks. Hér yrði það því
jafnaðarmannaflokkur er
keppti við kapitaliskan flokk
um völdin. Það er lireinn mis-
skilningur, að ég liafi verið að
lofa kjördæmaskipunina í Bret-
landi. En hvað er þetta, Erling-
ur, þar er nú einmitt það fyrir-
komulag, er Framsóknarflokk-
urinn vildi viðhalda hér á fs-
landi og Erlingur varði af mikl-
um móði á sínum tíina. Þetta eru
nú töluverð sinnaskipti og von-
andi að Erlingur fái ekki snupr-
ur fyrir þessa uppljóstrun frá
þeim þarna fyrir sunnan.
/AKKUR þykir leitt að Erlingí
" hefir missýnzt þá er hann
leit þungbúnu mennina á göt-
um Akureyrar, það eru einmití
óánægðu mennirnir, sem stað-
ráðnir eru í því að yfirgefa
Framsókn. Annars er ekki rétt
að segja að þeir séu þungbúnir,
heldur vildi AM segja fremur
að þeir væru einbeittir, ákveðn-
ir að snúa ekki til baka og AM
biður þá velkomna yfir í sókn-
arlið A-Iistans.
AjVf MÁ ÞVf miður eltki
■^*-*-"* heiðra Erling með meira
rúmi og verður því að sleppa
Olgeiri í Vatnsleysu og álnum
að þessu sinni, en þó skal játað
að AM varð fyrir vonbrigðum
með Dag, hann hefir sem sé al-
veg gleymt að skamma pörupilt-
ana í Framsókn, þá Jón Skafta-
son, Björn Pálsson og Karl
Kristjánsson fyrir það að svíkja
einingarstefnu Framsóknar. Og
fullyrðir AM, að okkar ágæti
barnalæknir, Baldur Jónsson,
myndi gefa Erlingi róandi
sprautu, ef hann skyldi verða o£
taugaspenntur rétt fyrir kosn-
ingarnar. En þökk fyrir Erling-
ur, er ekki ágætt að slá upp
svolitlu glensi í kosningabardag
anum, og Iesendur munu eflaust
meta það bæði við Dag og AM.
KETTA ER utan pólitíkur.
*■ Okkar ágæti Kristinn Þor-
steinsson hjá K.E.A. hringdi í
AM út af smá aðfinnslu er kom
fram varðandi heimsendingar
K.E.A. í síðasta blaði. Kristinn
sýndi sömu Ijúfmennskuna og
ætíð áður þá er AM hefir falað
auglýsingar frá lionum. AM
metur það ætíð mikils þá er við-
komandi er gagnrýni hlýtur í
þessum þætti skýrir sitt sjónar-
mið og þá er tilganginum náð.
Kristinn skýrði málið að hálfu
K.E.A. og kvað hann að hús-
mæðrum hefði verið sent bréf
varðandi breytingarnar á heim-
sendingu vara og af hvaða
ástæðum þær væru sprottnar.
AM væntir þess að liúsmæður
muni enn efni þessa bréfs er
Kristinn sendi, svo þakar AM
Kristinn sendi, svo þakkar AM
blaðið mun gjarnan birta bréf
lians til húsmæðranna þá er
rúm gefst til, eftir kosningam-
ar. AM veit að Kristinn skilur
það að það er frú ein sem póli-
tík heitir, sem lætur veslings
blaðamennina aldrei í friði fram
að 22. maí.
pN AM VILL gjarnan gleðja
^ Kristinn með því að nokkr-
um mínútum eftir að hann
hringdi í AM, fékk blaðið upp-
hringingu frá húsmóður liér í
bænum er kvað áðurnefnda að-
finnslu ekki réttláta og hún tók
það fram að hún kysi A-Iistann,
en ekki B. Hún kvaðst vilja
(Framhald á blaðsíðu 2.)
'*millllllllllllftllMllltlitllllllll«l<!lllllftllMIII«ltllllllilttl4!ll§#44!#llll