Alþýðumaðurinn - 29.09.1966, Síða 4
Ritstióri; SIGURÍÓN JÓHANNSSON (áb.).
Útgefandi: ALÞÝÐUFLOKKSFÉLAG AKUR-
EYRAR. — Afgreiösla og auglýsingar:
Strandgötu 9, II. hæð, sími (96)11399. —
Prentverk Odds Björnssonar h.f., Akureyri
■ii iii iiiiiiii«i»iniiiii»iiuiiiiiiiiiniiiiMiiii»»«»iiMiiii»ii»i*MiiiiM»iiM»M»i»«iiiM«»i«»»iiM»»M»»»iii»»MMiiiMMli»ii»iiir*|tii
I VEGIR OG VEGLEYSUR |
NORÐURLANDS- og Austurlandsvegur, en svo [
nefnist þjóðvegurinn sunnan úr Borgarfirði norð- i
ur og austur um land, er orðinn réttnefnd lífæð þess- |
ara landshluta. Verulegur hluti allra flutninga frá i
Reykjavík og til norðlenzkra og austfirzkra byggða og §
staða, sem og flutningar frá, fara um þennan veg. |
Hann er hins vegar byggður að meginhluta sem sum- |
arvegur aðeins og hvergi fyrir þá umferð, sem nú er á i
hann lagður, og gerist því allt í senn, að viðhald vegar- |
ins er orðið mjög mikið og dýrt, en þó hvergi nærri i
viðhlítandi, óhemjufé er varið til snjómoksturs á leið- =
inni á vetrum og er þó ófullnægjandi og loks veit eng- i
inn, hvílíkir fjármunir liggja t viðgerðarkostnaði bif- i
reiða, sem verða að aka þessa leið meira og rninna ill- i
færa. Það eitt er vitað, að hann er gífurlegur.
TjAÐ liggur þannig ljóst fyrir, að fátt er umræddum 1
* byggðarlögum, Norðurlandi og Austurlandi, nauð- i
synlegra en þessir vegir, Norðurlandsvegur og Austur- i
landsvegur, verði tafarlaust byggðir upp sem þunga- =
flutninga- og vetrarflutningavegir, og þótt engum i
dyljist, að slíkt er rnikið átak, má öllum vera ljóst, að =
þetta verður að gerast, en hörmulegt að sjá fé sóað í i
gagnslítið viðhald ilinothæfs vegar-og stórum fjárfúlg- |
um eytt í snjómokstur á braut, sem víðast er sokkin í i
mýrar eða nánast ruðningar ,um holtabörð og móa.
A NNARS er þctta ekki eini vegurinn um Norður- i
** land, sem þarf gagngérðrár uppbyggingar við. i
Sannleikurinn er sá, að þessi landshluti er orðinn á 1
ói. eftir flestum öðrum með vegi, býr í langflestum til- |
jl fellum enn að vegum lögðum frá 1922—1935, hálf- |
jj gerðum kerruvegum, sem reynt hefir verið með p
jj óhemjuviðhaldi að láta mæta sívaxandi bifreiðaum- i
jj ferð. .......... |
jj ¥*AD gefur þannig auga leið, að eitt brýnasta fram- |
:j ** faramál Norðurlands er endurbýgging vegakerfis- 1
jl ins, og þingmenn þessa lanclshluta, hvar í flokki sem [
ii þeir standa, verða að vera drjúgum aðgangsharðari við i
,jj yfirstjórn þessara mála en þeir hafa reynzt fram að f
,|j þessu, svo að við búurn innan aUjLof langs tíma við |
ij vegi en ekki vegleysur.
Vildu þeir samvinnu við Alþýðubandalagið?
¥ VANDRÆÐANÖLDURGREIN í blaðinu íslend-
-*■ ingi 22. sept. sl„ heldur greinarhöfundur því fram
í svari til Alþýðumannsins, að Alþýðuflokksmenn hér
á Akureyri hafi ekki reynt til hins ýtrasta að ná sam-
stöðu um ábyrgan meirihluta í bæjarstjórn eftir kosn-
ingar á sl. vori. Enda þótt Framsókn hafi neitað sam-
starfi við Sjálfstæðið með Alþýðuflokkinn að jafn-
vægisöxli, hafi verið fleiri leiðir til. Það er rétt hjá
íslendingi. Hægt var að mynda meirihluta með Fram-
sókn einni fyrir Alþýðuflokkinn og með Framsókn
og Alþýðubandalaginu einnig, en hvort tveggja töldu
Alþýðuflokksmenn óskynsamlegt, meðan núverandi
samstarf gildir milli Alþýðuflokksins og Sjálfstæðis-
flokksins í ríkisstjórn. Hins vegar hefir Alþýðuflokk-
urinn tekið eftir því, að Sjálfstæðið á Akureyri hefir í
engu metið slíka tillitssemi. Loks var og til sú leið að
mynda meirihluta með Sjálfstæði og Alþýðubanda-
lagi, og verður helzt af orðurn íslendings ráðið, að
honum þyki sá möguléiki ekki hafa verið kannaður af
Alþýðuflokknum. Við spyrjum því, hvort sá meirihluti
hafi verið Sjálfstæðinu helzt að skapi, og hví hann hafi
ekkert ymprað á þeim' möguleika fyrr en nú? Svar ósk-
ast sem fyrst.
>'»■1111111111111111111111
iiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiimiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii.
Kristján frá Djúpalæk:
SJÖ SINNUM SJÖ TILRRIGÐI
IVOR lcom á markaðinn ljóða
bók eftir Kristján frá Djúpa
læk. Heitir hún Sjö sinnum sjö
tilbrigði við hugsanir, er 94 bls.
að stærð, gefin út af Bókaút-
gáfunni Sindri h.f. Akureyri og
prentuð í Prentsmiðju Björns
Jónssonar h.f. Kápumynd er af
brimsorfinni fjörumöl. Bókin er
helguð minningu höf. Þetta er
8. ljóðabók Kristjáns, en hann
varð fimmtugur á liðnu sumri.
Af aldri og afköstum mætti því
ráða, að hann hafi náð fullum
höfundarþroska. Þótt mörg séu
þess dæmi, að skáld hafi' ort
sig stærri eftir fimmtugsaldur-
inn en fyr'ir, mun hitt algeng-
ara. Þegar þannig aldur Kristj-
áns og afköst eru höfð í huga
og hve hann er löngu orðinn
mótað og þekkt ljóðskáld, má
það furðulegt heita, hve hljótt
hefir verið um síðustu bók
hans. Raunar staðfestir þessi
þögn það, sem vitað er, að við
'eigum nú fáa sem enga bók-
menntamenn, sem telja sér
skylt að rita fræðandi og hvetj-
andi um starfandi Ijóðskáld,
þeim sjálfum til örvunar og leið
beiningar, en lesendum til auk-
ins skilnings og vakningar. Því
miður virðist ljóðlist í minnk-
andi metum um sinn með þjóð-
inni, og vafalaust orkar sú til-
finning slævandi á sköpunar-
þrótt ýmissa Ijóðskálda, sem og
það, að nú þarf vaxandi hörku
til að öðlast viðurkenningu og
vera ekki höfuðborgarbúi.
Drottinn þekkir sína.
En því er þetta gert hér að
umtalsefni, að Kristján frá
Djúpalæk er næmgeðja og við-
kvæmt skáld, sem mig grunar,
að þoli mörgum verr að hljóta
ekki þá viðurkenningu, sem
hann skynjar af grunni sálar
sinnar, að honum vissulega ber.
Af þessu álít ég koma, að skáld
ið lætur stundum af uppgerðar
kaldrana vaða á súðum, vandar
sig ekki nóg, agar sig ekki til
hins ítrasta, þqtt hæfni hans og
snilli sé óumdeilanleg og sess
hans í bókmenntasögu okkar
tryggður.
Hér verður að sjálfsögðu
kveðskap Kristjáns frá Djúpa-
læk engin skil gerð í stuttri
Kristján frá Djúpalæk.
blaðagrein. Á Ijóðagerð hans
eru ýmsar hliðar, sem forvitni-
legt væri að velta vandlega fyr
ir sér, en athyglisverðustu hlið
arnar eru að mínu áliti annars
vegar næm og heit skynjun
hans á umhverfi sínu, sem hon
um tekst oft að túlka á einfald
an og fagran hátt, hins vegar
glettin og umbui’ðarlynd sýn
hans á ýmsar furður mannlífs-
ins. Af þeim kveiki eru hnyttin
smákvæði hans mörg snúin,
örvar, sem þjóta af streng út í
bláinn, en syngja í marki óvör-
um.
I Sjö sinnum sjö tilbrigðum
Kristjáns frá Djúpalæk eru
mörg athyglisverð kvæði, sem
bera gáfum hans og hagleik
vitni. Þau bera engin sérstakt
heiti, en eru flokkuð niður í sjö
kafla, sem heita Landið, Myrk-
ur, Hverfleiki, Guðinn, Minni,
Glettur og Biblíusögur. Hver
flokkur er síðan númeraður í
sjö kvæði eða ljóð, þ. e. sjö sinn
um sjö tilbrigði við hugsanir.
Persónulega finnst mér nokkur
tilgerð og sérvizka í þessari upp
setningu bókarinnar. En það
getur líka verið bragðbætir að
sérvizku og tilgerð á stundum,
svo að eigi verður höfundi fund
ið þetta til foráttu hér.
í kvæðaflokknum Landið vil
ég vekja athygli lesenda á m’.
II., III., IV. og V., sem allt eru
velgerð kvæði, í Myrkur bendi
ég á nr. II., III., VI. og VII, í
Hverfleiki nr. III. og V., í Guð-
inn nr. I. og VII, og margt er
spaklega sagt í Minnum, en
Kristjáni tekst stundum prýðis
vel að mæla eftir menn í Ijóð-
um, sem nú er annars lítt iðkað
af skáldum og fáum vel fallið.
í Glettum eru hnyttin kvæði
eins og nr. I., II. og III., og af
sama toga eru kvæðin nr. VI. í
flokknum Biblíusögur, en það
hljóðar svo:
Þetta er Pétur, þýðir bjarg,
þjónninn tryggur er ég.
Öruggt vitni ár og síð
orðum þínum ber ég.
Afneita þér aldrei mun. ' i
Aldrei skal, það sver ég. i
Jesús gegnir: Gott er það.
Gæt þín samt. Nú fer ég.
Pétur blundar. Hróp ag hark,
heyrir þó að neðan:
— Þekkirðu Jesú, þrumar rödd,
þann, sem nú gekk héðan? —
— Sagðirðu Jesú, — Jesú?
Nehei.
Ég hef aldrei séð hann. —
Eins og þegar hefir verið tek-
ið fram, er þessi umgetning um
Tilbrigði Kristjáns frá Djúpa-
læk enginn ritdómur, heldur
fátæklegt þakklæti fyrir Ijóð,
sem eru vissulega betur ort en.
ekki, og hugsað um leið sera
örvun til höfundar, sem má og
skal vita það, hvað sem fálæti
alþjóðar lítur, að hann er einn
af útvöldum varðveitendum
Olympíueldsins íslenzka, ljóð-
listarinnar. Það má vera stolt
hans, en er líka allt í senn unað
ur hans, kvöl — og ábyrgð.
Br. S.
S .-...^
• AF NÆSTU GRÖSUM*
MESSAÐ * í Akureyrarkirkju
n. k. sunnudag kl. 2 síðdegis.
Sálmar nr. 571 — 581 — 366
— 304 — 585. P. S.
MÖÐRUVALLAKLAUSTURS
PRESTAKALL. Messað verð
ur í Bakkakirkju n. k. sunnu
dag 2. október kl. 1.30 e. h.
Messað verður í Bægisár-
kirkju sama dag kl. 4 e. h.
Birgir Snæbjörnsson.
SÖLUBÖRN óskast til að selja
merki SÍBS og blaðið Reykja
lund á sunnudaginn kemur.
Börnin mæti í Hafnarstræti
96 (Vöruhappdrætti SÍBS)
kl. 10.15 árdegis. Góð sölu-
laun. Berklavörn.
HLÍFARKONUR. Fundur verð
ur haldinn í Pálmholti
fimmtudaginn 29. sept. kl.
8.30 s. d. Skýr-sla dagheimilis
stjórnar o. fl. Hafið með ykk-
kaffi. Mætið stundvíslega. —
Stjórnin.
HARPA heldur bazar sunnu-
daginn 2. okt. kl. 4 í Laxa-
götu 5.
KARLAKÓR AKUREYRAR. —
Munið æfinguna n.k. fimmtu
dag. Áríðandi. — Stjórnin.
FÍLADELFÍA, Lundargötu 12.
Almenn samkoma á sunnu-
dag kl. 8,30. — Krakkar!
Sunnudagaskólinn byrjar n.k.
sunnudag (2. október) kl.
1,30 e. h. Öll börn velkomin.
Fíladelfía.
AKURE YRIN GAR — EYFIRÐ
INGAR! — Fjáröflunardagui'
SÍBS er á sunnudaginn kem-
ur. Styrkið gott málefni með
því að kaupa merki og blað
dagsins. Með fyrirfram þakk-
læti. Berklavörn.
BRÚÐHJÓN. Ungfrú Ursula
Elísabet Sonnenfeld Munka-
þverárstræti 11 og Kristján
Grétar Sigvaldason stúdent
frá Klængshóli í Skíðadal.
ST. GEORGS-GILDIÐ.
Fundur í Fálkafelli
mánudaginn 3. október
kl. 8.30 e. h. Ferð frá Lönd og J
leiðum kl. 8 e. h. Stjópoin,