Alþýðumaðurinn - 03.06.1966, Page 1
*
Opið öil kvöld til kl. 23.30 I Skipuleggjum ícrð- B Fyrir hópa og | ir endurgjaldslaust | einstaklinga
VERZLUNIN BREKKA LÖND O G LEIBIR. Sími 12940
FRAMKÖLLUN — KOPIERING
PEDROM YNDIR Akureyri
HAFNARSTRÆTI 85 . SÍMI (96)11520
ALÞYÐUmAÐURINN
XXXVI. árg. — Akureyri, föstudaginn 3. júní 1966 — 22. tbl.
BRÍÐABIRGÐA5AMK0MUIAG
VERKALÝÐSFÉLAGANNA Á NORÐURLANDI
SL. MÁNUDAG var undirritað
á Akureyri samkomulag milli
verkalýðsfélaganna á Norður-
landi og samtaka vinnuveitenda
um framlengingu fyrri kjara-
samninga með nokkrum breyt-
ingum.
Samkomulag þetta gildir frá
og með 1. júní um óákveðinn
tíma. Samkomulagið kveður
svo á, að vinnuvika verði stytt
um 1 klst. í 44 stundir, að grunn
kaup hækki um 0,5% og einnig
að á það verði reiknað 2,5%
álag í þeim tilvikum, þar sem
ekki er um aldursuppbót að
ræða.
Öll vinna við fiskverkum sem
áður hefur verið greidd sem al-
menn vinna hækkar auk þessa
um 1 taxtaflokk og vinna
kvenna við fiskverkun hlut-
fallslega.
Áiag vegna nætur- og helgi-
dagavinnu hækkar úr 81% í
91% sömuleiðis kveður sam-
komulagið á um hækkun á
kaupi við stórvirkar vinnuvélar
og fyrir bifreiðastjóra.
Loks lýsa samningsaðilar yfir
að þeir muni undii'búa, fyrir
gerð endanlegra samninga,
breytt fyrirkomulag á greiðsl-
um fyrir veikindadaga.
Að samkomulaginu standa 18
vei-kalýðsfélög á svæðinu frá
Blönduósi til Þórshafnar, en af
hálfu vinnuveitenda Vinnuveit-
endasamband íslands og Vinnu
málasamband Samvinnuféiag-
anna.
(Fréttatilkynning)
N
Sjúkraliðar úlskrifaðir
ÞANN 26. fyrra mánaðar voru
héðan frá Fjórðungssjúkra-
húsinu útskrifaðir fyrstu sjúkra
liðarnir, 14 talsins, er lokið hafa
námi hér á landi. Nám sjúkra-
liða stendur í 8 mánuði sam-
fleytt. Hinir nýútskrifuðu
sjúkraliðar munu allir verða
við störf á Akureyri í sumar,
nema tveir er munu vinna á
Kristneshæli. AM óskar þeim
til hamingju með námið og til
heilla í starfi.
Efla þarf útgerð frá Akureyri. Myndin er frá síðasta Sjómannadegi.
Ljósni.: Gunnl. P. Kristinsson.
=<X»=
S
U.A. þarff fyrirtæki. - Nauðsyn ber aS
endurnýja skipasfól þess hið fyrsfa
Aðalfundur félagsins var haldinn sl. þriðjudag
Þ
kÓTT rekstrarhalli ÚA á s.l. ári næmi 2,4 milljónum króna,
munu allir Akureyringar vera sammála um það, að Útgerðar-
félag Akureyringa ber að efla og þá fyrst og fremst með nýjum
skipakosti. — Nánar er um þetta mál rætt í leiðara AM í dag. —
Hér á eítir birtist stuttur útdráttur úr skýrslu félagsstjórnar.
AÐALFUNDUR Útgerðaríélags
Akureyringa var haldinn s.I.
þriðjudag, í hinum vistlega
matsal félagsins. Mættir voru
stjómarnefndarmenn ÚA, fram
kvæmdastjórar og hluthafar.
Fundarstjóri var kjörinn
Sverrir Ragnars og fundarritari
Pétur Hallgrímsson. Skýrslu
stjórnarinnar flutti stjórnarfor-
maðurinn, Albert Sölvason en
siðar skýrðu framkvæmdastjór-
::
AKUREYRINGAR
UNIÐ A-listafagnaðinn í
Sjálfstæðisbúsinu í
* kvöld. Verið velkomin.
}M’
í
Myndin cr af sjúkraliðunum ásamt yfirhjúkrunarkonu Ingibjörgu
Magnúsdóttur og deildarhjúkrunarkonu Guðfinnu Thorlacíus.
Ljósmyndina tók Níels Hansson.
arnir, þeir Gísli Konráðsson og
Vilhelm Þorsteinsson reikninga
félagsins. Reikningarnir voru
síðan samþykktir og ný stjórn
kjörin. Hana skipa: Albert
Sölvason, Jakob Frímannsson,
Arnþór Þorsteinsson, Steindór
Jónsson og Tryggvi Helgason.
Endurskoðendur, Kristján Ein-
arsson og Ragnar Steinbergsson.
Það merkasta, sem fram kom
í skýrsl.um stjórnar og fram-
kvæmdastjóra var þetta:
Allir togarar Útgerðarfélags
Akureyringa h.f. voru reknir
með halla síðasta ár, Kaldbak-
ur með 796 þús. kr., Svalbakur
812 þús. kr., Harðbakur 1.692
þús. kr., Sléttbakur 978 þús. kr.
og Hrímbakur 1.088 þús. kr.
Aftur á móti varð rekstur hag-
stæður hjá hraðfrystihúsi, 2.685
þús. kr., skreiðin með 41 þús.
kr., saltfiskverkun með 166 þús.
rk. En heildarútkoma fyrirtæk
isins varð reksturshalli, sem
nam kr. 2.472.304.88. En þá
höfðu eignir ÚA verið afskrif-
aðar um 3.596.315.42. Heildarút-
koma fyrirtækisins sýnir veru-
lega betri afkomu þess nú held
ur en árið 1964, sem stafaði af
meiri afla togaranna og hag-
kvæmari nýtingu.
Útgerðarfélag Akureyringa
h.f. greiddi síðasta ár 1105 aðil-
um kaup, samtals kr
41.524.213.26, auk fríðinda. Af
þessari upphæð var greitt til
sjómanna kr. 23.490.085.93.
Utan beinna vinnulauna, sem
hér eru að framan taliri, greiddi
Útgerðarfélag Akureyringa til
hinna ýmsu fyrirtækja í bæn-
um, vegna margskonar vinnu
og þjónustu margar milljónir
króna.
Vélakostur Hraðfrystihúss fé
lagsins var aukinn og endur-
bættur á árinu, og fyrir dyrum
stendur nokkur stækkun þess.
f umræðum á aðalfundinurri
kom fram, að stjóm félagsins
hefur látið fara fram nokkra at-
hugun á möguleikum til að
endurnýja skipakost þess. En
þær athuganir eru á byrjunar-
stigi.
Á þessu ári hafa togararnir
fengið heldur minni afla en á
sama tíma í fyrra.
Frá áramótum hafa aðeins
þrír togarar ÚA stundað veiðar
óslitið en fjórði togarinn, Sval-
bakur, kemur væntanlega um
miðjan mánuðinn úr 16 ára
flokkunarviðgerð.
FYRSTI FUNDURINN
'F'YRSTI fundúr hinnar ný-
kjörnu bæjarstjórnar verð-
ur lialdinn þriðjudaginn 7. júní.
Munu þá verða kosnir forsetar
og bæjarstjóri.