Alþýðumaðurinn - 11.08.1966, Side 1
Verzlið í SÉRVERZLUN.
TÓBAKSBÚÐIN
Brckkugötu 5 . Sínii 12820
Skipuleggjum ferð- I Fyrir hópa og
ir eudurgjaldslaust | eiustaklinga
LÖND O G LEIÐIR. Súni 12940
FBAMKÖLLUN — KOPIERING
PEDROM YNDIR Akureyri
HAFNARSTRÆTI 85 . SÍMI (96)11520
„Haförninn", hið nýja síldar-
flufningaskip SR, komið á miðin
JM
ALÞÝÐUMAÐURINN
•nW-
XXXVI. árg. — Akureyri, fimmtudaginn 11. ágúst 1966 — 27. t
Siglufirði 8. ágúst. — J.M.
HIÐ nýja síldarflutningaskip
Síldarverksmiðja ríkisins er
nýkomið á sildarmiðin og var
búið að fá 800 tonn er síðast
fréttist, en alls getur það borið
3100 tonn.
Öl\ un eykst alltaf
SAMKVÆMT upplýsingum
frá lögreglunni eykst ölvun
skuggalega mikið á Akureyri
og sem dæmi um það má geta
þess að 78 fleiri hafa gist fanga
geymslu lögreglunnar en á
sama tíma i fyrra. Ölvun var
gífurlega mikil á þriðjudags-
kvöld og fram til kl. 3 um nótt-
ina, og kom því áberandi í Ijós
hinn tilfinnanlegi skortur á hús
næði, því að hleypa þurfti út
mönnum fyrr en æskilegt var
sökum þess að hýsa þurfti aðra
er teknir voru í enn verra
ástandi, einnig þurfti að gæta
margra í varðstofunni en aka
öðrum heim í miður æskilegu
ástandi. Kalla ekki einmitt þess
ar nöturlegu staðreyndir á að
nýja lögreglustöðin komist í
notkun hið fyrsta?
Reytingur hefur komið hing-
að af söltunarsíld og hefur ver-
ið mest saltað hjá síldarsöltun-
arstöðinni ísafold h.f., yfir tvö
þúsund tunnur.
Siglfirzki togarinn Háfliði
kom í dag inn með um 120 tonn
eftir rúmlega viku veiðiför og
verður aflinn unninn í hrað-
frystihúsi SR.
Sæmilega miðar með jarð-
göngin um fjallið Stráka og
munu vera eftir um 70 metrar
og er nú unnið að jarðgöngun-
um beggja megin.
Eins og lesendum AM mun
vera kunnugt, tókst samkomu-
lag milli Alþýðuflokksins og
borgaraflokkanna tveggja um
málefnasamning 'sem starfað
skyldi eftir þetta kjörtímabil og
náðist samkomulag milli þess-
ara þriggja flokka um ráðningu
bæjarstjóra út þetta kjörtíma-
bil og var kjörinn Stefán Frið-
björnsson, en þess má geta, að
forseti og fyrsti varaforseti
bæjarstjórnarinnar voru kjörn-
ir af fulltrúum borgaraflokk-
anna einna, þ. e. Framsóknar og
Sj álfstæðisflokksins. Bæj arritari
var ráðinn Sigurður Gunnlaugs-
son.
BRATT SIGLIR SIGURBJÖRG
Blaðið hefur fregnað að stutt muni í það að Sigurbjörg,
jtærsta stálskipið er smíðað hefir verið til þessa á ís-
landi, kveðji skapara sína í Slippstöðinni og sigli til Olafsfjarðar, beimabæjar síns. AM biður henni
fararheilla og biður henni og væntanlegri skipshöfn góðs aflafengs og annarrar farsældar í framtíð-
inni. Ljósm.: N. H.
• •
nmgar
AM vítir landbúnaðarpólitík Framsóknar og
Sjálfstæðisflokksins á undanförnum árum. Þeir
hafa keppzt um fylgi bænda og hvatt af þeim
sökum til offramleiðslu á mjólkurvörum
i ÐALFUNDUR Stéttarsambands bænda var háldinn í Reykjavjk
* um sl. helgi í Bændahöllinni í Reykjavík. Þar urðu allharðar
deilur um innvigtunargjaldið sem að vísu á að afnema þann 1.
september. Stefáni Valgeirssyni í Auðbrekku í Hörgárdal var mein
að um óskorað málfrelsi á fundinum af stórbændum, en Stefán var
fulltrúi héraðsnefnda er bændur hafa kjörið til að minna á það að
þeir hafi verið óréttlæti beittir af hálfu stjórnar Stéttarsambands
bænda og Framleiðsluráðs landbúnaðarins.- Fundinum var frestað
til hausts eftir allheitar umræður.
AM vill minna -á það í tilefni af
fundi Stéttarsambands bænda,
að eigi má líta á bændur lands-
ins sem eina stétt, því að svo
mikill munur er á efnahag
bænda — og því vill AM full-
yrða, að málflutningur Þor-
steins Sigurðssonar í Vatns-
leysu, formanns Búnaðarfélags
Islands, á fundinum og annarra
stórbænda, er víttur af smá-
bændum, er trúað hafa áróðri
borgaraflokkanna beggja, um
að ef þeir gætu lagt harðai’a að
sér til að stækka túnið og auka
búpening, og þá helzt fjölgun
mjólkurkúa, tryggðu þeir sér
örugga afkomu, hljóta að skilja
enn betur þau sannindi, að hing
að til hafa Sjálfstæðisflokkur
inn og Framsóknarflokkurinn
látið áróðursmenn sína, svo sem
Ingólf landbúnaðarráðherra og
Þorstein í Vatnsleysu fara með
blekkingar í þágu þess loddara-
leiks, er áðurnefndir flokkar
hafa sviðsett í kapphlaupi sínu
um fylgi bænda. Sömu rnenn
neituðu fulltrúa þeirra bænda
(Framhald á blaðsíðu 2.)
Fjögur erlend skenimtiferðaskip hafa heimsótt Akureyri í sumar, þar á meðal Þýzka skipið Bremen.
Ljósm.: N. H.
NORÐURLANDSMOT
NORÐURLANDSMÓT í frjáls
um íþróttum fer fram að
Laugalandi í Eyjafirði laugar-
daginn 20. ágúst og sunnudag-
inn 21. ágúst og hcfst fyrri dag
inn kl. 3 e. h. Þátttöku í mótinu
ber að tilkynna fyrir 18. þ. m.
til Þóroddar Jóhannssonar, sími
12522. Ungmennasamband Eyja
fjarðar sér að þessu sinni um
mótið.
LEIÐARINN: Norðlenzkur siglingafloti
ECILL ÞÓRLÁKSSON, minuing, sjá bls. 5