Alþýðumaðurinn - 09.06.1966, Síða 2
“s
Íþróttasíáa A.M.
WWIWHmHWIHIIIIIHHmMIUHHMIIHWIHIIIHIIWHtHtllHHlmmHWWWWmWHimHIHIimHIHIItimillHmHIHHHIIWmmiHIWIiHWIUHWWHHmHHWHHWWtlHHIHHHHIHIII'
RITSTJÓRI: F R ÍMANN GUNNLAUGSSON
NNIHtHIIHIIIMIIHIHIHIHMHIIIIHIIIHIIIHIIII »1
Vormót í frjálsum íþróttum
VORMÓT Akureyrar i frjáls-
um íþróttur fór fram á Ak-
ureyri 3. júní sl. Þátttaka var
lítil í mótinu, sem stafaði m. a.
af því, að flestir þeztu frjáls-
íþróttamenn bæjarins voru ekki
heima. Árangur var fremur
slakur hjá flestum, miðað við
fyrri afrek. Kjartan Guðjónsson
bar sigur úr bítum í öllum grein
um sem hann tók þátt í.
Helztu úrslit:
STATISTIK
ÞAÐ komu fyrir 483 slys hjá
2660 leikmönnum spænsku
knattspyrnunnar 1964—1965 og
þau skiptust þannig: Markvörð
ur 70, hægri bakvörður 33,
vinstri bakvörður 38, hægri
framvörður 53, miðframvörður
52, vinstri framvörður 23, hægri
útherji 32, hægri innherji 48,
miðframherji 42, vinstri inn-
herji 35 og vinstri útherji 32.
21 dómari slasaðist og 4 þjálf
arar. 304 slys urðu í deildar-
keppninni, 44 í bikarkeppninni
og 58 á æfingum en önnur urðu
í unglingaleikjum.
LlFIÐ ER ERFITT
Starf íþróttafréttaritara er
ekki alltaf dans á rósum. Knatt
spyrnuþulur útvarpsins í
Bayern varð illa úti um daginn.
Hann átti að lýsa keppni milli
F. C. Niirnberg og Kaisers-
lautern, en enginn afmarkaður
staður var fyrir hann til að lýsa
á svo hann klifraði upp á þak
áhorfendastúkunnar, settist þar
og lýsti. Þegar leiknum var lok
ið ætlaði hann að standa upp,
en þá var hann fastur. Buxurn-
ar höfðu festst í tjöru þaksins.
Hann gat þó losnað um síðir og
prýða nú buxur hans þak áhorf
endastúkunnar.
Kúluvarp. m.
1. Kjartan Guðjónsson ÍR 14,20
2. Þóroddur Jóhannss. UMSE 13,58
3. Páll Stefáhsson Þór 10,14
HMIHIHIIIIHIIIIIIHMIIIHIIIIIHIIIIHHIIItlHHIIHHIIIIIIHNHi’
17. JÚNÍ MÓTIÐ
HEFST N.K. LAUG-
ARDAG KL. 2
Langstökk. m.
1. Kjartan Guðjónsson ÍR 6,14
2. Gestur Þorsteinsson UMSS 6,12
3. Birgir Ásgeirsson ÍR 5,54
1500 mctra hlaup. mín.
1. Vilhjálmur Björnss. UMSE 4,52,5
Hástökk. m.
1. Kjartan Guðjónsson ÍR 1,80
2. Halldór Matthíasson KA 1,60
3. Jóhann Friðgeirsson UMSE 1,55
100 metra hlaup. sek.
1. Birgir Ásgeirsson ÍR 11,8
2. Gestur Þorsteinsson UMSS 11,9
3. Jóhann Friðgeirsson UMSE 12,1
Kringlukast; • - • m.
1. Kjartan Guðjónsson ÍR 37,20
2. Þóroddur Jóhannss. UMSE 35,65
•8.-Gestur Þórstéihsson UMSS 31,76
FYRRI HLUTI 17. júní-
mótsins fer fram laugardag-
inn 11. júní á íþróttavellin-
um á Akureyri og hefst
keppni kl. 2 e.h.
Keppt verður í eftirtöld-
um greinum:
Stangarstökki, kúluvarpi,
kringlukasti, 400 m. hlaupi,
langstökki og 800 m. hlaupi.
17. júní verður keppt í
eftirtöldum greinum:
100 m. hlaupi, 1000 m. boð
hlaupi, spjótkasti, hástökki
og 1500 m. hlaupi.
Þátttöku ber að tilkynna
til Páls Stefánssonar, sími
1-12-87, fyrir fimmtudags-
kvöld.
Viðtal við Heiðrúnu Steingrímsd.
(Framhald af blaðsíðu 5.)
læknishjálpar, meiri möguleik-
ar- vegna betri efnahags al-
mennt og framfara í læknavís-
indum./Loks eru mörg störf nú
0* rL * . ,
tléftarijen áöur.var vegna tækni
framfara og þar af leiðandi auð
veldara; að fá viðhlítandi starf
á vinnumarkaðinum.
Svp eitthvað í lokin, Heiðrún,
er þú vildir leggja áherzlu á?
Já, ég vildi óska samtökum
okkar þess, að þau megi vaxa
og eflast og að allir fatlaðir geri
sér ljóst til hvers þau eru stofn
uð og gerist meðlimir í þeim.
Mikið starf er óunnið. Enn þarf
að stofna félög víða á landinu
og efla þau, sem fyrir eru.
Þá langar mig til að nota tæki
færið og flytja þakkir öllum
þeim, sem hafa stutt félag okk-
ar hér í bæ með góðum gjöfum
og aðstoð á einhvern hátt.
í sambandi við nýlokið þing
okkar vil ég sérstaklega færa
hjónunum í Skíðahótelinu,
Karólínu Guðmundsdóttur og
Frímanni Gunnlaugssyni, kær-
ar þakkir fyrir góða fyrir-
greiðslu og ánægjuleg sam-
skipti, svo og bæjarstjóra og
bæjarstjórn fyrir höfðinglegt
boð, svo og öllum þeim öðrum,
sem á einhvern hátt aðstoðuðu
við undirbúning þingsins og
framkvæmd.
Þá er að þakka Heiðrúnu fyr
ir skýr og greið svör og AM bið
ur hana að flytja öllum félögum
sínum heilar vinarkveðjur frá
AM. Félagsheimili Sjálfsbjarg-
ar á Akureyri vitnar um sókn-
djarfan vilja er mörg félaga-
samtök önnur mættu taka sér
til fyrirmyndar. s. j.
Frá Noregsför V. bekkjar
Menntaskóla Akureyrar
BLAÐIÐ hitti að máli Steindór Steindórsson, yfirkennara, cg
fór.þess á leit við hann, að hann segði lesendum AM frá ferða-
lagi V. bekkjar til Noregs. Steindór tók því vel, eins og hans var
von og vísa, og hér lítið þið stutta ferðasögu úr-velheppnaðri för.
Var Steindór fararstjóri, ásamt Margréti Hjaltadóttur, kennara.
Enda þótt ferðalag þetta sé
ekki sérstaklega í frásögur fær
andi verð ég þó að verða við
ósk AM um að segja lítilshátt-
ar frá því. Það hefir verið föst
venja, ár hvert, að 5. bekkur
Menntaskólans færi í ferðalag
að loknu ársprófi. Flestar hafa
ferðirnar verið innanlands, en
fyrir tveim árum var brugðið
út af því og heimsóttur Mennta
skólinn í vinabæ Akureyrar,
Vesterás í Svíþjóð. Að þessu
sinni var ráðin ferð til Noregs,
en til þess að gera ekki átroðn-
ing að óþörfu var þessi heim-
sókn ekki höfð með opinberum
blæ, en rektor menntaskólans
í Álasundi var skrifað áður en
ferðin var ákveðin.
Lagt var af stað á Hvíta-
sunnudag og flogið beint til
Álasunds með vél frá Loftleið-
um. Þátttakendur voru 80 nem
endur, og fararstjóri auk mín
var IVfargrét Hjaltadóttir leik-
fimikennari. Tvo daga var stað
næmst í Álasundi, og fórum
við fyrri daginn inn í Geirang-
ursfjörð, en þar er einn af feg-
urstu og sérkennilegustu stöð-
um í Noregi. í ferð þeirri var
farið um svonefnda Liabygd, ,en
þar tók ungmennafélag byggð-
arinnar á móti okkur með kaffi
drykkju, og Niels Ringseth óð-
alsbóndi ávarpaði hópinn og
skýrði frá samskiptum íslend-
inga og Norðmanna í skógrækt
armálum og benti á þýðingu
skógræktarinnar bæði þar og
hér. En Ringseth er einn af
helztu framámönnum í skóg-
ræktarmálum Norðmanna, hef-
UM 70 ÞATTTAKENDUR I SJOSTANGVEIÐI-
MÓTINU Á AKUREYRI UM HELGINA
U'INS og skýrt hefur verið frá
fer fram alþjóðlegt sjóstang
veiðimót frá Akureyri 11. og 12.
þ. mán. Nú er orðið ljóst, að
þátttaka í mótinu verður
óvenju mikil, eða um 70 manns.
Eru þeir frá Keflavík, Kefla-
víkurflugvelli, Reykjavík og
Akureyri. 2 kvennasveitir og 14
karlasveitir verða myndaðar, en
4 eru í hverri sveit. Róið verð-
ur á 16 dekkbátum og lagt upp
frá Dalvík.
n\V-
N
S.A. flylur í ný húsakynni
i
GÆR bauð stjórn og fram-
kvæmdastjóri Sjúkrasam-
lags Akureyrar blaðamönnum
og nokkrum öðrum gestum til
kaffidrykkju. Tilefni þess var
að S. A. hefir nú flutt starfsemi
sína í ný og vistleg húsakynni
að Geislagötu 5 (Hús Búnaðar-
bankans).
Framkvæmdastjóri S. A.
Stefán Ág. Kristjánsson bauð
gesti velkomna og rakti í mjög
snjallri ræðu ágrip af sögu
S. A., en það hefir nú starfað í
full 30 ár. Fyrstu stjórn S. A.
skipuðu: Sigtryggur Þorsteins-
son, Stefán Ág. Kristjánsson,
Þorsteinn Þorsteinsson, Valdi-
mar Steffensen og Jón Sveins-
son.
Formaður stjórnar S. A. er
nú Jóhann Þorkelsson, en aðrir
stjórnarmenn eru: Jóhann Frí-
mann, Árni Jónsson, Arngrím-
ur Bjarnason og Sigurður Hall-
dórsson, en eins og áður er
sagt, er Stefán Ág. Kristjáns-
son framkvæmdastjóri og hefir
verið það frá upphafi.
=00^
ALÞYÐUMAÐURINN MUN
EKKI KOMA ÚT I NÆSTU
VIKU.
ir hann lagt margt gott til mála
um íslenzka skógrækt, og kom-
ið hingað til lands tvisvar sinn-
um. Höfðum við hitzt á aðal-
fundi Skógræktarfélags íslands
fyrir 11 árum og varð það
óvæntur fagnaðarfundur.
Einn dag skóðuðum við okk-
ur um í Álasundi, sem er vina-
legur bær og með miklum
myndarbrag. Hópur mennta-
skólanema þar hélt gestunum
dansleik um kvöldið, en gist-
ingu hlutum við í Ungdoms-
herbergi bæjarins.
Frá Álasundi var farið í
tveimur langferðabílum til Osló
ar, en gist í Lillehammer, sem
er Ijómandi fallegur bær í
fögru og frjósömu umhverfi
neðst í Guðbrandsdal við vatn-
ið Mjörs. Þótti öllum þar gott
að koma, og Ungdomsherbergið
þar með ágætum. Loks vorum
við tvo daga í Osló þar sem
borgin var skoðuð, gerð inn-
kaup og skemmt sér eftir föng-
um. Það sem helzt skyggði á
þar, var að gististaðurinn í
Ungdomsherbergi í útjaðri
borgarinnar, var að ýmsu leyti
óhentugur, og einkum það að
húsinu var lokað mikinn hluta
dags eða frá kl. 10—5 og gátum
við ekki komið þann tíma.
Annars gekk ferðin með ágæt
um. Veður voru þó ekki, sem
við hefðum kosið. Hvarvetna
sem við komum nutum við vin-
semdar og góðvilja, og þess er
ég viss, að unga fólkið var að
mörgu fróðára og hafði hlotið
víðari sjóndeildarhring að ferð-
inni lokinni.
Ýmsum þykir lítt til slíkra
ferða koma og að þær svari
ekki kostnaði. Það er ekki mitt
að dæma um sííkt, en benda vil
ég á það í því sambandi, að á
síðasta þingi Sameinuðu þjóð-
anna, var gerð samþykkt um
stuðning og fyrirgreiðslu slíkra
æskulýðsferða landa milli, og
var einróma álit allra, sem um
það ræddu, og þeir voru marg-
ir, að þær væru mikilvægur
þáttur í að efla friðsamleg sam-
skipti og vináttu þjóða milli.
Ferðaskrifstofan Saga skipu-
lagði ferðina, og í Noi’cgi ann-
aðist ferðaskrifstofan Folke-
Ferie alla fyrirgreiðslu. Kunn-
um við þeim hinar beztu þakk-
ir fyrir störf sín, sem voru hið
bezta að hendi leyst og öll sam
skipti við ferðaskrifstofurnar
hin ánægjulegustu. ~
St. Std. L