Alþýðumaðurinn - 13.10.1966, Blaðsíða 5
Viltu að kosningaaldurinn
verði færður niður frá því
sem nn er?
Spurningunni svara 7 nemendur í Menntaskóla Akur-
eyrar, þau Alda B. Möller, Sigluíirói, Jónas Ragnars-
son, Siglufirði, Jón Georgsson, Dalvík, Bragi Þór
Síefánsson, Húsavík, Guðmundur OSafsson, Reykja-
vík, Skarphéðinn Ragnarsson, Blönduósi, og
Sigmundur Stefénsson, Siglufirði.
A Ð FRUMKVÆÐI jafnaðai'manna er nú siarfandi milliþinga-
nefnd til athugunar á því livort lieppilegt sé að lækka kosn-
ingaaldur úr 21 ári allt niður í 18 ár. AM liefir óhikað lýst stuðn-
ingi við það að æskan fái rétt til að neyta atkvæðisréttar við val
fulitrúa á lögþing þjóðarinnar og skorar AM liér með á þingmenn
Alþýðuflokksins um að þetta mál nái fram að ganga á þessu þingi.
AM leitaði til 7 nemenda í Heimavist M. A. um álit þeirra og 6
þeirra eru ákveðið með Iækkun kosningaaldurs, en aðeins 1 er því
háift í hvoru mótfallinn og má vera að vist hans í Heimdalli í
Reykjavík ráði þar.nokkru um, en hann segir að hann liafi gerzt
þar félagi 13—14 ára. En ekki Iengri formála. Hér heyrið þið úrslit
í skoðanakönnun AM hjá nemendum í M. A.
Alda B. Mölier frá Siglufirði
. hefir fyrst orðið. Hún er í 5.
. bekk og er 18 ára. Hún segir:
i . Lækkun kosningaaldurs á ís-
landi tel ég hníga sterk rök að,
og fátt eitt mæli því á móti.
Flestir unglingar fylgjast vel
með stjórnmálatíðindum og
. hafa myndað sér fastar skoðan
ir um stjórnmál, áður en nú-
verandi kosningaaldiú er náð.
Aukin almenn menntun hefur
glætt áhuga unglinga á íslenzk
um þjóðmálum. Þó væri kynn-
ing á starfsemi og stefnu stjórn
málaflokkanna mjög æskileg t.
d. fyrir efstu bekki gagnfræða-
skóla. Hér í M. A. hafa slíkar
kynningar mælzt vel fyrír og
mikill áhugi verið.fyrir þeim.
Unglingar taka sífellt meiri
virkan þátt í atvinnulífinu,
skólanemendur nýta allt sitt
sumarleyfi, aðrir vinna árið um
kring. Þeir gjalda velflestir
-opinber gjöld til ríkis og bæj-
ar, og ábyrgðin, sem á þeim
hvílir. við rekstur þjóðarbúsins
er þeim ljós.
Að sjálfsögðu er álitamál
hversu mikíl lækkun kosninga
aldurs er æskileg.
Tillögur um átján ára kosn-
ingaaldur hafa komið fram, og
trúi ég því fastlega, að það
mundi reynast vel landi og þjóð
og unga fólkið láta í ljós álit
sitt á þjóðmálum hverju sinni
að vel íhugúðu máli.
Næst svarar Jónas Ragnars-
son frá Siglufirði, 18 ára í 5.
bekk. Svar hans er þetta:
Ég er samþykkur því, að lág-
markskosningaaldur verði lækk
aður, en ég.tel nægilegt að setja
markið við 19 ár til að byrja
með. Ef það reyndist vel mætti
síðar lækka aldurstakmarkið
niður x 18 ár.
Auðvitáð verða þessu sam-
fara í byrjun ýmsir erfiðleikar,
svo sem aukinn stjórnmála-
áróður, sem jafnvel mundi fær-
ast inn í mennta- og gagnfræða
skóLa, sem ég tel miður æski-
lega þróun, en þagar frá líður
muxi þetta breytast til batnaðar.
Við það að fá aukin völd og
aukna ábyrgð, sem er kosninga
rétti satnfara, tel ég að íslenzk
æska muni þroskast og verða
stilltari — og er það ekki ein-
mitt það sem vantar helzt nú
til dags.
Þá lieyrum við svar Jóiis
Georgssonar frá Dalvík, en
lxann er 17 ára og er í 4. bekk:
Unga fólkið í dag skortir
ábyrgðartilfinningu, er gjarnan
viðkvæði eldra fólks og er það
rétt. að mörgu leyti. Álit mitt
er, að lækkun lágmarksaldurs
til kosninga niður í t. d. 18 ár
mundi skapa aukna ábyrgðar-
tilfinningu ungs fólks og um
leið færa nýtt líf í stjórnmálin,
sem ekki veitir af. Um leið væri
réttlátast að skattskyldualdur
liækkaði þannig að menn yrðu
skattskyldir um leið og þeir
fengju kosningarétt.
Hér keniur Guðmundur Ólafs
son úr Reykjavík með sínar
skoðanir. Hann er 19 ára og í
5. bekk:
Það hefur verið baráttumál
ákveðins flokks hér á íslandi að
lækka kosningaaldur niður í 18
ái’. Eflaust hefði sú lækkun í
för með sér gott og illt. T. d.
gæti verið að ungmenni gerðu
sér fyiT grein fyrir landsins
gagni og nauðsynjum en ella.
Hitt er þó öllu líklegi-a, að skoð
anaframleiðslu stjórnmálaflokk
anna yrði beint sérstaklega og
sér í lagi að hinum óreyndu og
oft ósjálfstæðu unglingum. Nóg
er nú samt og sem dæmi get ég
nefnt, að 13—14 ára var ég orð-
inn félagi í Heimdalli, þótt lög
þess félags banni svo unga með
limi. Það er hald mitt, að ungl-
ingar þroskist feikilega á þess-
þrem árum, frá 18 til 21 ái-s, og
ætti því að láta þá njóta þess
þi’oska þegar þeir fara að kjósa.
Sumir segja, að gamalt fólk sé
oft látið kjósa á grafarbakkan-
um án þess að vita í þennan
heim né annan og að ungmenni
ættu alveg eins að geta kosið.
En sennilega er lítil hætta á, að
gamla fólkinu verði spillt til
vansa af heimdöllum og æsku-
lýðsfylkingum. Ennfremur held
ég, að ekkert liggi á að gera
unglingana fullorðna, a. m. k.
vix’ðist mér íslenzkir unglingar
heldur þi’oskaðri en jafnaldrar
okkar meðal grannþjóða. Ég er
því andvígur lækkun kosninga-
aldurs.
Næst svarar Bragi Þ. Stefáns
son Húsavík, 17 ára í 4. bekk:
Ég vil að kosningaaldurinn sé
lækkaður niður í 19 ár. Ég ber
þá skoðun í brjósti að ungir
menn nú á dögum séu þrosk-
aðri og menntaðri nú en þegar
kosningaaldurinn var settur í 21
ár á sínum tíma, * og er þetta
vegna bættra lífsskilyi'ða. Við
byi-jum að borga skatt 16 ára
og finnst mér þess vegna að við
höfum nokkui-n i-étt til þess að
ráða ríkismálum, því að skerfur
okkar er að einhverju leyti
framkvæmdavald landsins. Ég
hugsa að ungir menn séu dug-
legri og áhugasamari en eldri
menn og geti betur sett sig inn
í vilja þeirra sem erfa skulu
landið. Vera má að skoðun míxi
sé vanþroskuð, og þeir sem
álíta það, get ég bent á að
félagsfræðikennsla mætti vera
meiri í skólum.
Þannig lxljóðar svar Skarp-
liéðins Ragnarssonar frá
Biönduósi. Hann er 29 ára og er
í 5. bekk:
Álit mitt varðandi lækkun
kosningaaldurs ei; það, að ég
tel hana tvímælalaust eiga rétt
á sér. Þegar, 16 ára að aldri, er
unglingunum gert að greiða sín
opinbex’u gjöld, og þar með telst
hann vei’a kominn í fullorðinna
tölu að vissu leyti. Finnst-mér
þá sanngjarnt að honurn sé látið
það traust í té og sú ábyrgð,
sem kosningaréttinum fylgir, ag
veitt þessi réttindi.
Hvar markið skuli setja, }*á
er ég því fylgjandi að það verði
miðað við 18 eða 19 ára aldur.
Að iokum heyrið þið skoðanir
Sigmundar Stefánssonar frá
Sigiufirði. Hann er 17 ára og er.
í 4. bekk:
Ég er þeirrar skoðunar, að
lækkun kosningaaldurs niSur
að 20 ára aldri sé hæfileg stytt-
ing á kosningaaldrinum. Þó
ættu unglingar að hefja um-
liugsun um stjórnmál fyrr, en
tæplega ætti að leyfa lækkun
kosningaaldurs niður fyrir tví-
tugsalduiúnn, því að skoðanir
yngri fólks eru oft öfgafullar,
en breytast með aldrinum.
AM þakkar æskufólkinu greið
svör og óskar því til heilla í
(Framhald á blaðsíðu 7)