Alþýðumaðurinn - 17.11.1966, Page 1
FRAMKÖLLUN — KOPIERING
PEDROM YNDIR Akureyri
HAFNARSTRÆTI 85 . SÍMI (96)11520
Verzlið í sérverzlun.
Það tryggir gæðin.
TÓBAKSBÚÐIN
lirckkugutu 5 . Sími 12820
I IKiriD IAFKI AflADK/PKlKI Á hlMPI Myndin er frá þingi Sambands ungra jafnaðarmanna er nýverið var haldið í Reykjavík. Það var vel heppnað og sýndi sóknar-
UINulK JArllAuAlxl ILmt A rlllUI. julg ajskunnar til eflingar jafnaðarstefnunnar á íslandi. Ungir jafnaðarmann gagnrýndu óhikað það sem niiður hefur farið í
núverandi stjórnarsanistarfi. Varað var við þeirri hættu m. a. er stafar af hinni niiklu fjárfestingu þjóðarauðsins á Suðvesturlandi og skoraði þingið á ríkisstjómina að
heita sér fyrir jafnari stórvirkjunarfTanvkvæindum og annarri fjárfestingu er stuðlað gæti að auknum vexti atvinnuveganna í öðrum landshlutum.
XXXVI. árg. — Akureyri, fimmtudaginn 17. nóv. 1966 — 40. tbl.
Tveir dilkar lieimtir frá helju
Amarfelli 14. nóv.
SAGT VAR frá því
ini
E. B.
útvarp-
dag að Eyfirðingar
hefðu bjargað 2 dilkum inn á
öræfum. AM hafði samband við
leiðangursstjórann, Eirík
Björnsson á Arnarfelli og innti
hann eftir ferðalaginu, en hann
er fjallskilastjóri í Saurbæjar-
hreppi. Eiríki sagðist svo frá.
Við vissum um þessi lömb
fyrir réttir í haust og hafði ég
séð þau sjálfur á ferðalagi inn á
öræfum og sagði ég Skagfirð-
ingum frá þeim, en skyggni var
Rannsóknarstofa Norðurlands veitir góða aðstoð
Villingadal 14. nóv. J. H.
A ll/I HAFÐI samband við Jón
-tAJ-Ti Hjálmarsson bónda í
Villingadal og innti hann frétta.
Jón sagði að enn væri mjög
snjólétt í innfirði og vart meiri
snjór en á Akureyri. Hýst er
það fé er heim kemur, en beit
er góð enn sem komið er. 111-
viðragarðinn er veðurspáin hef
ur verið að boða nú að undan-
förnu hefir ekki náð hingað enn
sem betur fer. Heimtur af fjalli
voru allgóðar og einnig hey-
fengur bænda í sumar. Jón
lagði áherzlu á, að Rannsóknar
stofa Norðurlands hefði þegar
sannað að hún væri ómetanleg
fyrir norðlenzkan landbúnað.
Til rökstuðnings því gat Jón
þess að Jóhannes Sigvaldason
forstöðumaður Rannsóknar-
stofu Norðurlands hefði ráðlagt
sér að bera mun meira af
brennisteinssúru kalí á túnið
og ráðleggingar Jóhannesar
hefðu þegar aukið grasvöxt í
sumar og slík væri reynsla
fleiri bænda í Eyjafirði.
AM hefir þegar tryggt sér
viðtal við Jóhannes Sigvalda-
son þá er Ársrit Ræktunarfé-
lags Norðurlands er komið út.
Því vill AM þakka Jóni Hjálm-
arssyni fyrir upplýsingarnar og
einnig Jóhannesi Sigvaldasyni
fyrir jákvæð störf sín í þágu
landbúnaðar á Norðurlandi.
ÞING ASÍ HEFST A LAUGARDAG
ÞING Alþýðusambands ís-
lands verður sett n. k. laug-
ardag í Háskólabíói kl. 2. En að
öðru leyti verður þingið til
húsa í samkomuhúsinu Lídó.
Þingið mun sennilega standa
fram á fimmtudag í næstu viku.
Um 370 fulltrúar munu sækja
þingið. Alþýðusamband íslands
varð 50 ára á sl. vetri og mun
þess verða minnzt á fundinum
í Háskólábíói. Þar verður m. a.
vígður nýr hátíðarfáni er stofn
félög sambandsins hafa gefið.
11 NYIR FELAGAR
FUJ
HÉLT fund síðastliðinn
mánudag. 11 nýh- fé-
lagar bættust í hópinn, en á
aðalfundi félagsins er nýverið
var haldinn bættust 12 nýir liðs
kraftar í félagið. Á fundinum
á mánudaginn sögðu þeir Hörð
ur Hafsteinsson og Páll Snorra
son fréttir af þingi SUJ. Félagið
er ákveðið í því að halda uppi
öflugri starfsemi í vetur og heit
ir AM á æskumenn er styðja
jafnaðarstefnuna að gerast virk
ir félagar í FUJ.
ekki gott í göngunum og fund-
ust þau ekki. Því ákváðum við
að reyna björgun. Við fengum
snjóbíl Slysavarnadeildar
kvenna á Akureyri er Lénharð
ur Helgason veitir forstöðu, en
bifreiðastjóri var Sigurður
Bárðarson og vorum við 4 með
honum. Lagt var upp frá Þor-
móðsstöðum í Sölvadal sl. laug
ardagsmorgun. Er upp á Hóla-
fjall kom mætti okkur versta
veður, stormur og næstum
blindhríð af norðvestri og var
ekið eftir áttavita mestan hluta
leiðarinnar, en þó var villst af
leið og ein sú villa olli því, að
við fundum lömbin, en þá vor-
úm við komnir mun sunnar og
vestar en við ætluðum, en lömb
in voru í Háöldum skammt aust
ur af Hofsjökli og voi’u þau í
haglendi allgóðu, en á þessu
svæði tafði snjóleysi allmjög
för okkar. Við höfðum góðan
fjárhund með okkur og veitti
hann okkur ómetanlega aðstoð
við að handsama lömbin. Var
svo haldið að Laugarfelli skála
Ferðafélags Akureyrar og var
þá brostin á stórhríð. Gistum
við þar um nóttina. Um morgun
in var komið skaplegt veður,
en brátt dimmdi af þéttri logn-
hríð, er tafði för okkar, því að
fátt er um kennileiti orðið á
öræfunum upp af Eyjafirði. Til
marks um það má nefna að
merkisstengur er vísa veginn
að Laugarfelli voru víða komn
ar í kaf og eru þær þó 1 metri
á hæð. Til byggða var komið
um kl. 18 á sunnudag. Lömbin
er heimt voru úr öræfunum
reyndust vera úr Bárðardal og
er eigandi þeii-ra Héðinn Hösk-
uldsson á Bólstað.
AM þakkar hér með Eiríki á
Arnarfelli fyrir greinargott
svar og flytur eigendum snjó-
bílsins heilar þakkir hans fyrir
aðstoðina.
TVÆR SKEMMTANIR
TIL HJÁLPAR HELGU
FUJ
Á AKUREYRI held
ur bingó og dans-
leik í Alþýðuhúsinu n. k.
sunnudag og rennur allur
ágóðinn til styrktar Helgu
litlu Einarsdóttur Álfabyggð
8. Skemmtiklúbbur Þórs hef
ir skemmtun í kvöld í sama
skyni. Perusala Lionsklúbbs
ins Hugins er var til hjálpar
Helgu skilaði 35 þús. kr.
Starfsfólk Lindu hefur gefið
12 þús. kr. Helga litla er þeg
ar farin utan til lækninga og
um leið og AM þakkar fyrir
veittan stuðning henni til
handa, vill AM hvetja Akur
eyringa til að fjölsækja á
skemmtanir Þórs og FUJ og
einnig mun blaðið taka feg-
inshendi við gjöfum. Við
heimtum Helgu aftur heim
hressa og káta og Akureyr-
ingar munu allir sem einn
vilja með glöðu geði grciða
nokkrar krónur fyrir varan
legan bata hinnar ungu
stúlku.
LEIÐARINN: „SITTU MEÐ ÞAГ
Grein eftir Jón Þorsteinsson, sjá bls. 5